JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Fyrsti ósigur Antonio Carioli í ár Prenta Rafpóstur
mánudagur, 01 mars 2010
philippaerts_2010_massimo_image.jpgUm helgina fór fram fyrsta umferðin í ítalska motocross mótaröðinni og eru þar saman komnir oft þeir best í sínum liðum sem keppa í FIM MX GP mótaröðinni.  Er þetta orðin árlegur hluti af undirbúningi þessara liða að láta keppendur frá sér taka þátt í mótum í Ítalíu, Belgíu og víðar.  Úrslit helgarinnar urðu þannig að David Philippaerts vann fyrsta mótið með fullt hús stiga í MX1 og þar með er fyrsti ósigur Antonio Cairoli á nýja KTM 350 SX-F staðreynd, sem varð að sætta sig við annað sætið.  David Philippaerts leit víst alveg ótrúlega vel út og virðast liðið hans vera búnir að fínstilla hjólið fyrir hann þó hann segi að þeir eigi meira inni.  Liðsfélagi David Philippaerts, Gauthier Paulin, sigraði svo í MX2 með fullu húsi stiga og stoppaði þar með einnig sigurgöngu KTM liðsins á undirbúnings tímabilinu.  Það sem vakti mikla athygli í MX2 var sterk innkoma nýliðans í MX2 hann Christophe Charlier sem endaði í öðru sæti.  En þessi drengur kom upp í MX2 úr unglingaflokki þar sem hann varð FIM meistari í fyrra.  Gauthier Paulin er á Yamaha YZ250F ásamt Christophe Charlier og David Philippaerts er á Yamaha YZ450F.  Fyrir neðan má sjá heildarlistann yfir sigurvegara í sínum flokki.

MX1 overall

1 19 PHILIPPAERTS DAVID ITA YAMAHA 25 25 50

2 222 CAIROLI ANTONIO ITA KTM 22 22 44

3 9 DE DYCKER KEN BEL YAMAHA 20 16 36

4 702 ALBERTSON JIMMY USA HONDA 16 18 34

5 39 GUARNERI DAVIDE ITA HONDA 18 15 33

6 13 MONNI MANUEL ITA YAMAHA 15 13 28

7 15 BILL JULIEN SUI APRILIA 13 12 25

8 6 COPPINS JOSHUA NZL APRILIA 9 14 23

9 40 LEOK TANEL EST HONDA 20 20

10 23 SALVINI ALEX ITA HUSQVARNA 14 6 20

11 32 PRIEM MANUEL BEL APRILIA 8 11 19

12 52 WALKNER MATHIAS AUT KTM 11 7 18

13 21 CEPELAK JIRI CZE YAMAHA 10 8 18

14 134 NEGUERBAUER FILIP GER KAWASAKI 7 10 17

15 37 KRESTINOV GERT EST KTM 5 9 14

16 171 SODERSTROM TOM GBR YAMAHA 12 12

17 511 DAMI STEFANO ITA HONDA 6 5 11

18 101 KADLECEK MICHAEL CZE SUZUKI 3 2 5

19 5 COMPAGNONE FELICE ITA HONDA 4 4

20 48 SCHMIDINGER ANDREAS AUT HONDA 4 4

21 36 BONINI MATTEO ITA YAMAHA 3 3

22 99 LOMBRICI ROBERTO ITA SUZUKI 2 2

23 289 IRT MATEVZ SLO HUSQVARNA 1 1

24 201 SMOLA FRANTISEK CZE SUZUKI 1 1

 

MX2 overall

1 21 PAULIN GAUTHIER FRA YAMAHA 25 25 50

2 430 CHARLIER CHRISTOPHE FRA YAMAHA 22 22 44

3 27 SCHIFFER MARCUS GER KTM 16 20 36

4 77 LUPINO ALESSANDRO ITA YAMAHA 14 18 32

5 121 CHIODI ALESSIO ITA SUZUKI 18 14 32

6 41 PELLEGRINI ANGELO ITA SUZUKI 15 16 31

7 19 SMITKA PETR CZE KTM 9 12 21

8 153 MADDII MARCO ITA SUZUKI 12 9 21

9 878 PEZZUTO STEFANO ITA KTM 10 11 21

10 35 LARSEN NICOLAJ DEN HONDA 20 20

11 414 PHILIPPAERTS DENY ITA SUZUKI 8 8 16

12 202 LARRIEU LOIC FRA YAMAHA 15 15

13 30 KLEIN KROMHOF NED YAMAHA 13 13

14 64 VONGSANA KHOUNSITH FRA TM 13 13

15 62 GERCAR KLEMEN SLO KTM 6 6 12

16 141 CERVELLIN ANDREA ITA HUSQVARNA 11 11

17 90 MORONI RUDY ITA YAMAHA 10 10

18 262 DEL SEGATO GIACOMO ITA SUZUKI 2 7 9

19 50 VALENTE ALESSANDRO ITA YAMAHA 7 7

20 91 MERCANDINO MICHAEL ITA HONDA 1 5 6

21 20 IRT JERNEJ SLO HUSQVARNA 5 1 6

22 32 D'ANGELO ALESSANDRO ITA KTM 3 2 5

23 31 ERIKSSON ALEXANDER SWE KTM 4 4

24 618 TERRANEO STEFANO ITA HONDA 4 4

25 136 OLSEN STEFAN DEN SUZUKI 3 3
 
< Fyrri   Nćsti >

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skođanakönnun

Hvernig fannst ţér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319170
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markađstorg