JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Myndband frá ćfingum í Southwick
fimmtudagur, 19 ágúst 2010

Um næstu helgi fer fram tíunda umferð AMA motocross eða eins og gárungar segja, annar í Stewart...  Nú þegar eru nokkrir búnir að vera æfa sig grimmt frá því um síðustu helgi og greinilegt að menn hafa ákveðið að ekki væri eftir neinu að bíða og horfa á "replay" frá helginni á undan.  Hér er myndband og þar má sjá glitta í nokkra af þeim sem við þekkjum eins og Justin Barcia og meira segja sést í J-Law og spurning hvort að hann sé að reyna að taka sig saman í andlitinu eða hvort þetta sé eins og síðustu tvö ár, eitthvað tímabundið sprikl sem endar allt á sama veg.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

 
Flott myndband frá Unadilla
ţriđjudagur, 17 ágúst 2010

Hér er flott myndband, sem ég sá á morgan.is, af Unadilla.  Þar sést þegar Chistophe Pourcel tekur líka þessa góðu dýfu í moto 1, en þessi dýfa gæti átt eftir að reynast honum dýrkeypt og nú er spurninginn hvort hún muni verða úrslitavaldurinn fyrir árið 2010 eins og þegar hjólið hans bilaði í Southwick 2009.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

 
Endurocross - get ekki beđiđ...
mánudagur, 16 ágúst 2010

Nú er degi farið að halla og haustið læðist hægt og rólega inn með hverjum deginum sem líður.  Að meðaltali styttist dagurinn um 8 mínútur á dag, 4 mínútur að morgni og 4 að kveldi, þar til 21 desember en þá fer það á hin veginn þegar við græðum 8 mínútur á dag fram í miðjan júní.  En það þýðir bara eitt...  Endurocrossið mun líklegast fara aftur á dagskrá og get ég varla beðið eftir því þar sem þetta er action sem er mjög áhorfendavænt.  Hér er smá upphitun fyrir áhugasama og er þetta í Oklahoma USA og miðað við músíkina í myndbandinu að þá mætti halda að ég eða Binni Morgan hefðum komist í tónlistina.  Já, ekkert píkupop hér takk fyrir...:0)

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

 
Endurkoma James Stewart
mánudagur, 16 ágúst 2010

_s2f8333.jpgÁ laugardag fór fram níunda umferð AMA Outdoors motocrossi og fór þessi keppni fram í Unadilla.  Mikið "hype" er búið að vera fyrir þessa keppni því James Stewart boðaði endurkomu sína í utanhús motocross og var það eins og við manninn mælt, það varð bein útsending um leið í Bandaríkjunum.  Fyrir mótið var Ryan Dungey nánast búin að vera ósigrandi, eða alveg frá því í fyrsta mótinu en gagnrýnendur Ryan Dungey hafa legið honum á hálsi að hann hefði í raun aldrei þurft að klást við alvöru stjörnunar þar sem þær hafa verið frá vegna meiðsla og hafa sumir gengið svo hart fram að í raun og bent á að ef ekki hefði komið til vélarbilunnar í Southwick í fyrra hjá Cristophe Pourcel að þá hefði hann ekki orðið AMA Outdoors meistari í 250 cc flokknum í fyrra.  Menn hafa haldið áfram með sömu rök og bent á að í supercrossinu duttu út James Stewart, Chad Reed og Ryan Villopoto vegna meiðsla og það sem af er hefur Ryan Dungey þurft að díla við minni spámenn.  Þannig að endurkoma James Stewart í motocrossi frá því sumarið 2008 var beðið með mikilli eftirvæntingu og þá myndi væntanlega mörgum spurningum varðandi Ryan Dungey verða svarað. 

En það voru fleiri en James Stewart sem stigu á stokk í Unadilla.  Clement Desalle ákvað að verða með og er þetta í annað sinn sem hann keppir í henni Ameríku.  En Clement Desalle er í öðru sæti í MX1 í FIM MX GP á eftir Tony Cairoli og hefur staðið sig fantavel í sumar.

Ef þú vilt ekki vita úrslit, að þá skaltu ekki lesa lengra en þú getur sótt þér torrent á 450cc flokkinn með að smella hér og hér á 250cc flokkinn.

Lesa meira...
 
Er Ducati á leiđ í drullumalliđ?
sunnudagur, 15 ágúst 2010

Á netið eru farnar að leka á netið myndir af nýju hjóli, sem er svo sem ekki frásögum færandi, nema ef ekki væri að þetta hjól virðist vera á teikniborðinu hjá Ducati.  Ducati hefur verið þekkt fyrir frábær götuhjól og flotta hönnun, svona eins og Ferrari hjólana.  Spurning hvort þeir sé að sjá sér leik á borði og sjá möguleika á nýjum markaði með að hefja framleiðslu á þessu hjóli fyrir okkur drullumallinu.  Hvað sem líður, að þá sker þetta hjól sig nokkuð úr og væri virkilega gaman að sjá þetta í "action".

does-this-ducati-exist-we-hope-so.jpg

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 25 - 36 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skođanakönnun

Hvernig fannst ţér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319070
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markađstorg