|
Níunda umferð AMA supercrossins fer fram í nótt í Daytona |
|
|
|
laugardagur, 06 mars 2010 |
Núna, á meðan ég skrifa þetta, að þá er byrjuð tímataka og æfingar fyrir níunda umferð AMA supercrossins sem fram í Daytona Florida. Keppnin er svo sem ekki það eina sem fer fram þarna þar sem þetta er hin stóra "bike weekend" í Florida og er þetta víst algjört ævintýri að verða vitni að því. Víkjum þá aftur að supercrossinu, en J-Law krassaði víst svakalega á æfingum í dag. Stóra fréttin í supercrossinu er að Chad Reed er með og rétt í þessu var hann að setja hraðasta tímann. Já, hann er seigur hann Chad Reed og ótrúlegt að vita til þess að maðurinn sem er nýkomin til baka eftir meiðsli og verið fjarverandi sex keppnir skuli svo setja hraðasta hring í tímatökunni. Brautin er víst mjög erfið enda hönnuð af Ricky Charmichael sjálfum Hægt er að fylgjast með tímum frá keppninni með því að smella hér.
|