|
David Knight úr leik í Florida |
|
|
|
laugardagur, 06 mars 2010 |
David Knight, sem hefur unnið hverja keppnina eftir aðra í undirbúningi sínum fyrir FIM endurcross mótaröðinni sem hefst innan skamms, var úr leik í Florida í dag. David Knight leiddi víst þessa keppni, nafnið gjörsamlega stolið úr mér núna, en lenti í því að fá vatn inn á vélina þegar hann fór full hratt í vatn. Náði hann ekki hjólinu aftur í gang og þar með var það búið. Endar þar með sigurgöngu David Knight sem hefur óðum verið að finna sitt gamla form og hefur verið nánast ósigrandi í öllum þeim keppnum sem hann hefur tekið þátt í á undirbúnings tímabilinu.
|