JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Áttundu umferð AMA Supercrossins lokið Prenta Rafpóstur
sunnudagur, 28 febrúar 2010

_s2f0026.jpgÍ nótt fór fram áttunda umferð í AMA Supercrossinu og fór sú umferð fram í Atlanta.  Þessi keppni hefur alltaf fengið töluverða athygli fjölmiðla úti og var sýnd beint á Speed TV í nótt.  Þeir sem höfðu tækifæri að vera á keppninni eða sjá hana beint hafa ekki orðið fyrir vonbrigðum.  Mikil drama og óvæntir atburðir sem settu svip sinn á þessa umferð og geta haft úrslita áhrif um það hver verður meistarinn í ár.  Ricky Charmichael var á svæðinu og tók þátt í tímatökunni við miklar vinsældir áhorfenda.  Var víst lygilegt hvað karlinn er ennþá hraður miðað við að hann hjólar um það bil einu sinni í mánuði.  Síðan toppaði hann það með að taka einn "hot lap" áður en aðalkeppnin byrjaði og varð víst allt vitlaust í höllinni.  Fleiri ökumenn virðast vera að missa stjórn á skapi sínu og telst nú í þann flokk Martin Davalos sem var vísað í sturtu eftir atvik við Justin Barcia.  Er hann þá kominn í hóp ekki ómerkari manna en Ryan Dungey, James Stewart og Chad Reed.  Justin Barcia er sá ökumaður í Lites flokknum sem virðist vera að fá hvað mestu athygli um þessar mundir, enda mjög agressívur og skemmtilegur ökumaður sem vílar sér ekki við að gera hlutina í því skyni að sigra.

Jæja, en áfram með sjálfa keppnina.  Ef þú vilt ekki vita úrslit, að þá skaltu EKKI lesa lengra.

Lites flokkurinn:  Í síðustu umferð sigraði Christophe Pourcel nokkuð auðveldlega og í raun of auðveldlega.  Austin Stroupe er búin að vera að berjast við þá staðreynd að Christophe Pourcel keyrir eins og sá sem valdið hefur og hefur í raun verið að elta hann eins og skugginn án þess þó að ná að klára dæmið eins og til er ætlast.  Austin Stroupe hefur alltaf verið á jaðrinum við það að ná þessu, er gífurlega hraður en hefur líka gert sig sekann um slík mistök að liðstjóri gæti með góðri samvisku sett ofan í við hann.  Fyrir Austin Stroupe var málið mjög einfalt.  Hann varð hreinlega að vinna ef hann ætlaði að eiga einhvern séns í titilinn.  Austin Stroupe gerði allt rétt í fyrri undanriðlinum og sigraði hann, en sá sem var að keyra hvað hraðast í þeim riðli var nýstirnið Justin Barcia.  Justin Barcia fór á hausinn en endað samt þriðji.  Í seinni undanriðlinum sigraði Christophe Pourcel af mikilli yfirvegun og virðist fátt koma honum úr jafnvægi.  Í viðtölum minnir Christophe Pourcel mig geðveikt á "inspector Clouséu" sem Peter Sellers lék af mikilli snilld í myndunum Pink Panther og fer ég nánast alltaf að hlægja þegar ég heyri þennan frábæra ökumann tala ensku.

Aðalkeppnin - Það var liðsfélagi Chritophe Pourcel, Dean Wilson, sem náði bestri ræsingu og strax á hæla hans komu þeir Austin Stroupe og Christophe Pourcel og síðan Justin Barcia.  Dean Wilson náði smá forskoti þar sem Austin Stroupe og Christophe Pourcel byrjuðu að takast á um annað sætið.  Skiptust þeir á að taka fram úr og voru áhorfendur víst að missa sig af spenningi.  Austin Stroupe náð svo loksins að halda aftur af Christophe Pourcel sem þurfti að hugsa um annað vandamál, en það var hann Justin Barcia sem var _s2f0092.jpggjörsamlega kominn á afturbrettið hjá Christophe Pourcel.  Tókust þeir á og endaði með því að Justin Barcia náði að fara fram úr Christophe Pourcel og allt í einu var hann kominn í fjórða sæti.  Austin Stroupe náði forystunni af Dean Wilson og eitthvað virðist Dean Wilson hafa misst rythmann sinn við þennan framúrakstur því Justin Barcia og Christophe Pourcel fór fram úr honum mjög fljótlega.  En nú fyrst byrjaði hasarinn og Justin Barcia hreinlega setti í fluggírinn og æddi á eftir Austin Stoupe með það eina markmið að ná fram úr.  Fyrr en varði var Justin Barcia búinn að ná Austin Stroupe og gerði sig líklegan til að taka framúr.  Austin Stroupe þurfti allt í einu að fara að hugsa um að verja línurnar sínar.  Christopher Pourcel var aldrei langt undan og var eins og hann biði eftir því að eitthvað myndi gerast á milli þessara tveggja.  Ekki þurfti hann að bíða lengi því ákveðnin var svo mikill í Justin Barcia að hann endaði með því að taka sig og Austin Stroupe niður og færði þar með fyrsta sætið á silfurfati til Christophe Pourcel sem sigraði að lokum, enda ekki nema tveir hringir eftir þegar þetta atvik átti sér stað.  Austin Stroupe náði samt að halda sér á floti og endaði í öðru sæti og Brett Metcalfe náði að læða sér fram fyrir Dean Wilson og endaði fjórði.  Þar með var annar sigur Christophe Pourcel staðreynd og Austin Stroupe sat enn einu sinni með sárt ennið.  Justin Barcia mátti sátta sig við að enda átjándi enda hjólið hans allt kengbogið og skakkt eftir byltuna við Austin Stroupe.

