Önnur umferð til Íslandsmeistara í motocrossi - Akranes 2025
- Sverrir Jonsson
- 2 days ago
- 5 min read
Önnur umferð til Íslandsmeistara í motocrossi fór fram laugardaginn 28 júní og var bráðskemmtilegt mót haldið á vegum VÍFA upp á skaga. Ekki blés nú byrlega í upphafi vikunnar þegar það rigndi nánast látlaust frá því helgina á undan og ekki bætti úr skák hellidembur sem voru deginum á undan. Voru keppendur því búnir að undirbúa sig fyrir drullukeppni "dauðans", en viti menn, brautin var eiginlega í fáranlegu standi í byrjun og átti bara eftir að skána það sem eftir lifði dags.
Um 49 keppendur voru skráðir til leiks og er þetta orðin hálf dapurleg staða svo ekki sé fastar kveðið að orði. MSÍ þarf alvarlega að fara yfir málin fyrir næsta tímabil en þetta tímatökubull sem raðar fóki í flokka er helbert kjaftæði sem búið var að reyna til fulls hér áður fyrr. Hvenær ætlar fólk að átta sig á því að þetta snýst ekki bara og alltaf um A-flokkinn heldur sportið í heild og ef einstaklingar í sportinu sjá ekki stóru myndina að þá stefnir þetta sport bara eina leið og það er niður. Ég sé ekki heilu fjölskyldurnar mæta á svæðið til að fylgjast með keppenda í MX1 en ég sé það aftur á móti gerast í yngri flokkum.
Kvennaflokkurinn sem var árið 2009 stærsti flokkurinn með 27 keppendur innanborðs er vart svipur á sjón nú með 4 keppendur í fyrstu tvær keppnir ársins. Ljóst er að þessi motocrossnefnd sem átti að vera leiðbeinandi og átti að koma með tillögur að breytingum en varð svo allt í einu ráðandi þáttur hvað keppnisdagskrá varðar og greinilega sá ekki skóginn fyrir trjánum.
Skýrt skal tekið fram að þetta er mín upplifun á núverandi keppnishaldi og skora ég á aðila að endurskoða þetta fyrir næsta ár.
MX unglinga var stærstur af einstökum flokkum að ræða og er hasarinn mikill þegar keppni stendur sem hæst. MX-B datt út sökum þátttökuleysis og var öllum þeim keppendum sem skráðu sig í þann flokk fluttir í A flokk og ræstu því með MX1 og MX2.
Tímatakan hófst um níuleytið og fyrsta moto-ið í kvennaflokki hófst upp úr ellefu. Keppni lauk svo formlega um fimmleytið og voru keppendur þá búnir að keyra tímatöku plús þrjú moto yfir daginn og ekki laust við að þreyta væri farin að segja til sín hjá keppendum enda brautin orðin nokkuð slitin eftir daginn.
“Eiður Orri sigraði í MX1, Eric Máni Guðmundsson í MX2 og Eva Karen sigraði í kvennaflokki".
Eiður Orri Pálmarson var með eftir fjarveru í fyrsta móti ársins og hrellti þá Mána Frey Pétursson og Alexander Adam Kuc sem börðust grimmt að vanda. Sigraði Eiður Orri nokkuð örugglega í MX1 og Máni varð í öðru sæti. Alexander Adam Kuc varð svo þriðji.
Í 65cc mættu 7 keppendur til leiks og sigraði Máni Mjölnir Guðbjartsson með nokkrum yfirburðum. Ég endurtek það sem ég sagði síðast að það er fullt af 65cc hjólum þarna úti og er það mín skoðun að þeir drengir og stúlkur sem eiga slík hjól myndu gjarnan vilja upplifa þá gleði sem fylgir því að taka þátt í svona keppnum. Skora ég hér með á foreldra þeirra að gefa börnunum tækifæri og leyfa þeim að keppa til að kanna hvort þau hafi áhuga á þessu til framtíðar.
85 flokkurinn var mjög skemmtilegur að horfa á en hann Ísmael Ísak Michaelsson var hlutskarpastur eftir daginn. Aron Dagur Júlíusson tók í það minnsta tvær góðar byltur og endaði á því að þurfa að fara á bráðamóttökuna og lauk ekki keppni. Olivier Cegielko varð annar og Halldór Sverrir Einarsson, sem ég tel að eigi mikla meira inni en hann hefur sýnt í ár þó hann hafi keyrt vel það sem af er, varð þriðji.
