JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Mikiđ um ađ vera hjá VÍR
föstudagur, 23 júlí 2010
img_5214.jpgÉg get ekki annað en dáðst af kraftinum í VÍR þessa dagana.  Ekki nóg með að búið sé að taka svæðið mikið í gegnum og koma upp aðstöðu fyrir starfsmenn og hin venjulega hjólamann, heldur var ráðist í að fá graffara í samvinnu við Leon í Mohawks til að skreyta gamla herspítalann.  Mun herspítalinn taka miklum stakkaskiptum á næstunni og verður gaman að sjá þegar búið er að skreyta hann allan.  Bóbó, Elín og restin af liðinu hafa verið þarna nánast dag og nótt og lætur árangurinn ekki á sér standa.  Ekki verra að það er alltaf tekið á móti manni með bros á vör og maður finnur að maður er velkominn á svæðið.  Svo víkjum aftur að óskyldu máli, að þá get ég ekki beðið eftir að sjá þessa tvo takast á, á morgun...:0) 
 
Endurtekin saga í AMA Outdoors
fimmtudagur, 22 júlí 2010

Um helgina fór fram sjöunda umferð í AMA Outdoors og fór keppnin fram í Millville.  Chad Reed hefur ekki gengið alveg sem skyldi það sem af er tímabilið og eru sögusagnir um það að hann sé jafnvel að íhuga að hætta í sportinu.  Andrew Short hefur verið að koma sterkar inn ásamt Ben Townley.  Christophe Pourcel hefur átt í erfiðleikum í síðari moto-inu í allt sumar og hefur bara náð að vinna einu sinni bæði moto-in sem af er þessu sumri og líta margir á það sem mikið veikleika merki af hans hálfu.  Sérstaklega þar sem heitasta tímabilið í USA er ekki byrjað, en ágúst og september eru heitari en júlí og hafa menn haft það á orði að hann eigi eftir að eiga í meiri erfiðleikum en hann hefur átt í hingað til.  Trey Canard hefur loksins verið að finna sig og líklegast er því að þakka að hann er farin að vinna með Tim Ferry sem gaf það út fyrir um tveim vikum að hann væri hættur að keppa.  Ég ætla nú ekki að röfla meira um þessa keppni en þeir sem vilja horfa á það helsta geta horft á það hér fyrir neðan.  Ef þú vilt ná þér í keppnina á netinu, að þá getirðu náð þér í 250 flokkinn með að smella hér og 450 með að smella hér.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

 

 
Drćm skráning í nćsta mót - hvar er unglingaflokkurinn?
miđvikudagur, 21 júlí 2010

img_4279.jpgVerð að segja að ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég renndi yfir keppendalista fyrir næsta Íslands-meistaramót í motocrossi sem fer fram á laugardaginn í Sólbrekku.  En eingöngu um áttatíu keppendur eru skráðir sem verður að teljast lélegt þar sem öllu jafna hafa verið að skila sér um eitthundrað keppendur á ráslínu í MX mótin.  Sérstaklega vekur léleg skráning í MX unglinga athygli mína og spurning mín er hvort að skemmtanalífið sé farið að taka sinn toll í unglingaflokknum.  Ég ætla ekki að draga úr þeim sem mæta og hlakka ég mikið til að sjá þessa sem hafa skráð sig, en mér bara finnst brottfall í unglingaflokknum vera orðið mjög áberandi þegar flokkurinn fer úr um þrjátíu keppendur niður í fimmtán.  Fjölmennasti flokkurinn á ráslínu er MX kvenna og virðist hann óðum vera að ná sér frá því að nokkrar af þeim brugðu sér í barneignafrí, en átján hafa skráð sig.  Jæja, hætta þessari neikvæðni en þeir sem eru ekki með eiga eftir að missa af skemmtilegu móti.  Hægt er að skoða allan keppendalistann með að smella hér.

img_4856.jpg

 
Löngu opnađ fyrir skráningu í Sólbrekku
sunnudagur, 18 júlí 2010
img_3887.jpgUm næstu helgi fer fram þriðja umferð í Íslands-meistaramótinu í motocrossi og fer keppnin fram í einni af elstu motocrossbraut landsins Sólbrekku hjá þeim höfðingum í VÍR.  Nokkuð er síðan að opnað var á skráningu á vef MSÍ og rennur skráningarfrestur út á miðnætti þriðjudaginn 20 júlí.  Nú þegar eru nokkrir búnir að skrá sig.  Síðustu ár hafa keppendur verið mjög ánægðir með keppnina í Sólbrekku og brautina en nú er spurning hvernig keppendur fíla brautina þar sem búið er að snúa henni við.  Mitt fólk er sátt við brautina eins og hún er í dag þó ég efist ekki um að VÍR menn séu í stöðugum pælingum um að gera betur.  Mikið hefur verið gert á svæðinu síðustu vikur og hefur aðstaðan á svæðinu tekið miklum stakkaskiptum til hins betra.  Á morgun stendur meira að segja til að hópur graffara mæti á svæðið og skreyti gamla herspítalann og bíð ég spenntur eftir að sjá breytingarnar.  En Leon í Mohawks á heiðurinn af því að graffararnir mæti á svæðið.  Að lokum vil ég ítreka það að skráningarfrestur í Sóbrekkurmótið rennur út á miðnætti 20 júlí.   
 
Liđin fyrir MXoN óđum ađ líta dagsins ljós
sunnudagur, 18 júlí 2010

mx3_mxon_start.jpgÓtrúlegt en satt, að þá er þetta sumar orðið rúmlega háflnað og senn fer haustið að renna í garð með tilheyrandi veðrabrigðum.  Persónlega finnst mér haustið fallegasti tími ársins og það gera litirnir sem myndast í náttúrunni.  Það sem fylgir haustinu er að þá hefst heimsmeistarakeppni okkar hjólamanna sem við höfum gefið skammstöfunina MXoN (MX of Nations).  Nú er hvert landið á fætur öðru að gefa út hverjir munu verða fulltúrar þeirra í þessari margrómuðu keppni en við hér klakanum bíðum með allar yfirlýsingar um slíkt þar til fjórar umferðir af fimm er lokið.  Verð þó að segja að Aron Ómarsson virðist vera öruggur í MX1 og Eyþór Reynisson sem MX2 ökumaður.  Hver skipar þriðja sætið í liðinu er ósvarað og mun sá keppandi væntanlega keyra í MX3. 

James Stewart virðist vera tilbúinn að koma sér aftur að því sem hann gerir best, þ.e. að hjóla, og hætta þessu raunveruleikaþátta bulli sem hefur virkilega sett hann niður að mínu mati.  En hann ætlar að taka þátt í fjórum keppnum að því virðist eingöngu til að eiga möguleika á að keppa fyrir hönd USA á MXoN.  Þó ég efi það ekki að hann sé hraður og eigi mjög góða möguleika að komast í lið Bandaríkjana að þá finnst mér persónulega þetta nokkuð hallærislegt þar sem gengið er, ef af verður, framhjá mönnum sem eru búnir að keppa allt árið á fullu en eru ekki að þessu "only for the show".  Að sumu leyti vill ég að hann verði valinn því mig dauðlangar að sjá hann keppa, þannig að þetta tosast á hjá manni.  Fyrir neðan má sjá listann yfir þá ökumenn sem hafa verið valdir og/eða eru í pípunum skv. vefmiðlum.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 49 - 60 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skođanakönnun

Hvernig fannst ţér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319182
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markađstorg