Flúðir - 5 tímar
- Sverrir Jonsson
- May 26
- 2 min read
Jæja, þá er fimm tíma skemmtikeppnin sem haldin var á landi Syðri-Langholts í anda "Klausturskeppnanna" lokið. Tæplega 200 keppendur tóku þátt og sveif góður andi yfir vötnum ef svo má að orði komast en eins og gefur að skilja voru menn misánægðir með brautina og er það gömul saga og ný. Aldrei hægt að gera öllum til hæfis. Þó var meirihluti þeirra sem ég talaði við á því að brautin hefði verið erfiðari en þeir reiknuðu með, þ.e. vegna aurbleytu sem skapaði um tíu "góða" drullupytti sem urðu þegar á leið ansi erfiðir yfirferðar en ástæðuna má rekja til hárrar vatnsstöðu í ánni rétt fyrir keppni. Hefðu keppnishaldarar mátt vera fljótari til við að færa eða víkka hlið. Einnig fannst keppendum að fækka hefði mátt beygjum um svona 20%.
En svona keppnir eru einmitt til að læra af. Þetta var nýtt svæði fyrir keppendur og eingöngu í annað sinn sem keppt hefur verið á þessum stað. Ég er sannfærður um að keppnishaldarar og skipuleggjendur hafa lært mikið af þessari keppni og býst ég við að ef um áframhald verður um að ræða, að þá eigi þessar keppnir á þessu svæði bara eftir að verða betri. Það sem skiptir mestu máli að boltinn er farin að rúlla aftur sem er eingöngu sportinu til góðs.

Keyrt var í mörgum flokkum og ætla ég ekki að tíunda þá hér. Hægt verður að sjá úrslit eftir flokkum á heimasíðu MSÍ, www.msisport.is, og þar verður að hægt að flétta upp stöðu keppenda o.s.frv. ef fólk er eða var í þeirri stöðu að taka þessari keppni svo alvarlega. Persónulega hef ég alltaf litið á þetta sem skemmtikeppni og þegar ég tók þátt á sínum tíma, að þá nálgaðist ég þær undir þeirri yfirskrift að um gleði var að ræða frekar en einhver úrslit. Ég ætlaði einfaldlega að benda á að myndir frá keppninni eru komnar inn og má skoða þær hér í þessum hlekk eða hér fyrir neðan frá Flickr.
Að lokum vill ég og mín MotoSport.is fljölskylda þakka fyrir sig og sérstaklega keppnishöldurum og sjálfboðaliðum. Án ykkar er þetta ekki hægt og ykkur er seint ofþakkað og sjaldan fáið þau umbun fyrir ykkar frábæra starf. Síðast en ekki síst, að þá viljum að sjálfsögðu þakka þátttakendum. Þið eruð ástæða þess að aðstandendur keppninnar standa í þessu bulli.
Comentarios