Mikil barátta var í unglingaflokknum en þar er keppendum tvískipt og er sérstök stigakeppni fyrir þá sem keppa á 144-125cc tvígengishjóli og svo aftur á móti MX2 þar sem 250cc fjórgengishjólin eru alls ráðandi. Í tvígengisflokknum var það Arnór Elí Vignisson sem varð hlutskarpastur en á hæla hans voru þeir Andri Berg Jóhannsson og Máni Bergmundsson. Andri Berg Jóhannsson varð óheppinn eftir að leiða keppnina og laut í gras á síðasta hring í síðasta moto-i dagsins. Í MX2 unglinga var það Sigurð Bjarnason sem landaði sigri að lokum eftir harða baráttu við Tristan Berg Arason sem var í mjög harði baráttu við Sigurð Bjarnason og varð það ljóst að síðasta moto dagsins myndi ákvarða hver yrði efstur á palli. En eins og áður sagði að þá hafði Sigurður Bjarnason betur og verður ekki af drengnum tekið að hann er mjög góður í startinu og oftar en ekki tekur holuskotið. Í þriðja sæti varð svo Stefán Ingvi Reynisson sem var að enda á palli í fyrsta sinn og var gaman að fylgjast með því.
Í MX2 var það Eric Máni Guðmundsson var sterkastur og sigraði nokkuð örugglega. Í öðru sæti varð Alex Þór Einarsson og í því þriðja Sindri Már Bergmundsson.
Í kvennaflokknum bar það helst til tíðinda að Eva Karen Jóhannsdóttir varð hlutskörpust eftir daginn og landaði þar með sínum fyrsta sigri á ferlinum. Ekki leiðinleg tilfinning það, eða hvað Eva? Nýliði ársins, Kristín Ágústa Axelsdóttir, varð þriðja og bætir sig í hvert sinn sem ég sé hana hjóla. Björk Erlingsdóttir, aka "brjálaða Bína" varð svo fjórða.
Sigurvegarar
Hér má sjá sigurvegara dagsins eftir hverjum flokk fyrir sig en nánari upplýsingar um hvert moto eða tímatöku má finna með að smella á þennan hlekk. Hér fyrir neðan birti ég eingöngu flokka sem gilda til Íslandsmeistara.
Eiður Orri Pálmason
Máni Freyr Pétursson
Alexander Adam Kuc (leiðir til Íslandsmeistaratitils)
Eric Máni Guðmundsson (leiðir til Íslandsmeistaratitils)
Alex Þór Einarsson
Sindri Már Bergmundsson
Arnór Elí Vignisson
Andri Berg Jóhannsson (leiðir til Íslandsmeistaratitils)
Máni Bergmundsson
Sigurður Bjarnason (leiðir til Íslandsmeistaratitils)
Tristan Berg Arason
Stefán Ingvi Reynisson
Ísmael Ísak Michaelsson (leiðir til Íslandsmeistaratitils)
Olivier Cegielko
Halldór Sverrir Einarsson
Máni Mjölnir Guðbjartsson (leiðir til Íslandsmeistaratitils)
Viktor Ares Eiríksson
Gabríel Leví Ármannsson
Eva Karen Jóhannsdóttir (leiðir til Íslandsmeistaratitils), er jöfn Karen Arnardóttir
Karen Arnardóttir (leiðir til Íslandsmeistaratitils), er jöfn Evu Karen Jóhannsdóttir
Kristín Ágústa Axelsdóttir
Hægt er að skoða stöðuna til Íslandsmeistara árið 2025 og eldra með að smella hér. Nánar upplýsingar má einnig finna á síðu Mótorhjóla & vélsléðasambands Íslands, www.msisport.is.
Hér má sjá myndir frá keppninni en þær má einnig finna á Flickr þar sem ég geymi þær til geymslu en bæði vefhýsingaraðili síðunnar og fésið hafa verið til vandræða með að birta og geyma myndir. Mjög einfalt að flétta þeim beint hér í greininni með því að nota takkana með örvunum til hliðar ← →
Tekið skal fram að eingöngu voru teknar ljósmyndir í fyrsta moto-i og ef þú áttir ekki góðan dag eða varst ekki með af einhverjum sökum, að þá er ekki til mynd af þér. Þó ég taki eingöngu úr fyrsta moto-i dagsins, að þá eru þetta samt rúmlega þrjúþúsund myndir að fara í gegnum. Að hripa eitthvað niður eftir hverja keppni er eitthvað sem ég get ekki lofað því andinn þarf að vera til staðar.
Höfn 19 júlí
Næsta keppni fer fram á vegum ASK í Höfn á Hornafirði. Er þetta í fyrsta sinn sem keppt verður þarna til Íslandsmeistara og ljóst er að margir keppendur munu keppa eða hjóla í þessari braut í fyrsta sinn. Mjög vel er látið af þessari braut og á greinarhöfundur ekki von á öðru en skemmtilegri keppni. Vonandi bætist nú aðeins í hópinn frá síðustu keppni en til þess að keppni beri sig, að þá þarf að lágmarki 60 keppendur að skrá sig til leiks
Til allra sjálfboðaliða sem komu að keppnistandinu um helgina og að sjálfsögðu ykkur, keppendum þar sem án ykkar væri engin keppni, að þá vill ég segja "Takk fyrir okkur" og takk fyrir þá vinnu sem þið leggið á ykkur svo við og aðrir getum leikið okkur.
댓글