JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Fjórðu umferð í AMA supercrossinu lokið Prenta Rafpóstur
sunnudagur, 31 janúar 2010
9a7j0193.jpgÍ nótt fór fram fjórða umferð í AMA supercrossinu og fór þessi umferð fram í San Francisco þar sem veðrið setti sinn strik í reikninginn.  Fyrir þetta mót hafði dregið til tíðinda því núverandi meistari, James Stewart, dróg sig í hlé frá keppni vegna meiðsla á úlnið og þurfti kappinn að fara í aðgerð vegna þessa.  Það er því ljóst að afar litlar líkur eru á því að James Stewart geti eða muni koma til með að verja titilinn.  Þannig að báðir topp ökumennirnir eru úr leik og er það nokkuð broslegt í ljósi þess að nánast allir spekingar voru búnir að spá öðrum hvorrum þeirra sigur í ár.  En nú lítur út fyrir að nýr meistari verði krýndur í ár og það sem er merkilegt fyrir þá keppendur sem eftir eru, er að enginn af þeim hefur unnið titil í opna flokknum í supercrossi.

Ef þú vilt ekki vita úrslit, að þá skaltu EKKI lesa meira.

rrl.jpgLites flokkurinn:  Fyrir þessa keppni var Jake Weimer búin að vera einráður í þessum flokki og virtist fátt benda til þess að hann myndi eitthvað koma til með að gefa eftir á þessu stigi seríunnar.  En Jake Weimer leiðir stigakeppni ökumanna í Lites flokknum.  Í undanrásunum sýndi Jake Weimer engin merki um taugatitring eða stress og sigraði nokkuð örugglega sinn riðil.  Í seinni undanrásunum að þá sýndi Trey Canard sitt rétta andlit og sigraði.  Blake Wharton þurfti svo að eiga við LCQ sem hann sigraði svo nokkuð auðveldlega.

Aðalkeppnin – Cole Seely náði bestri ræsingu en fast á hæla hans kom Jake Weimer ásamt Josh Hansen og viti menn, einhver snerting átti sér stað og endaði með því að Josh Hansen endaði út úr brautinni og Trey Canard var allt í einu komin í forystu.
9a7j0682.jpg Trey Canard setti í fluggírinn og virtist vera að byggja upp þægilegt forskot á næstu keppendur, þar á meðal Jake Weimer og er þetta í fyrsta sinn sem einhver virðist geta rifið sig lausan frá honum og keyrt hraðar en hann í ár.  Broc Tickle var loksins þannig staðsettur að hann virtist geta látið til skarar skríða en fast á hæla hans kom Blake Wharton.  Trey Canard sigraði svo eftir mjög jafnan og góðan akstur og núverandi forystusauður hvað stigakeppnina varðar, Jake Weimer, varð að sætta sig við annað sætið.  Broc Tickle endaði svo í þriðja sæti og er að í fyrsta sinn sem hann nær á pall í supercrossinu.  En margir eru á því að þar á hann heima.

Opin flokkurinn:  Eins og ég sagði, að þá var sú óvenjulega staða fyrir þessa keppni að enginn
ryan_villopoto_wins_2010.jpgþátttakandi hafði unnið titil í opna flokknum og allt í einu var allt orðið bullandi opið fyrir aðra keppendur eftir að Chad Reed og James Stewart eru horfnir af braut.  Ryan Dungey hélt áfram uppteknum hætti og náði holuskotinu í fyrri undanrásunum en Andrew Short var ekki á þeim buxunum að leyfa honum að vinna og náði forystu.  Ryan Dungey lenti svo ofan á “tuff block” en náði að bjarga sér og ljúka keppni í öðru sæti.  Andrew Short vann sem sagt fyrri undanriðilinn.  Í seinni riðlinum var það Ryan Villopoto sem hreinlega stakk af og átti enginn séns í piltinn.  Grant Langston þurti svo að taka þátt í LCQ þar sem hann var í tómu tjóni í ræsingunni og náði hann ekki inn í aðalkeppnina í þetta skiptið..

