JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Lækkað miðaverð í brautina hjá MotoMos
þriðjudagur, 02 september 2008

Tilkynning frá MotoMos 

Frá og með mánudeginum 1.september verður lækkun í MotoMos, nú kostar 1.000 kr fyrir stór hjól og 500 fyrir lítil hjól.  Miðar seldir í N1 í Mosfellsbæ.  Góða skemmtun:)))

 
Flottur fréttaflutningur á RÚV um motocrossið í gær
mánudagur, 01 september 2008
Var mjög ánægður með Íþróttadeild RÚV, þegar ég loksins sá fréttatímann eftir frágang í gær.  En RÚV gerði mótinu og úrslit til Íslandsmeistara mjög góð skil í fréttatímanum í gær.  Ef einhvern skildi hafa farið mis við fréttina að þá er hægt að sjá hana með að smella hér.   
 
Fimmtu og síðustu umferð Íslandsmeistarmótsins í motocrossi lokið
mánudagur, 01 september 2008

img_4565.jpgJæja,  þá er þetta loksins afstaðið.  Síðasta umferðin fór fram á sunnudaginn, eftir að veðuguðirnir myntu okkur á hversu megnugir þeir eru og keppnin færð frá laugardeginum.  Miðað við daginn í gær að þá tel ég að sú ákvörðun hafi verið réttlætanleg því dagurinn í gær var geggjaður og veðrið hreinlega eins og best verður á kosið.  Sumir höfðu þó, í upphafi, verulegar áhyggjur af notkun nýja steypta ræsingarkaflans en þegar á reyndi að þá fuku þessar áhyggur út í veður og vind og allt fór fram eins og best verður á kosið.  Brautin ótrúlega góðu standi í ljósi úrkomu síðustu daga.  Sumir voru sáttir við árangur dagsins og heildútkomu ársins en aðrir ekki, vorum við engin undantekning frá því.

img_3653.jpgNýir Íslands-meistarar voru krýndir í fjórum flokkum, en aðrir náðu að verja titilinn sinn.  Má þar fyrst nefna Einar S. Sigurðsson í MX1 sem hafði það af með mikilli seiglu í allt sumar að halda haus.  Í öðru lagi má nefna hana Bryndísi Einarsdóttir í 85cc stúlkna, en hún var yfirburðamanneskja í sínum flokki í ár.  En Bryndís sýndi ótrúlega íþróttamannslega hegðun í gær þegar hún gaf ítrekað eftir svæði til þeirra sem voru í harðri baráttu í opna kvennaflokknum, en 85cc stúlkna og opni kvennaflokkurinn keyra saman, án þess að tapa niður sínu forskoti á sína keppinauta.  Getum við margt lært af þessari stúlku í keppni og máttu aðrir alveg taka hana sér til fyrirmyndar hvað þetta varðar.

Aðrir nýir Íslandsmeistar sem voru krýndir í gær voru Gunnlaugur Karlsson í MX2.  Sölvi B. Sveinsson í MX unglinga, en baráttan í þessum flokki var hreint út sagt ótrúleg og munaði aðeins einu stigi á Sölva og Ásgeiri Elíassyni sem varð í öðru sæti.  Í opna kvennaflokknum var það Signý Stefánsdóttir sem varð hlutskörpust og hefur keppnin í þessum flokki sjaldan verið jafn spennandi.  Í 85cc flokki varð það Guðmundur Kort hafði þetta af í lokin.  Vill ég og mín fjölskylda óska öllum nýkrýndum Íslandsmeisturum, sem og öðrum keppendum, til hamingju með árangurinn í ár.  

Lesa meira...
 
Iceland Express styrkir landsliðið á MXoN
föstudagur, 29 ágúst 2008

Samkvæmt samningi sem skrifað var undir í morgun, föstudag, mun Iceland Express leggja keppendum okkar og liðsstjóra til flugfar til Englands vegna Motocross of Nations nú í lok september.  Munu keppnistreyjur og liðsjakkar verða merktir með merkjum Iceland Express í tilefni af þessu.

Express-ferðir bjóða einnig áhugafólki um keppnina ferðir til Englands á hagstæðu verði, ásamt aðstoð við útvegun gistingar.  Nánari upplýsingar veitir Ágúst Valsson hjá Express-ferðum, netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það  en einnig er hægt að skoða úrvalið á heimaðsíðu þeirra: www.expressferdir.is

Iceland Express hefur tekið þessu máli okkar afar vel og sýnt þessu máli mikinn áhuga.  Við bindum vonir við að hér sé lagður grunnur að samstarfi til framtíðar og munum gera okkar besta til að tryggja að það verði árangursríkt fyrir báða aðila.

 
Áríðandi! - keppni frestað fram til Sunnudags
föstudagur, 29 ágúst 2008

ÁRÍÐANDI TILKYNNING FRÁ VÍK

Keppnisstjórn VÍK hefur ákveðið að fresta 5. umferð Íslandsmótsins í Moto-Cross sem fara átti fram á morgun laugardaginn 30. ágúst hefur verið frestað til sunnudagsins 31. ágúst.  ATH ! að sjálsögðu er keyrt eftir sömu dagskrá og venjulega.  Ástæða frestunar keppninnar er slæmt veður í nágrenni Reykjavíkur sem eftir veðurspám kemur til með að standa fram yfir hádegi á morgun, laugardag.
Veðurspáin fyrir sunnudaginn er frábær léttskýjað, sól og 14c hiti.  Sjáumst öll kát og hress kl: 9:00 á sunnudagsmorgun.  Vinsamlega látið þetta berast á sem flesta og gott væri að keppendur hefðu samband sín á milli til að koma þessum skilaboðum áfram.
kveðja,
Keppnisstjórn VÍK
 
<< Byrja < Fyrri 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 Næsta > Endir >>

Úrslit 889 - 900 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skoðanakönnun

Hvernig fannst þér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319065
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markaðstorg