JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Linkur á aðra umferðina í AMA Outdoors
mánudagur, 07 júní 2010

Hér er linkur á aðra umferð AMA Outdoors sem fór fram um helgina í Texas.  Hér er linkur á 250 flokkinn og hér er linkur á 450 flokkinn.

464y7747.jpg

 
MX Ólafsfjörður afstaðinn - fyrstu pælingar
sunnudagur, 06 júní 2010

img_3764.jpgÞá er fyrst umferð í Íslands-meistaramótinu í motocrossi afstaðin og fór hún fram í Ólafsfirði þar sem keppt var í fyrsta sinn í sandbraut, eða síðan 2007.  Brautin var mjög flott og skemmtileg tilbreytni að fá sandbraut inn í Íslandsmeistaramótið, en hún var nokkuð þung og það sérstaklega fyrir 85cc hjólin eins og við mátti búast.  Það eina sem ég get bent á að mætti fara betur er varðar brautina er það að hún var þurr og æskilegt hefði verið ef þeir hefðu getað vökvað hana betur en gert var.  Að öðru leyti ekkert hægt að kvarta yfir aðstæðum.  Sökum ryksins, að þá staðsetti ég mig þannig að sem minnst ryk færi í linsu og myndavél og var því ekki alltaf þar sem ég hefði viljað vera til myndatöku.  Annað sem vakti mikla athygli mína var dagskrá dagsins.  Dagskráin kom seint á netið og því hafði maður ekki haft mikinn tíma til að skoða hana, en þær breytingar sem búið er að gera eru að mínu mati mikill mistök og á ég þar ekki við lengd moto-a, heldur niðuröðun flokka á ráslínu.  En í stað þess að röfla mig hásann um dagskrána hér á netinu, að þá ætla ég einfaldlega að koma ábendingum beint til MSÍ, því eftir allt saman að þá eru þeir bara mannlegir eins og við og geta  gert mistök.

Víkjum þá aftur að sjálfri kepppninni. 

Lesa meira...
 
MX í Ólafsfirði laugardaginn 5 júní
fimmtudagur, 03 júní 2010

Fyrir fyrstu MX keppni ársins á vegum MSÍ og Vélsleðafélags Ólafsfjarðar  þá eru hér birtar upplýsingar um mótstjórn og dagskrá:

Kristinn Gylfason er mótstjóri, Helgi Reynir brautarstjóri og Baldvin Gunnarsson verður skoðunarmaður. Mótstjórn vill minna keppendur og aðstandendur að muna eftir gögnum vegna skoðunar og vera með útfylltá yfirlýsingu vegna þáttöku yngri keppenda. allar nánari upplýsingar um keppnisreglur, dagskrá keppninar og eyðublöð eru að finna á heimasíðu MSÍ.

kv Mótstjórn og MSÍ

 
Hjólinu hans Hjartar stolið - verður að finnast...
miðvikudagur, 02 júní 2010

Tilkynning frá Hirti "Líklegum" vegna þjófnaðar á hjólinu hans

Í dag var Husqvarna TE410 ´97 mótorhjólinu mínu stolið fyrir utan Ásgarð 53. Hjólið er ekki mikils virði í peningum, en hefur mikið tilfinningarlegt gilfi fyrir mig þar sem að ég er búin að eiga hjólið í 13 ár og keyra það yfir 35.000 kílómerta þetta er eina hjólið á landinu sem lítur svona út og er með Husky-límmiða. Ég sendi mynd af hjólinu, en í dag var hjólið með svart framljós og ekki neinar handahlífar.

picture_010.jpg

 
Ágætis skráning í fyrsta MX mótið
miðvikudagur, 02 júní 2010
img_2085.jpgÞað er bara ágætis skráning í fyrsta Íslands-meistaramót í motocrossi sem fer fram laugardaginn 5 júní í Ólafsfirði.  Tæplega 100 keppendur eru skráðir og það sem er hvað ánægjulegast við þetta allt saman er að það er fín nýliðun í 85cc flokkinn og er hann fjölmennastur á þessu móti, um 17 keppendur.  Einnig er afar góð mæting í kvennaflokkinn og ég veit að ef allar stelpurnar væru heilar heilsu, þar sem nokkrar eru á sjúkralista, að þá væri þetta fjölmennasti flokkurinn í dag.  16 ofurskvísur er skráðar til leiks.  Það er bara eitt sem skyggir á gleðina með kvennaflokkinn og það er að enginn nýliðun hefur átt sér stað og er enginn stúlka skráð í 85cc flokk kvenna.  Ég veit að það eru einhverjar nýjar byrjaðar að hjóla en þær eru ekki skráðar til leiks sem er miður.  MX unglinga hefur minnkað mikið síðustu ár og eru einungis 16 skráðir í ár, en þetta var ævinlega stærsti flokkurinn með á bilinu 30-40 keppendur skráða.  Kannski er það fjarlægðin, þ.e. að fara norður sem fælir frá en ég vona ekki.  Lista yfir keppendur má sjá hér.  Við sjáumst svo bara eiturhress um helgina á fyrsta móti ársins.  The game is on...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 97 - 108 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skoðanakönnun

Hvernig fannst þér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319126
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markaðstorg