JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Mr. Stewart undirbýr endurkomu sína
miđvikudagur, 04 ágúst 2010
cox_4217.jpgHann James Stewart mun okkur motocross áhugamönnum til mikillar gleði keppa í Unadilla um næstu helgi í AMA Outdoors Motocross.  En hann hefur boðað endurkomu sína í sportið eftir meiðslin í supercrossinu í vetur.  Hér er myndband af kappanum og verð að segja að fáir líta jafnvel út á hjóli og þessi piltur.  Hreint út sagt lygilegt hvað hann er hraður.  Svona til að krydda þetta að þá eru smjattpatta sögur um að hann sé í viðræðum við KTM fyrir næsta ár.  Sel það ekki dýrara en ég keypti það, en mjög forvitnileg staða ef af yrði.  Hvað sem verður varðandi samning fyrir næstu ár að þá þarf drengurinn að einbeita sér að því að gera sem hann gerir best og það er að hjóla en hætta þessu raunveruleika sjónvarpsbulli.
 
Tćplega eitthundrađ keppendur skráđir
miđvikudagur, 04 ágúst 2010

imported_photos_00344.jpgUm næstu helgi fer fram fjórða umferð í Íslands-meistaramótinu í motocrossi og fer hún fram á Akureyri.  Brautin hjá KKA er hriklega flott og það eina sem vantar þar í dag er alvöru starthlið.  Einnig er hún mjög áhorfendavæn og sjá áhorfendur bróðurpartinn af brautinni og geta því fylgst vel með.  Það eru tæplega eitthundrað keppendur skráðir og er MX unglinga fjölmennastur með tuttugu og fjóra keppendur.  Síðan virðist MX-B vera að slá í gegn og eru farin að villast í þann flokk keppendur sem svo sannarlega gætu verið í t.d. MX2 eða MX Open.  MX2 er mjög fáliðaður í dag og eitthvað þarf að endurskoða þennan flokk frá grunni, þ.e. hvernig hægt er að tryggja það að unglingarnir haldi áfram upp og keppi í MX2.  Stelpurnar og 85 flokkurinn er fjölmennur eins og vanalega, en heildarlistann er hægt að sjá með að smella hér.

imported_photos_00552.jpg

 
Unglingalandsmótiđ verđur á Akranesi
laugardagur, 31 júlí 2010

Vegna kæru frá landeigendum í Borgarfirði verður motocrossið á Unglingalandsmóti UMFÍ fært frá nýrri braut í Borgarnesi til Akraness.

Þrátt fyrir stuttan fyrirvara hafa menn og konur á Akranesi brett upp ermar og gert Akrabrautina klára fyrir keppnina á mettíma. Rúmlega 30 ungmenni eru skráð til leiks og án nokkurs vafa verður mikið stuð á Skaganum á sunnudaginn.

Keppnin hefst á sunnudaginn klukkan 12 og hvetjum við alla til að koma við í Akrabraut og sjá okkar björtustu vonir keppa á landsmótinu.

Hér fyrir neðan má sjá dagskrána í heild:

Lesa meira...
 
Loksins langtímasamningur um Sólbrekkubraut
fimmtudagur, 29 júlí 2010

Tekið af motocross.is

img_3068-100-333x250.jpgBæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti þann 22.júlí s.l. samning við Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness um leyfi til tímabundinna afnota á Sólbrekkusvæðinu auk stækkunar. Samningurinn gildir til 31.maí 2017 með möguleika á framlengingu.

Samningurinn er sannkallaður tímamótasamningur fyrir VÍR því í mörg ár hefur brautin verið á skammtímaleyfum. Uppbygging á aðstöðunni við brautina mun eflaust taka kipp eins og menn hafa séð byrja í sumar enda hefur VÍR marga öfluga liðsmenn innanborðs.

Ég og mín fjölskylda óskum VÍR til hamingju og í huga manns koma bara eitt orð, "loksins"!  

 
Akureyri - tvímćlalaust ein besta braut landsins
fimmtudagur, 29 júlí 2010

img_6822.jpgEins og þeir vita sem eru vinir okkar hjóna á fésbókinni, að þá brugðum við okkur í stuttan skreppitúr til Akureyrar á þriðjudaginn.  Var farið af stað um tvöleytið renndum við í hlað á Akureyri upp úr kl.18 en þá var verið að vökva brautina á fullu.  Norðanmenn eru að gera allt rétt varðandi þessa braut, ekkert flókið dæmi með einverjum úðurum og læti heldur bara haugsuga og traktor og þetta svínvirkar.  Brautin er vökvuð skipulega tvisvar yfir daginn og var rakastígið í brautinni fullkomið.  Alla vega misstu sumir í ferðinni þvag yfir öllu saman...:0)  Það var hjólað til að verða tíu um kvöldið, öllu síðan hent inn í bíl og brunað í bæinn og renndum við í hlað heima rétt upp úr tvö um nóttina.  Já, snöggt var það en alveg þess virði og sérstaklega er maður miðað við í hvernig ástandi brautirnar á suðvesturhorninu hafa verið síðustu vikur.  Ég tók nokkrar myndir í ferðinni og má sjá þær með að smella hér

Næsta mót í Íslandsmeistaramótinu verður einmitt á Akureyri og eftir þá keppni verður tilkynnt hver verður valinn fyrir Íslands hönd til að keppa á MXoN.

img_7310.jpg

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 37 - 48 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skođanakönnun

Hvernig fannst ţér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319149
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markađstorg