JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Er ekki allt í lagi heima hjá ykkur?
mánudagur, 07 apríl 2008

Einhverjir óprúttnir náungar á motocrosshjólum/enduro og fjórhjólum höfðu fyrir því að hjóla inn í Stapafell, í stað þess að hjóla í Sólbrekku, og unnu skemmdarverk í leiðinni á vinnuskúrum o.fl.  Mér er það gjörsamlega hulin ráðgáta hvað menn fá eiginlega út úr slíku bulli og hvað það er í mönnum sem kallar á slíkar hvatir að þurfa að stunda skemmdarverka starfsemi.  Eini ávinningurinn er hjólamenn og aðrir aðstandendur fá á sig óorð sem endar yfirleitt á því að þeir sem eru að gera þetta eins og menn, rekast á lokaðar dyr þegar við þurfum á aðstoð að halda eða íviljanir hjólamönnum til handa.  Ekki nóg með það, heldur eru forsvarsmenn félaga og brauta að svara fyrir syndir, bæði símleiðis og skriflega, sem þeir alls ekki drýgðu.  Þetta er vægast sagt ömurlegt og ykkur, sem þetta gerðuð, til mikillar vansa.

 
19 umferð í Supercrossinu, sem fór fram í Dallas
sunnudagur, 06 apríl 2008

Myndin fengin af láni frá TransWorldMX tímaritinuNú er nýafstaðin 19 umferð supercrossins, sem fór fram í Dallas.  En nokkuð gekk á í Lites flokknum og gáfu undanrásirnar tóninn hvað það varðar.  En Josh Crant sigraði nokkuð örugglega í sínum flokk í undanrásunum og Ryan Villopoto er greinlega allur að komast í sitt gamla form og sigraði í sínum flokki í undanrásunum.  Það sem vakti athygli var að Trey Canard þurfti að taka þátt í LCQ, sem hann svo sigraði í, til að öðlast þátttöku rétt.

Josh Crant náði "holeshot" eftir ræsingu í aðalkeppninni í Lites flokknum, en fast á hæla hans fylgdu Ryan Villopoto og Martin Davalos.  Þannig að einvígið frá síðustu keppni á milli þeirra Josh Crant og Ryan Villopoto virtist ætla að endurtaka sig.  En Ryan blokkaði Josh Crant snyrtilega í öðrum hring og náði forystu sem hann hélt til loka keppninnar.  Trey Canard lenti í tjóni í byrjun og var allt í einu í átjánda sæti.  Trey Canard sýndi svo sannarlega hvað í honum býr, þar sem að það er langt síðan að menn hafa séð þvílíka keyrslu eins og hann sýndi þetta kvöld.  Var eins og hinir ökumennirnir væru nánast kyrrstæðir á tímabili svo mikill var hraðamunurinn og náði hann upp í fjórða sæti áður en keppnin var öll.  Telja menn að hann hefði komist ennþá ofar ef ekki hefði verið tímaskortur.

Ef þú vilt ekki sjá úrslitinn í stóra flokknum, að þá skaltu ekki lesa lengra...

Lesa meira...
 
Endurtekning, endurtekning.. Enn ein ferðin í Sólbrekku
sunnudagur, 06 apríl 2008

Margrét í Sólbrekku á hjólinu hennar mömmu sinnarÞað er á mörkunum að maður setji þetta niður á blað að fjölskyldan hafi brugðið sér í Sólbrekku, þar sem við höfum svo sem ekki farið neitt annað síðustu daga.  Enda engar aðrar brautir opnar ennþá, nema jú Þorlákshöfn.  Óliver ákvað að sitja heima í dag og spila körfubolta með Ísak vini sínum.  En ég mundaði myndavélina, as usual, á meðan mæðgurnar hjóluðu.  Annars fer þetta vonandi að koma hjá mér með mjöðmina þar sem JóiKef setti mig strax í tíma hjá sér í fyrrmálið og er það gott þar sem ég hafði ekki sjálfur rænu á að gera slíkt.  Tók ekki eins margar myndir og síðast þar sem birtan var ekki eins góð og er bein slóð: http://www.motosport.is/index.php?option=com_zoom&Itemid=49&catid=12

Annars frétti ég af því að einhver hafði reynt fyrir sér í Álfsnesinu í dag.  Gaman væri að vita hvort þetta sé nú ekki ein skítaklessa eins og venjulega um þetta leyti.  Reynir segir að brautin þurfi tvær vikur frostlausar áður en hægt sé svo mikið sem hugsa til hennar. 

 
Sorrý Sindri, við fórum í Sólbrekku í dag..:o)
sunnudagur, 06 apríl 2008
Gulli í stuði með guðiÞað liggur við að maður segi bara, "sorrý Sindri", en það var ákveðið á síðustu stundu að fara í Sólbrekku en ekki Þorlákshöfn eins og fólk var búið að tala sig saman.  Veit að brautin í Þorlákshöfn var slétt og fín, en hugurinn er við fyrsta mótið sem verður í Sólbrekku.  Hvað sem því líður að þá var mikill fjöldi samankominn í Sólbrekku og í raun mun meiri heldur en ég bjóst við sökum þess hversu brautin er orðin slitinn á hluta.  En hún er samt ennþá merkilega góð og þá sérstaklega uppstökkin miðað við áganginn frá því að hún komst í gagnið.  Greinilegt er að hjólafólkið er að koma út úr hýðinu og var maður að sjá andlit sem maður hafði varla séð í braut frá því síðasta haust.  Stemmingin var í samræmi við það og mikill kátína á meðal fólks.   
Lesa meira...
 
Skítkalt og gatslitinn braut
föstudagur, 04 apríl 2008

Óliver í sínum fíling á YZ85L hjólinu sínu sem hann hreinlega dáirBrugðum okkur í Sólbrekka í seinna lagi í dag og vorum komin á svæðið rúmlega sex.  Það var frekar kalt á svæðinu og fáir á ferli.  Enda kom á daginn að brautin var á köflum frosin og síðasti kafli brautarinnar er orðin gatslitinn og klettarnir standa berir upp úr.  Enda sprakk á þremur hjólum af fimm sem voru á svæðinu á meðan við vorum þarna.  Mesta furða hvað pallarnir eru miðað við áganginn síðustu daga, en nú er komin tími til að fólk taki sig saman áður en það fer af stað í fyrramálið og labbi hring og týni úr brautinni.  Við hjónin vorum að týna úr brautinni í kvöld og það sá varla högg á vatni. 

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 Næsta > Endir >>

Úrslit 1069 - 1080 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skoðanakönnun

Hvernig fannst þér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2308185
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markaðstorg