_s2f9791-600x399.jpgOpni flokkurinn:  Fyrir þessa keppni voru þeir Ryan Villopoto og Ryan Dungey jafnir að stigum.  Virtist sem allt væri að vinna með Ryan Villopoto síðustu vikur en að Ryan Dungey væri eitthvað að missa flugið.  Josh Hill krassað feitt í tímatökunni og var óljóst hvort hann myndi taka þátt í aðalkeppninni.  Ástæður voru sagðar vera þreyta sökum ofþjálfunnar.  En menn vilja oft gleyma að hvíld er mjög mikilvægur hluti af réttri þjálfun og ofkeyra sig.  Kevin Windham leit mjög vel út í tímatökunni og virðist sá "gamli" eiga nóg eftir inni.  Í fyrri undanriðlinum sigraði hann Davi Millsaps eftir baráttu við Ryan Dungey.  Í seinni riðlinum var það Kevin Windham sem sigraði og var hann ótrúlega "smooth"  Ryan Villopoto endaði á hausnum við það að reyna að ná Kevin Windham.  Josh Hill endaði annar og leit bara bærilega út þrátt fyrir fyrrgreind meiðsli.

Aðalkeppnin - Það var Ryan Dungey sem var með lang bestu ræsinguna og virðist hann vera búinn að fullkomna þessa tækni enda enginn Mike Alessi til að keppa við.  Trey Canard leit mjög vel út og var í öðru sæti en á hælum hans kom Ryan Villopoto sem fór strax að þrýsta á annað sætið.  Davi Millsaps var líka ekki langt undan en eitthvað kom fyrir hjá Kevin Winhdam og sat hann aftarlega á merinni.  Josh Hill var með ásættanlega ræsingu sat í kringum áttunda sæti.  En mikið átti eftir að gerast og sneri það nánast allt í kringum Ryan Villopoto.  En hann náði fram úr Trey Canard og setti allt í botn til að ná Ryan Dungey.  Það _s2f0179.jpgvildi ekki betur til en að hann endaði á granirnar og var hann allt í einu orðin síðastur því hann kom Kawasaki KX450F hjólinu ekki aftur í gang.  Var hann orðin um hring á eftir þegar hann loksins kom hjólinu aftur í gang.  Á meðan var Davi Millsaps farinn að banka á dyrnar hjá Trey Canard en Trey Canard keyrði af mikilli skynsemi og náði að halda Davi Millsaps fyrir aftan sig allt til loka.  Endaði Trey Canard því í öðru sæti og það í sinni annarri keppni í stóra flokknum.  Davi Millsaps varð þriðji og Ryan Dungey sigraði nokkuð örugglega, með rúmlega tíu sekúndna forskot á Trey Canard.  Ryan Villopoto mátti sætta sig við að enda í nítjánda sæti og Josh Hill endaði sjötti.  Kevin Windham, sem leit rosalega vel út, lenti í tómu tjóni og endaði fjórtándi.  Ryan Dungey er því komin með þægilegt forskot á helstu keppinauta sína og miðað við þetta, að þá verður að segjast að hann lítur mjög sterklega út til að enda sem meistari eftir tímabilið.  Eða eins og Ricky Charmichael segir, "meistaratitlar eru unnir á slæmu dögunum en ekki góðu dögunum" og það sem hann meinar er að ef þér gengur illa og nærð að enda í þriðja eða fjórða sæti á slæmu kvöldi, að þá eru líklegur til að vinna titilinn.  Þeir sem enda aftur á móti í fyrsta sæti á góðum dögum og klára svo varla keppni á slæmum dögum, tapa titlinum.  

_s2f0307.jpg

Úrslit í opna flokknum

1)    Ryan Dungey
2)    Trey Canard
3)    Davi Millsaps
4)    Ivan Tedesco
5)    Justin Brayton
6)    Josh Hill
7)    Michael Byrne
8)    Jason Lawrence
9)    Grant Langston
10)    Nick Wey
11)    Chris Blose
12)    Kyle Chisolm
13)    Matt Boni
14)    Kevin Windham
15)    Jason Thomas
16)    Heath Voss
17)    Weston Peick
18)    Dan Reardon
19)    Ryan Villopoto
20)    Kyle Partridge

Úrslit í Lites flokknum

1)    Christophe Pourcel
2)    Austin Stroupe
3)    Brett Metcalfe
4)    Dean Wilson
5)    Blake Baggett
6)    Vince Friese
7)    Matt Lemoine
8)    Jake Moss
9)    Levi Kilbarger
10)    Kyle Cunningham
11)    Kyle Regal
12)    Nico Izzi
13)    Michael Willard
14)    Adam Chatfield
15)    Ryan Sipes
16)    Taylor Futrell
17)    James Decotis
18)    Justin Barcia
19)    Alex Martin
20)    Kyle Keylon

 
< Fyrri   Næsti >

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skoðanakönnun

Hvernig fannst þér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2319132
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markaðstorg