JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Skemmtilegt bikarmót í gćr til styrktar MXON förum
sunnudagur, 29 ágúst 2010

img_1684.jpgÍ gær fór fram í Álfsnesi bikarmót til styrktar íslenska landsliðinu í motocrossi sem fer á næstum vikum til Denver Colorado til að taka þátt í MXON.  Rúmlega sextíu keppendur sáu ástæðu til að mæta á svæðið til að skemmta sér og öðrum ásamt því að leggja góðu málefni lið.  Óhætt er að segja að keppendur sem og áhorfendur skemmtu sér mjög vel og var oft mjög fyndið að sjá keppendur spreyta sig við óhefðbundnar þrautir í miðju moto-i eins og t.d. dansa, taka armbeygjur, hlaupa í kringum hjólin og veifa áhorfendum svo eitthvað sé nefnt.  MXON fararnir, Hjálmar, Eyþór og Gylfi þurftu að ræsa við aðstæður sem þeir eru aldeilis óvanir.  Nokkrir keppendur þurftu að ræsa með að snúa bökum í ráshliðin.  Keppnisstjóri sá til þess að menn þyrftu að vera á tánum með að keyra ekki of hratt eða sýna of góða taxta í brautinni því þá var þeim refsað með fyrrgreindum hætti.  Að lokum var blandaður enduro-motocrosskeppni þar sem keyrt var í 45 mínútur og var dregið í lið þar sem tveir og tveir voru saman.  Síðan keyrði hver ökumaður tvo hringi áður en hann skipti við félaga sinn.

Eins og ég sagði í upphafi að þá var þetta afar vel heppnuð keppni og skemmtu allir sér mjög vel þennan dag.  Veðrið var frábært, brautin eins og Álfsnes getur orðið hvað best og er þetta uppskrift sem getur ekki klikkað.  Tók nokkrar myndir og er hægt að sjá þær með að smella hér.

img_2498.jpg

 
Listi keppenda fyrir MXON ţetta áriđ
laugardagur, 28 ágúst 2010
mx3_mxon_start.jpgListinn yfir keppendur á MXON komin út á netið.  Margir vefmiðlar eru nú að vonast til að listinn komi eitthvað til að breytast og er þá sérstaklega átt við lið Ítalíu sem er að henda út tveimur af sínum allra bestu ökumönnum út af einhverju skrifræðis kjaftæði vegna auglýsinga liða sem í raun borga brúsann undir þessa ökumenn.  Á meðan önnur lönd leyfa styrkaraðilum að vera á búningum, að þá þarf Ítalía að skera sig úr fjöldanum.  Já, hvað getur maður sagt um landið sem er búið að setja reglur um allt sem hægt er að setja reglur um og nú er meira að segja bannað að kyssast á almanna færi og vera ber á ofan á Ítalíu...:0)  Fyrir neðan má sjá allan listann eins og hann lítur út í dag og má þar sjá nöfn okkar manna sem fara út fyrir okkar hönd.
Lesa meira...
 
MotoSport.is í yfirhalningu nćstu daga
fimmtudagur, 26 ágúst 2010
Vefsíðan MotoSport.is er að fara í gegnum ákveðna yfirhalningu og mun hún breytast að einhverju leyti næstu daga.  Við það getur komið smá hökt á síðuna sem þýðir að fréttir sem búið er að setja inn og myndir geta horfið af síðunni.  Eftir þessa yfiralningu mun ég eiga auðveldara með að setja inn margmiðlunarefni eins og t.d. myndbönd frá öðrum og einnig mun myndakerfið fá marg umræddar endurbætur.  Það þýðir að eitthvað af myndunum mun detta út og verða ekki settar inn aftur. 
 
James Stewart keppir ekki meira utanhús í ár í AMA mótaröđinni
fimmtudagur, 26 ágúst 2010

cx2_1380.jpgNú fyrir stundu tilkynnti James Stewart og lið hans San Manuel að þeir hefðu ákveðið að hætta frekari keppni utanhús í ár.  Þrátt fyrir að James Stewart hafi náð besta tíma í tímatökunni fyrir Unadilla um og hlutirnir litu ágætlega út í fyrra moto-inu á laugardaginn að þá kom það berlega í ljós að James Stewart var ekki orðin nógu góður eftir meiðslin til að keppa á þessu "level-i".  Því sé liðinu og James Stewart nauðugur kostur einn að draga sig til baka úr AMA Outdoors mótaröðinni, eða það sem eftir lifir af henni.  Hér má sjá yfirlýsingu James Stewart og lið hans San Manuel.  

 

Lesa meira...
 
Útskýringar Arons á fjarveru frá MXON
miđvikudagur, 25 ágúst 2010

img_3338.jpgÁstæðan fyrir ákvörðun minni um að fara ekki út með landsliðinu þetta árið er ekki mjög flókin. Ástæðan er einfaldlega sú að ég er nýbúin að ráða mig í vinnu og er um leið að hefja dýrt nám, og vil því ekki setja mig í þá stöðu að eiga þá hættu á að bæta við mig reikningum sem gætu skapast eftir ferðina. Ég er búin að fara í síðustu þrjú skipti á Mxon fyrir hönd Íslands, og er það mín reynsla að þó svo að búið sé að safna styrktarfé fyrir ferðinni að þá er alltaf eitthvað sem hefur þurft að taka úr eigin vasa. Ákvörðun mín ákvarðast þó ekki eingöngu vegna þessa þó svo að það spili vissulega inní, þar sem að nú þegar er búið að gera kostnaðaraáætlun fyrir ferðina og er nú þegar nánast komið nógur peningur sem ætti að geta sent allt liðið út nánast að kostnaðarlausu.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 13 - 24 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skođanakönnun

Hvernig fannst ţér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319181
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markađstorg