JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Motomos tveggja ára í dag
fimmtudagur, 17 júní 2010

Tekið af motocross.is

mos_logo.pngJæja þá er brautin okkar í MotoMos orðin 2 ára, og í tilefni dagsins ætlum við að vera með smá húllumhæ á morgun 17. júní kl 13.  Eysteinn ýtusnillingur verður búinn að taka brautina í gegn:)   Balli er búinn að vera vinna í  braut fyrir yngstu snillingana, 65cc-85cc.   Einnig erum við að vígja húsið okkar og ætlum að bjóða upp á grillaðar pylsur, gos og kaffi.  Munið bara eftir miðum á N1 í Mosó :)   Sjáumst hress.

 
Álfsnes mjög flott í gćr
fimmtudagur, 17 júní 2010

imported_photos_00220.jpgVið familien brugðum okkur að sjálfsögðu upp í Álfsnes eftir að hún hafði farið í gegnum endurbætur og urðum ekki fyrir vonbrigðum.  Að vísu er ég ekki farin að hjóla ennþá og átti þetta að vera stóra "come back-ið" í dag, en þar sem ég hef ekki komið mér í að ná í hjólið til Gunna Sölva, að þá var ég bara á myndavélinni.  Brautin eins og ég sagði mjög flott og kom það mér á óvart hversu fáir voru mættir til að hjóla, eða rétt um 20 manns.  Kannski að endurokeppnin á Akureyri geri það að verkum að margir slepptu því að mæta í dag, en MXS skólinn var með um 70 manns upp í Bolaöldu og ætli megin skýringinn liggi ekki þar.  Þið sem mættuð ekki, þið misstuð af miklu...  Smellti nokkrum myndum, eða rúmlega 800 talsins, en hægt er að sjá þær með að smella hér.  Er enn að læra á þessa vél og virðist loksins vera búin að átta mig á hvaða hraða (shutter speed) ég eigi að skjóta myndirnar á, en á samt mikið eftir ólært.  Vona að fólk fari að verða sátt við myndirnar..:0)

imported_photos_00594.jpg

imported_photos_00414.jpg

 
Álfsnes opnar í dag eftir endurbćtur
miđvikudagur, 16 júní 2010
img_8361.jpgÁlfsnesbrautin opnar í dag eftir endurbætur og viðhald.  Opnar brautin kl.17:00 og áður en hleypt verður í hana, að þá er nauðsynlegt að allir labbi einn hring og týni steina sem komið hafa upp eftir rótið í brautinni.  Mér skildist á Reyni að búið sé að breikka eitthvað af pöllunum og verður gaman að sjá hvernig það kemur út.  Nú er um að gera að mæta og æfa sig þar sem næsta mót í Íslandsmeistaramótinu í motocrossi fer fram í þessari braut.  VÍK minnir alla á að vera með miða sem seldir eru í N1 í Mosfellsbæ.  Miðalaus maður verður umsvifalaust vísað úr braut.  Sú hugmynd hefur komið hjá VÍK að taka myndir af þeim sem eru miðalausir og hengja upp í húsi og setja á netið undir sérstökum "tossalista".  Þannig að ef þú vilt ekki lenda á þessum "Wall Of Shame" að þá er vissara að vera með sitt á hreinu og svona eins og eitt stykki miða eða árskort.
 
Önnur umferđ í Enduro Cross Country um helgina á Akureyri
mánudagur, 14 júní 2010
img_0173.jpgÖnnur umferð í Enduro Cross Country fer fram á Akureyri um helgina og er skráning nú þegar hafin á vef MSÍ.  Ekki seinna vænna að drífa skráninguna af þar sem henni lýkur á miðnæti 15 júní, eða á morgun þriðjudag.  Ég efast ekki um að Akureyringar bjóða upp á skemmtilega braut og spáin fyrir helgina á Akureyri er lyginni líkust eða rúmlega 20°C og hálfskýjað...  Eigum við að ræða þetta eitthvað..:0)  
 
Ţriđja umferđ AMA Outdoors lokiđ
sunnudagur, 13 júní 2010
250-highpoint-cox-2010-002.jpgÞriðju umferð AMA Outdoors fór fram um helgina á Highpoint.  Í fyrsta mótinu urðu margir fyrir miklum vonbrigðum með útkomu Ryan Dungey og einnig hefur mönnum verið tíðrætt um Mike nokkurn Alessi á KTM 350 SX-F hjóinu á móti 450cc hjólum andstæðinga.  Eli Tomac kom öllum á óvart í fyrsta mótinu og sigraði en gekk ekki alveg sem skildi í því næsta.  Ekki er komið torrent vegna keppninnar en ég mun setja link á hana um leið og slíkt kemur á netið.  Fyrir neðan mun ég fjala um úrlsitin.
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 85 - 96 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skođanakönnun

Hvernig fannst ţér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319184
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markađstorg