JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Bikarmót í Sólbrekku
þriðjudagur, 06 júlí 2010

img_3341.jpgLaugardaginn 10. júlí fer fram bikarmót í Sólbrekku, keppt verður í 85cc flokki, Kvennaflokki, B flokki og B 40+ flokki, Unglingaflokki og MX Open (MX2 teljast með MX Open).  Búið er að breyta Sólbrekkubraut og hefur akstursstefnu verið snúið við og er þetta mót haldið til þess að brautin teljist lögleg til Íslandsmeistarakeppni en 3. umferð Íslandsmótsins fer fram í Sólbrekku 24. júlí. Skráning í þessa keppni fer fram á msisport.is og stendur skráning opin til miðnættis fimmtudaginn 8. júlí. Keppnisgjald er 3.000 kr. fyrir 85cc, 4.000 kr. fyrir alla aðra flokka nema MX Open en þar er keppnisgjaldið 5.000 kr.  Tímatökubúnaður MSÍ verður notaður á þessari keppni og fyrir þá sem eiga ekki senda er bent á Nítró með leigusenda.

Brautin verður í toppstandi og er þetta keppni sem engin keppandi í Íslandsmótinu má láta fram hjá sér fara.

Smellið hér fyrir dagskrána fyrir daginn

Sjáumst hress á laugardaginn.
kv. Mótstjórn VÍR.

 
Önnur umferð Íslandsmeistaramótinu í motocrossi - Álfsnes
þriðjudagur, 06 júlí 2010
img_2631.jpgSíðasta laugardag fór fram önnur umferð til Íslandsmeistara í motocrossi og fór hún fram í Álfsnesbraut hér á Reykjavíkur-svæðinu.  Brautin var í toppstandi og ekki var hægt að kvarta yfir veðrinu.  Til leiks höfðu skráð sig rúmlega eitthundrað keppendur og biðu menn nokkuð spenntir eftir að sjá hvort að James Robo Robinson myndi eiga eitthvað í Aron Ómarsson í MX1, en James hefur keppt hér áður og vann einhver moto.  Fjölmennustu flokkar dagins voru kvennaflokkurinn sem er óðum að nálgast fyrri hæðir þegar hann var hvað fjölmennastur árið 2007 og voru rúmlega tuttugu ofurskvísur skráðar til leiks í ár.  Einnig var MX unglinga fjölmennur að venju og eins og svo oft áður einn af mínum allra uppáhaldsflokkum að horfa á.  Ég smellti af myndum í gríð og erg en lenti í þeirri skemmtilegri lífsreynslu að kortið var bara áður en ég vissi af stútfullt og það í byrjun síðara moto-sins hjá MX unglinga.  Voru þá góð ráð dýr og var hlaupið yfir nokkrar myndir í snatri, sumum eytt út og búið til rými fyrir nýjum myndum sem voru lækkaðar í upplausn til að geta haldið áfram.  En hægt er að skoða myndirnar með að smella hér, en höldum áfram umfjöllunina um sjálft mótið.
Lesa meira...
 
Sjötta umferð AMA Outdoors - Red Bud
þriðjudagur, 06 júlí 2010

Um síðustu helgi fór fram sjötta umferð í AMA Outdoors og fór sú keppni fram í hinni víðfrægu Red Bud braut eins og hún er kölluð.  Ég ætla nú ekki að fjalla sérstaklega um sjálfa keppnina hér heldur leyfa mönnum að sjá hér fyrir neðan það helsta sem gerðist í hverjum flokk fyrir sig.  Ef þú vilt niðurhjala keppnina og horfa á hana að þá geturðu náð í hana með að smella hér.  450cc flokkurinn er bara komin á netið og hinn kemur von bráðar.

Hér er 450 flokkurinn

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Hér er svo umfjöllun um 250 flokkinn

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

 
Linkur á Klausturskeppnina á RÚV
þriðjudagur, 06 júlí 2010
img_0355.jpgÉg hef verið afskaplega bensínlaus upp á síðkastið hvað varðar síðuna.  Ætla nú ekki að skæla meira yfir því en hér má finna link á hina stórskemmtilegu 9th Off-Road Challenge keppnina sem fór fram alls ekki fyrir löngu og var sýnt á RÚV.  Flott að sjá þetta svona í sjónvarpinu og vonandi verður áframhald á því.  En þú getur horft á keppnina með að smella hér.
 
Álfsnes - 2 umferð Íslandsmeistaramótsins
laugardagur, 03 júlí 2010

Í dag fer fram önnur umferð í Íslandmseistaramótinu í motocrossi og fer keppnin fram í Álfsnesi.  Því miður hefur orðið nokkuð um fráföll eðal ökumanna og má þar nefna Bjarka Sigurðsson sem viðbeinsbrotnaði á LEX Games, Einar "púki" sem handlegsbrotnaði í Englandi fyrir stuttu og svo einhverjir fleiri.  Einnig hafa ungu ökumenn okkur sem nýkomnir eru með bílpróf verið duglegir að þenja tíkurnar sínar með þeim afleiðingum að nokkrir af þeim hafa misst prófið.  Því miður fyrir þessa ökumenn að um leið og þú ert komin með ökuskírteini að þá gildir það yfir drullumallarann líka og ef þú missir prófið að þá máttu ekki hjóla og hvað þá keppa.  Þannig að þessu ungu herrar sem allt þykjast geta á þessum smátíkum sínum ættu kannski aðeins að hugsa málið og þá sérstaklega í ljósi þess að þeir eru hugsanlega með styrktaraðila sem missa sína kynningu þegar ökumaður situr heima.  Litlir rakkar gelta mest...

Jæja, hvað um það, tímatakan hefst kl.09:30 og fyrsta moto-ið hefst kl.11:35 í MX-B.  Síðan tekur við kvennaflokkurinn og MX Open 14:30.

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 61 - 72 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skoðanakönnun

Hvernig fannst þér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319132
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markaðstorg