JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Myndir frá LEX Games 2010
mánudagur, 28 júní 2010

Jæja, loksins hafði ég það af að fara í gegnum um 3.000 myndir frá LEX Games 2010.  Já, já, ég veit þetta er allt of mikið og enginn nennir að skoða allar þessar myndir.  Henti um 800 myndum á vefinn og getur fólk skoðað myndirnar með að smella hér.  Þetta eru myndir frá báðum dögunum, þ.e. laugardeginum og sunnudeginum, þannig að myndirnar einskorðast ekki bara við fyrsta daginn í Bolaöldu.  Ég tók að vísu ekki myndir af rallýcrossinu, né trialinu á laugardaginn þar sem ég hafði öðrum hnöppum að hneppa.  Að öðru leyti geri ég ekki ráð fyrir að fjalla meir um LEX Games 2010, þ.e. skrifa um úrslit eða þessa háttar þar sem þetta er fyrst og fremst sýningarkeppni.

img_9803.jpg

 
LEX games 2010
sunnudagur, 27 júní 2010

Í gær fór fram fyrri dagur í LEX Games '10 og fór þetta allt mjög vel fram.  Aðstæður eins og best verður á kosið fyrir áhorfendur og keppendur nema að því leyti til að motocrossbrautin hefði mátt fá smá rigningu.  Ég ætla svo sem ekki að fjalla um sjálfa leikana hér, heldur henda inn einni og einni mynd sem "teaser" á því sem koma skal.  En ég geri ráð fyrir að henda öllum myndunum inn seinna í dag.

img_8364.jpg

img_9114.jpg

Lesa meira...
 
Freestyle trix á LEX games...
fimmtudagur, 24 júní 2010

Já, mér skilst að við eigum eftir að sjá ýmislegt nýtt í freestyle trixum í ár um næstu helgi á LEX games.  Já, heyrst hefur að erlendur aðili muni koma til með að sýna nokkur vel valin atriði sem ekki hafa sést hér áður.  Þannig að ég er orðin verulega spenntur fyrir LEX games um helgina, hvað með þig?  Kannski verða þau eitthvað í þessum dúr.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

 
Red Bull Romaniacs 2010
fimmtudagur, 24 júní 2010

Red Bull Rúmenía er alveg að bresta á og hér er smá promo myndband fyrir keppnina.  Nú er bara spurningin hvort að einhver Íslendingurinn hafi verið nógu bilaður til að skrá sig til leiks..:0)

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

 
MotoMos er máliđ
miđvikudagur, 23 júní 2010
img_7534.jpgBrugðum okkur upp í Álfsnes í gær og er hún gjörsamlega í döðlum, komin í púður dauðans og hef ég ekki séð hana svona síðan sumarið 2008.  En á mánudaginn var brautin víst mjög góð og áætlaði góðkunningi MotoSport.is að hátt í 200 hjól hafi verið á staðnum þennan dag.  Þurrkurinn er okkur lifandi að drepa á höfuðborgarsvæðin og líður Álfnses mikið fyrir að nánast ekkert hefur rignt þar í nokkurn tíma.  Þó svo að það hafi komið smá skvetta um daginn, að þá rigndi eiginlega ekkert í Álfsnesi fyrir einhverja hluta sakir.  Við gáfumst nánast strax upp á Álfsnesi í gær og fórum í MotoMos sem var í ágætis standi og eigum við að ræða eitthvað þetta vökvunarkerfi sem klúbburinn hefur komið upp...  Þetta kerfi er eitt það allra virkasta sem ég hef séð hér á land og þótt víðar væri leitað.  Þarf ekki nema nokkrar mínútur og þá er brautinn fullvökvuð og ná vatnsbyssurnar nánast að "covera" alla brautina.  Ekki nóg með það, heldur er orðið hægt að þrífa hjólin á staðnum með hjálp háþrýstisprautu sem búið er að tengja til bráðabirgða, en klúbburinn gerir ráð fyrir að koma upp endanlegri þvottaastöðu á næstunni.  Þannig að ef þú ættir að spyrja mig hvert þú ættir að fara til að hjóla á suðvesturhorninu, að þá eru það bara tvær brautir sem eru með vökunvarkerfi og það eru MotoMos og Bolaalda.  Kerfið var bilað í Bolaöldu um daginn og veit ég ekki hvort að búið sé að gangasetja það aftur þannig að MotoMos er málið.  MXS skólinn verður að vísu með námskeið þar í dag, þannig að brautin er/verður þéttsettinn.
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 73 - 84 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skođanakönnun

Hvernig fannst ţér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2308313
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markađstorg