Aðalkeppnin – Þegar hliðin féllu að þá var það Ryan Dungey sem náði holuskotinu og virðist hann alveg vera búin að negla þetta hvað þau varðar.  Josh Hill, Davi Millsaps, Andrew Short og Andrew Short voru þar næstir.  Andrew Short fór svo á granirnar á meðan Ryan Dungey byrjaði að byggja upp forskot á aðra
rrsx.jpgkeppendur.  Josh Hill og Ryan Villopoto hófu svo mikla baráttu um annað sætið og í stað þess að reyna að ná Ryan Dungey, fóru þeir að verja stöðu sína gagnvart hvorum öðrum, sem gerði það að verkum að Ryan Dungey gat keyrt sitt “race” eins og menn segja svo gjarnan þarna úti.  Að lokum náði Ryan Villopoto fram úr Josh Hill og hóf eltingaleik við Ryan Dungey.  Allt í einu gerðist það sem James Stewart talaði um að myndi gerast fyrir Ryan Dungey í keppni.  Hann gerði mistök og missti fóta sinna á hjólinu í einum af röttunum, á sama stað og hann gerði mistök í undanrásunum, og hreinlega flaug af hjólinu.  Á einhvern ótrúlegan hátt, slasaðist Ryan Dungey ekki og á meðan hann var að koma sér aftur upp á hjólið, að þá náðu Ryan Villopoto, Josh Hill og Davi Millsaps framúr honum.  Ryan Villopoto tók þá upp þráðinn frá því í undanrásunum og hélt forystunni allt til enda en Josh Hill var aldrei langt undan.  Davi Millsaps endaði þriðji og Ryan Dungey endaði í fyrsta sinn ekki á palli þetta árið, en hann varð fjórði.  Þannig að nú byrjaði spennan að magnast.  Var Ryan Dungey að missa flugið og er Ryan Villopoto að komas til baka eftir meiðslin frá því síðasta sumar?  Og hvenær nær Josh Hill að halda þetta út og klára í ár?  Fyrir neðan má sjá þegar Ryan Villopoto sigrar og viðtal í lokin.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Jæja, hvað sem líður að þá urðu úrslitinn í flokknum eftirfarandi.

SUPERCROSS ÚRSLIT
1. Ryan Villopoto (Kaw)
2. Josh Hill (Yam)
3. Davi Millsaps (Hon)
4. Ryan Dungey (Suz)
5. Andrew Short (Hon)
6. Justin Brayton (Yam)
7. Ivan Tedesco (Yam)
8. Nick Wey (Kaw)
9. Tommy Hahn (Suz)
10. Michael Byrne (Yam)
11. Kevin Windham (Hon)
12. Kyle Chisolm (Yam)
13. Jason Thomas (Suz)
14. Cyrille Coulon (Kaw)
15. Fabien Izoird (Kaw)
16. Chris Blose (Hon)
17. Manuel Rivas (Kaw)
18. Jesse Casillas (Kaw)
19. Jarred Browne (Kaw)
20. Kyle Partridge (Kaw)
 
SUPERCROSS LITES ÚRSLIT
1. Trey Canard (Hon)
2. Jake Weimer (Kaw)
3. Broc Tickle (Yam)
4. Wil Hahn (Hon)
5. Cole Seeley (Hon)
6. Travis Baker (Yam)
7. Josh Hansen (Kaw)
8. Max Anstie (Yam)
9. Jeff Alessi (Yam)
10. Phil Nicoletti (KTM)
11. Phil Nicoletti (KTM)
12. Jake Canada (Kaw)
13. Blake Wharton (Hon)
14. Ryan Clark (Hon)
15. Antonio Balbi (Kaw)
16. Dabiel Hendrix (Kaw)
17. Hunter Hewitt (Suz)
18. Chris Gosselaar (Hon)
19. Joshua Clark (Kaw)
20. Jason Potter (Hon)

 
< Fyrri   Næsti >

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skoðanakönnun

Hvernig fannst þér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2308185
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markaðstorg