top of page
  • Instagram
  • Black Facebook Icon

Þriðja umferð til Íslandsmeistara í motocrossi - Akureyri 2024

Writer's picture: Sverrir JonssonSverrir Jonsson

Þriðja umferð til Íslandsmeistara í motocrossi fór fram laugardaginn 20 júlí og var bráðskemmtilegt mót haldið á vegum KKA á Akureyri. Keppnin fór fram við topp aðstæður og var það KKA og keppendum til happs að það hafði rignt líttilega um nóttina og var rakastigið nánast fullkomið í brautinni sem helst rök alveg til loka keppninnar.


Um 80 keppendur voru skráðir til leiks. MX unglinga var stærstur af einstökum flokkum að ræða og er hasarinn mikill þegar keppni stendur sem hæst. MX-B datt út sökum þátttökuleysis og var öllum þeim keppendum sem skráðu sig í þann flokk fluttir í A flokk og ræstu því með MX1 og MX2. Var nokkur kurr í þeim keppendum sem skráðu sig í B flokk en enduðu í A en allt fór vel fram að lokum engu að síður og góður dagur að kveldi komin.


Tímatakan hófst um níuleytið og fyrsta moto-ið í kvennaflokki hófst upp úr ellefu. Keppni lauk svo formlega um fimmleytið og voru keppendur þá búnir að keyra tímatöku plús þrjú moto yfir daginn og ekki laust við að þreyta væri farin að segja til sín hjá keppendum enda brautin orðin nokkuð slitin eftir daginn.


“Eiður Orri Pálmarson sigraði auðveldlega í MX1, Eric Máni Guðmundsson í MX2 og Aníta Hauksdóttir sigraði í kvennaflokki.

Eiður Orri Pálmarson sýndi að yfirburðir hans í sumar eru vel verðskuldaðir og er hann á fullu húsi stiga eftir þrjár keppnir af fimm þetta árið. Drengurinn er hreint út sagt með fáranlegar góðar ræsingar alltaf hreint og nánast undantekningarlaust fyrstur inn í fyrstu beygju. Máni Freyr Pétursson og Alexander Adam Kuc börðust grimmt að vanda en svo fór að Lexi (Alaxender) hafði Mána undir og varð í öðru sæti í MX1 og Máni varð að sætta sig við þriðja sætið.


Í 65cc mættu 8 keppendur til leiks á Akeyri, sem er fjölgun frá Akranesi en því miður vantaði einn sárlega þar sem Aron Dagur Júlíusson hafði meiðst illa þegar keðja á hjóli hans slitnaði þegar hann var í loftinu og verður hann fjarri góðu gamni það sem eftir lifir sumars. Olivier Cegielko sigraði því nokkuð örugglega í þetta skiptið og sökum fjarveru Arons Dags, að þá var ekki jafn skemmtilegt að horfa á flokkinn þar sem þeir hafa barist hart en drengilega í síðustu mótum.


Mikil barátta var í unglingaflokknum en þar er keppendum tvískipt og er sérstök stigakeppni fyrir þá sem keppa á 144-125cc tvígengishjóli og svo aftur á móti MX2 þar sem 250cc fjórgengishjólin eru alls ráðandi. Í tvígengisflokknum var það Kári Siguringason hlutskarpastur en á hæla hans voru þeir Ketill Freyr Eggertsson og Stefán Ingvi Reynisson. Í MX2 unglinga var það Sigurð Bjarnason sem landaði sigri að lokum eftir harða baráttu við félaga sína að norða, þá Alex Þór Einarsson og Núma Möller Pétursson. Í MX2 var það Eric Máni Guðmundsson var sterkastur og sigraði nokkuð örugglega.


Í kvennaflokknum var það Anítu Hauksdóttir sem sigraði örugglega varð það Björk Erlingsdóttir sem varð hlutskörpust 40+ í kvennaflokknum. Á eftir Anítu voru það þær Ásta Petrea Sívertsen og Aldís Dröfn Ingvarsdóttir sem skipuðu sér í næstu sæti.


