JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Fyrsta umferðin í Íslandsmeistaramótinu í íscrossi afstaðinn Prenta Rafpóstur
laugardagur, 30 janúar 2010

img_6033.jpgÞá er fyrsta umferðinni í Íslands-meistaramótinu í íscrossi afstaðinn og fór hún fram á Mývatni að þessu sinni þar sem þetta var eini staðurinn sem MSÍ taldi að ísinn væri nógu þykkur til að þola atganginn.  Aðstæður þarna voru frábærar, eins og nánast alltaf en þó í kaldara lagi.  Mikil barátta var í vetrardekkjaflokknum og fór svo að Daði "Skaði" hafði sigur en hann þurfti að hafa fyrir hlutunum í dag og voru þeir Elli og Anton ekkert að gefa honum þetta á silfurfati.  Í sérútbúna flokknum sigraði Ásgeir en Raggi varð annar og Toggi þriðji.  Það var sannkallaður systraslagur í kvennaflokkknum og fór svo að Andrea sigraði en yngri systir hennar Ásdís sýndi henni í síðasta moto-inu að það sé vissara fyrir Andreu að halda áfram að æfa sig því hún var á afturbrettinu hjá systur sinni og var nokkrum sinnum við að taka framúr.  Einnig var elsta systurinn, Ásta, eitthvað að blanda sér í þetta..:0)  Halli sigraði í 85cc flokknum og var hann nokkuð öruggur með þann sigur.  Staðfest úrlsit eiga eftir að koma á vef MSÍ.

Hjá okkur fór eiginlega allt úrskeiðis sem hægt var að fara úrskeiðis.  Rétt fyrir tímatöku að þá fór hjólið hjá brjáluðu Bínu allt í einu ekki í gang, byrjaði með að bensíngjöfin festist og síðan var eitthvað vesen sem ég veit ekki hvað var.  Þar með var hún úr leik en hjólið hennar hefur hingað til ekki slegið feilpúst.  Þakka Halla eldri fyrir hjálpina við að reyna að koma henni út á ísinn og Ella.  Þegar út á ís var komið og ég ætlaði að fara að taka myndir, að þá bilaði myndavélin og því eru eiginlega engar myndir hér í dag frá mótinu..:0(  Ljósi punkturinn í þessari ferð okkar var að hann Óliver keppti í sínu fyrsta Íslandsmeistaramóti og kláraði með því að enda í þriðja sæti í 85cc flokknum.

En það voru fleiri en við sem voru að lenda í bilunum með hjólin og spurning hvort þetta sé það sem koma skal í ár því aldur mótorfákana eru einu ári meira en í fyrra og lítið um endurnýjanir á hjólum framundan.  Það er því ljóst að maður þarf orðið að fara extra yfir hjólin fyrir hvert mót ef maður á að ná að tryggja að svona endurtaki sig ekki.  Þrátt fyrir þetta, að þá var þetta skemmtilegur dagur og alltaf gaman að koma þarna í Mývatnssveitina.  Næsta mót í íscrossi á að fara fram 20 febrúar og er mótsstaður ekki ennþá ákveðin.  Í millitíðinni hefst svo tímabilið í snjócrossi með stæl.

Eins og ég sagði að þá eru eiginlega engar myndir frá mér frá þessu móti og spurning hvort og hvenær maður hefur efni á að láta laga gripinn.  Því verður sjálfsagt eitthvað lítið af ljósmyndum á næstunni héðan innanlands, alla vega.  Hér fyrir neðan eru svo systurnar sem mestu athygli vöktu í dag og svo Halli Jr.

img_6054.jpg

img_6038.jpg

 
< Fyrri   Næsti >

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skoðanakönnun

Hvernig fannst þér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2106628
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markaðstorg