| Fyrsta umferðin í Íslandsmeistaramótinu í íscrossi afstaðinn |
| laugardagur, 30 janúar 2010 | |
|
Hjá okkur fór eiginlega allt úrskeiðis sem hægt var að fara úrskeiðis. Rétt fyrir tímatöku að þá fór hjólið hjá brjáluðu Bínu allt í einu ekki í gang, byrjaði með að bensíngjöfin festist og síðan var eitthvað vesen sem ég veit ekki hvað var. Þar með var hún úr leik en hjólið hennar hefur hingað til ekki slegið feilpúst. Þakka Halla eldri fyrir hjálpina við að reyna að koma henni út á ísinn og Ella. Þegar út á ís var komið og ég ætlaði að fara að taka myndir, að þá bilaði myndavélin og því eru eiginlega engar myndir hér í dag frá mótinu..:0( Ljósi punkturinn í þessari ferð okkar var að hann Óliver keppti í sínu fyrsta Íslandsmeistaramóti og kláraði með því að enda í þriðja sæti í 85cc flokknum. En það voru fleiri en við sem voru að lenda í bilunum með hjólin og spurning hvort þetta sé það sem koma skal í ár því aldur mótorfákana eru einu ári meira en í fyrra og lítið um endurnýjanir á hjólum framundan. Það er því ljóst að maður þarf orðið að fara extra yfir hjólin fyrir hvert mót ef maður á að ná að tryggja að svona endurtaki sig ekki. Þrátt fyrir þetta, að þá var þetta skemmtilegur dagur og alltaf gaman að koma þarna í Mývatnssveitina. Næsta mót í íscrossi á að fara fram 20 febrúar og er mótsstaður ekki ennþá ákveðin. Í millitíðinni hefst svo tímabilið í snjócrossi með stæl. Eins og ég sagði að þá eru eiginlega engar myndir frá mér frá þessu móti og spurning hvort og hvenær maður hefur efni á að láta laga gripinn. Því verður sjálfsagt eitthvað lítið af ljósmyndum á næstunni héðan innanlands, alla vega. Hér fyrir neðan eru svo systurnar sem mestu athygli vöktu í dag og svo Halli Jr.
|