Sigurvegarar


Hér má sjá sigurvegara dagsins eftir hverjum flokk fyrir sig en nánari upplýsingar um hvert moto eða tímatöku má finna með að smella á þennan hlekk. Þar má einnig finna upplýsingar úr "B" flokk en hér fyrir neðan birti ég eingöngu flokka sem gilda til Íslandsmeistara.


MX1 flokkur:

  1. Eiður Orri Pálmarsson

  2. Alexander Adam Kuc

  3. Máni Freyr Pétursson

MX2 flokkur:

  1. Eric Máni Guðmundsson

  2. Björgvin Jónsson

  3. Leon Pétursson

Unglingaflokkur (aldur 14-18 ára, 144-125cc tvígengis):

  1. Kári Siguringason

  2. Ketill Freyr Eggertsson

  3. Stefán Ingvi Reynisson

MX2 - Unglinga (aldur 14-18 ára, 250cc fjórgengis):

  1. Sigurður Bjarnason

  2. Alex Þór Einarsson

  3. Númi Möller Pétursson

85 cc flokkur (aldur 12-14 ára):

  1. Arnór Elí Vignisson

  2. Storm Askbo

  3. Ísmeal Mikaelsson

65 cc flokkur (aldur 10-12 ára):

  1. Olivier Cegielko

  2. Viktor Ares Eiríksson

  3. Máni Mjölnir Guðbjartsson

Kvennaflokkur (opin flokkur):

  1. Aníta Hauksdóttir

  2. Ásta Petrea Sívertsen

  3. Aldís Dröfn Ingvarsdóttir


Hægt er að skoða frekari úrslit með að smella hér. Nánar upplýsingar má finna á síðu Mótorhjóla & vélsléðasambands Íslands, www.msisport.is.


.


Tekið skal fram að eingöngu voru teknar ljósmyndir í fyrsta moto-i og ef þú áttir ekki góðan dag eða varst ekki með af einhverjum sökum, að þá er ekki til mynd af þér. Ég hef tekið myndir óslitið síðan 2006 í sjálfboðavinnu og er mikil þreyta komin í karlinn. Þó ég taki eingöngu úr fyrsta moto-i dagsins, að þá eru þetta samt um þrjúþúsund myndir að fara í gegnum. Að hripa eitthvað niður eftir hverja keppni er eitthvað sem ég get ekki lofað því andinn þarf að vera til staðar.


Sárt saknað...

Við erum nokkrum keppendum færri það sem af er ári vegna meiðsla sem hafa komið upp og eru það nánast í öllum flokkum. Má segja að það vanti hátt í 15 manns á ráslínu að jafnaði ef tekin er saman sá fjöldi sem hefur meiðst og þeir sem ákáðu að taka sér frí þetta árið vegna t.d. barnaeigna eða eitthvað annað.


Bolaöldur 10 ágúst

Næsta keppni fer fram í nýrri og bráðskemmtilegri braut UMFS á Bolaöldu svæðinu en UMFS hefur tekið við og rekur í góðu samstarfi við VÍK yngri brautina sem var gerð fyrir nokkrum árum. Aldrei hefur verið haldið Íslandsmeistaramót í þessari braut og er jarðvegur nokkuð frábrugðin því sem fólk þekkja í Bolaöldum.


Til allra sjálfboðaliða sem komu að keppnistandinu um helgina og að sjálfsögðu ykkur, keppendum þar sem án ykkar væri engin keppni, að þá vill ég segja "Takk fyrir okkur" og takk fyrir þá vinnu sem þið leggið á ykkur svo við og aðrir getum leikið okkur.


Hægt er að sjá myndir frá keppninni með að smella á þennan hlekk og færist þú þá á svæði mitt hjá Flickr en motosport.is síðan er komin í geymslu vandræði hjá núverandi þjónustuaðila með tilheyrandi plássleysi að ég neyðist til að flytja ykkur yfir á Flickr svæði mitt. Hugsanlega þurfið þið að lifa við þetta í sumar en að uppfæra hjá þjónustuaðila kostar litlar 160 þúsund ISK á núverandi gengi með 50% tilboðs afslætti...

Recent Posts

See All

Comments


© 2007 by MOTOSPORT.IS. Proudly created with Wix.com

bottom of page