Skráning fyrir Klausturskeppnina Prenta Rafpóstur
ţriđjudagur, 09 mars 2010

img_4145.jpgNú eru rétt tæpur sólahringur í það að opnað verður fyrir skráningu á Klausturskeppnina og nú þegar er komin mikill spenna á meðal hjólamanna um að ná sér í góða stöðu á rásspóli.  En reglan gildir, "fyrstir koma, fyrstir fá".  Skráning fer í loftið um kl.22:00 þann 10 mars á vef VÍK eða annað kvöld.  En það er eitt sem fólk þarf að vera búið að gera áður en það getur skráð sig í keppnina og það er að vera búið að ganga frá félagsgjöldum í sitt félag/klúbb.  Þetta er lykilatriði og um að gera að ganga frá þessu sem allra, allra fyrst, svo þetta verði ekki flöskuhálsinn í skráningu.  Glatað að hafa hugsanlega geta fengið rásnúmer 1 en fá rásnúmer 150 þar sem þú gast ekki lokið við skráningu vegna vesen með staðfestingu um félag.  Ef þú ert í VÍK, að þá geturðu gengið frá skráningu með að smella hér.  Annars er um að gera að hafa samband strax við sitt félag og klára félagsgjaldið í einum grænum hvelli.  Ekki klikka á þessu smáatriði.

 
< Fyrri   Nćsti >