JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Úrslit í Maxxis British MX mótaröđinni Prenta Rafpóstur
mánudagur, 01 mars 2010

zach_osborne09.jpgÞað var keppt á fleiri stöðum en á Ítalíu og í henni Ameríku um helgina og meðal annars hófst breska MX mótaröðin þessa helgi.  Nokkur í FIM MX GP mótaröðinni eru með staðsetningu á Bretlandi þó bróðurparturinn dvelji langtímunum saman í Belgíu.  Þetta var fyrsta umferðin eins og áður segir og er skemmst frá því að segja að Zach Ousborne sigraði í MX2 og  Brad Anderson vann MX1.  Zach Ousborne var fyrir því óhappi nánast í upphafi tímabilsins í fyrra að meiðast og var nánast úr leik allt síðasta tímabil.  Það er því ánægjulegt að sjá piltinn koma sterkann inn en hann vann meðal annars fyrstu FIM MX GP keppnina í fyrra sem fór fram í Tyrklandi.  Fyrir neðan má sjá úrslitinn í Maxxis British MX Championship.

Groep Maxxis MX2
ClassificationClassification
Pos Nr. Naam Totaal punten R1 R2 R3
1 338 Zac Osbourne 68 18 25 25
2 45 Jake Nicholls 59 15 22 22
3 50 Martin Barr 56 20 16 20
4 227 Kristian Whatley 54 16 20 18
5 555 Graeme Irwin 53 25 12 16
6 44 Elliot Banks-Browne 52 22 18 12
7 51 Alan Keet 41 12 14 15
8 119 Mel Pocock 38 14 11 13
9 68 Shane Carless 33 10 13 10
10 91 Matiss Karro 32 13 15 4
11 2 Luke Hawkins 31 11 9 11
12 272 Neville Bradshaw 28 7 7 14
13 62 Joe Dark 22 9 10 3
14 66 Lewis Tombs 19 3 8 8
15 121 Bryan MacKenzie 12 6 -- 6
 
Groep Maxxis MX1
ClassificationClassification
Pos Nr. Naam Totaal punten R1 R2 R3
1 1 Brad Anderson 57 14 25 18
2 8 Gareth Swanepoel 56 11 20 25
3 777 Evgeny Bobryshev 55 25 22 8
4 71 Stephen Sword 50 12 18 20
5 85 Jason Dougan 46 15 16 15
6 31 Alex Snow 45 18 14 13
7 7 Gordon Crockard 42 13 15 14
8 24 Tom Church 41 9 10 22
9 16 James Noble 32 16 5 11
10 23 Carl Nunn 30 7 7 16
11 30 Ben Lamay 27 8 13 6
12 11 Jamie Lewis 26 6 11 9
13 111 Ray Rowson 26 20 6 --
14 40 Jordan Rose 24 -- 12 12
15 25 Jamie Law 22 10 8 4
 
< Fyrri   Nćsti >

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skođanakönnun

Hvernig fannst ţér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319151
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markađstorg