JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Ryan Villopoto út í allt sumar
föstudagur, 28 maí 2010

Þá er það staðfest.  Ryan Villopoto er úti í allt sumar og mun því ekki taka þátt í AMA Outdoors í sumar.  Hugsanlegt er að hann keppi í síðasta móti ársins, svona til að sjá hvort hann sé á réttri leið fyrir supercross tímabilið en annars er hann ekki bjartsýnn á að hann nái til baka í tíma fyrir síðasta mótið.  Það er geysilegur söknuður af þessum frábæra ökumanni í AMA mótaröðina.  Vonandi nær hann sér mun fyrr en spár gera ráð fyrir.

ryan_villopoto_wins_2010.jpg

 
Insúlín penni fannst í bílnum
föstudagur, 28 maí 2010
Hefur einhver tapað bláum insúlín penna?  Ég fann í bílnum okkar eitt stykki insúlín penna og efast ég ekki um að sá sem á pennann hafi sárvantað hann þegar á þurfti að halda.  Við þekkjum engann sem notar slíkt, þannig að þetta hefur einhver óvart skilið eftir í bílnum.  Ef þú kannast við að hafa tapað insúlín penna, að þá geturðu haft samband við mig í netfanginu Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það og nálgast hann hjá mér.
 
Langasandskeppnin haldin 12 júní
fimmtudagur, 27 maí 2010

Tekið af motocross.is

VÍFA hefur ákveðið að Langasandskepnin verði haldin 12. Júní. Ástæður fyrir því hversu snemma Beach Racið er þetta árið mun vera sú að flóð og fjara er óhagstæð í haust.

VÍFA biður alla vinningshafa frá því í fyrra að skila inn bikurum til Magga í Nítró. Gott væri ef það kláraðist innnan viku.

Nánari upplýsingar um keppnina koma bráðlega

img_2168.jpg

 
Flott myndbönd af 2011 árgerðinum af Kawasaki KX450F og KX250F
miðvikudagur, 26 maí 2010

Hér má sjá flott myndbönd af nýju Kawasaki KX450F árgerð 2011 og KX250F.  Gatli!  Sá þig fyrir mér dreyma drauminn sem Dean Wilson dreymir í þessu myndbandi...:0) 

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Lesa meira...
 
Myndband frá breska meistaramótinu - eingöngu tvígengishjól
miðvikudagur, 26 maí 2010

Þetta er nú eiginlega bara sett inn fyrir hann Jóa Kef...:0)  Hér er myndband af meistarmóti sem fer fram í Bretlandi þar sem eingöngu er heimilt að keppa á tvígengis hjóli (2T).  Það væri gaman að koma á sérstökum 125cc flokki hér heima, en því miður eru sjálfsagt allt of fáir hér heima til að geta gert slíkt en samt, það kitlar mig óskaplega að sjá t.d. aldurshópinn 14 - 16 ára keppa eingöngu á 125cc tvígengis.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 109 - 120 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skoðanakönnun

Hvernig fannst þér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319164
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markaðstorg