JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Marvin Musquin heimstmeistari í MX2
sunnudagur, 05 september 2010

musquin_waves_in_bulgaria_20101.jpgMarvin Musquin tryggði sér heimstmeistara-titilinn annað árið í röð í MX2 í FIM MX GP mótaröðinni.  En þessi frábæri ökumaður hefur nánast keyrt óaðfinnanlega í sumar.  Helgin byrjaði þó ekki vel hjá honum þar sem hann datt mjög illa í undanrásunum í gær og varð ekki nema sjöundi sem þykir ekki merkilegt á þeim bæ.  Marvin Musquin byrjaði svo vel í fyrsta moto-inu en fljótlega tók Ken Roczen framúr og sigur var það eina sem myndi duga fyrir Ken Roczen og helst að einhver kæmi upp á milli þeirra.  Ken Roczen virtist ætla að verða að ósk sinni þegar Gautier Paulin varð komin í annað sætið í fyrra moto-inu, en þá gerðist það sem hefur gerst tvívegis í sumar.  Suzuki hjól Ken Roczen gaf upp öndina og hann gat ekki lokið keppni.  Þar með gat enginn nálgast Marvin Musquin stigalega séð og hann krýndur FIM meistari.  KTM á því í fyrsta sinn meistara í MX kvenna, MX1 og MX2 í FIM mótaröðinni sem verður að teljast frábær árangur hjá þessu liði sem svo sannarlega hefur sett standardin hærra en nokkurt annað lið í motocrossi síðustu ár.  Var hrikalega hrifin af því hvernig þeir tveir, Ken Roczen og Marvin Musquin spjölluðu saman eftir að ljóst varð að Ken Roczen varð úr leik.  Mjög íþróttamannsleg framkoma og greinlegt að þarna var endalaus virðing á milli þeirra tveggja, enda kepptu þeir "clean" í allt sumar. 

Glement Desalle mun sjálfsagt vilja gleyma þessari helgi sem fyrst en allt gekk á afturfótunum hjá honum þar sem hann krassaði hrikalega í undanrásunum í gær með þeim afleiðingum að hann braut á sér framstellið (tennurnar).  Menn áttu ekki von á honum í dag á ráshliðið en hann harkaði þetta af sér og lenti aftur í svaka krassi við ræsingu.  Úff, þetta var erfið helgi fyrir Clement Desalle sem er ávallt að vinna sér inn meiri virðingu hjá mér þessa dagana.

 
Kári Jónsson Íslandsmeistari í ECC 2010
sunnudagur, 05 september 2010

img_4943.jpgKári Jónsson tryggði sér Íslands-meistaratitilinn í ECC í gær en keppnin var haldin algjörlega á nýju svæði, á Jaðri rétt hjá Flúðum, og þóttist takast vel.  Kári handabrotnaði um verslunarmanna-helgina í Eyjum, þegar hann bauðst til að klappa einhverjum þar og tók þetta í gær á seiglunni því ekki var hann orðin nógu góður í hendinni.  Já, það getur stundum borgað sig að hugsa sig tvisvar um áður en maður bíður öðrum einstaklingi upp á spítalavink, því áður en maður veit af er maður á leiðinni þangað sjálfur...:0)  Jafnframt voru krýndir til Íslandsmeistara einstaklingar sem hafa ekki áður landað titli í þessu sporti og má þar nefna Guðfinnu Pétursdóttir, Ingvi B. Birgisson, Guðbjartur Magnússon og Magnús G. Helgason svo einhverjir séu nefndir.  Óska öllum Íslandsmeistarurum til hamingju með árangurinn í ár en fyrir neðan má sjá listann yfir röð sigurvegara í ár.  Ég mætti ekki á svæðið sökum leti og tók því engar myndir frá þessari keppni. 

Lesa meira...
 
Ken Roczen að ganga til liðs við KTM?
sunnudagur, 05 september 2010
roczen_mxgp6e.jpgJa, maður veit varla hvernig á manni stendur veðrið þessa dagana þegar kemur að KTM.  Ekki nóg með það að þeir tóku Evrópu með trompi fyrir þetta tímabil og hafa nú nýlega ráðið goðsögn í motocrossinu í henni Ameríku, Roger DeCosta.  Heldur nú eru sterkar sögusagnir að Ken Roczen sé að ganga í raðir KTM manna og þó það eitt og sér sé mjög merkilegt, að þá segir sagan að hann sé að fara með Marvin Musquin til Ameríku til að keppa í AMA Outdoors þar á næsta ári.  Já, sæll!  Á sama tíma eru sagnir á peningamörkuðum að indverski mótorhjólaframleiðandinn Baja, sé að auka hlut sinn í KTM vegna bágrar fjárhagsstöð og þetta sé ekki lengur austurrískt fyrirtæki heldur indverskt.  Get samt ekki annað en dáðst að KTM og fyrir þá fjárfestingu sem þeir eru að framkvæma í sportinu.  Miklar nýjungar í gangi og vilja greinlega bara það besta.  Eru greinilega að leggja allt undir og hafa greinlega tekið upp stefnu Sykurmolana sem var "heimsyfirráð eða dauði"... 
 
Staðfest, Roger Decosta til KTM
sunnudagur, 05 september 2010

Hér má sjá blaðayfirlýsingunni þegar KTM staðfestir orðróminn um ráðningu Roger Decosta.  KTM er hreinlega að hreinsa upp alla þá bestu og mun hann stýra Ameríkuliði KTM.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

 
Næstsíðustu umferð AMA Outdoors lokið
sunnudagur, 05 september 2010

Í gær fór fram næstsíðasta umferð ársins í AMA Outdoors en fyrir mótið var Ryan Dungey búin að tryggja sér titilinn í 450 flokknum.  Aldeilis frábær frammistaða hjá þessum vinnusama dreng og mættu margir taka sér hann til fyrirmyndir hvað dugnað snertir.  Já, það er margt hægt að læra af Ryand Dungey sem hefur í stað þess að vera yfirlýsingagleðin uppmáluð, að þá hefur hann farið eftir þeirri stefnu "talk less, work harder" sem hefur skilað því sem hann er í dag.  Margir hér heima mættu svo sannarlega taka þetta til sín eða eins og Keli vinur minn orðar stundum svo nett, "put your money where your mouth is".  Hvað um það, hér má sjá það helsta sem fór fram í Steel City sem var fyrir margar sakir nokkuð söguleg.  Fyrst 250cc flokkuinn og fyrir neðan 450 flokkurinn.  Ef þú vilt ekki vita neitt og vil ná í þetta á netið, að þá er hér linkur á 250 flokkinn og 450 flokkurinn hér.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 12 af 1118

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skoðanakönnun

Hvernig fannst þér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319127
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markaðstorg