|
9th Transatlantic Off-Road Challenge - stađsetning komin á hreint |
|
|
|
miđvikudagur, 03 mars 2010 |
|
Nú er rétt um vika þar til opnað verður fyrir skráningu á Off-Road Challenge keppnina sem á að fara fram á Klaustri. Já, eftir Klausturskeppnin "is back on the menu, guys!" Nú er loksins hægt að upplýsa hvað staðurinn heitir, þ.e. jörðin þar sem þetta verður haldið, en það er Ásgarður sem er næsti bær við Efri-Vík. Ég hef hjólað á þessari jörð haustið 2008 og þetta er hreint út sagt geðveikt svæði. Skora á alla að fara að huga að gistingu. Tjaldstæði verður sett upp á svæðinu sjálfu ásamt hreinlætisaðstöðu. Frekari upplýsingar verða birtar um leið og þær berast og mun nánari útlisting verður á vef VÍK, motocross.is, þegar nær dregur.
Ég veit ekki með ykkur, en ég get vart beðið eftir þessari keppni. Þetta á eftir að verða svo geðveikt, að það hálfa væri nóg.
|