|
Hvar er hćgt ađ hjóla í dag? |
|
|
|
sunnudagur, 20 desember 2009 |
|
Já, ótrúlegt en satt að þá getur hjólafólk ekki komið því út úr hausnum á sér að langa að hjóla þó það séu að koma jól. Eins og gefur að skilja, að þá eru flestar hefðbundnar motocrossbrautir hér í nágrenni Reykjavíkur frosnar að einni undatekinni og það er Þorlákshöfn. Mér skildist á þeim mönnum að brautin væri í ágætis standi. Brautin var nokkuð hörð á föstudag en þar sem sandurinn er nánast alveg þurr, þ.e. engin raki í honum, að þá var hann fljótur að koma til eftir því sem meira var keyrt í brautinni og var eitthvað af mannskap þarna á föstudag. Svo eru íscross sjúklingar komnir á stúfana og nýlega var sent út tilkynning á alla þá sem eru í þeirra grúppu á fésinu um að Lambhagatjörn við Kleifarvatn væri ísilögð og fín. Er víst búið að stefna mannskap þar kl.14:30 í dag. Síðan er það náttúrulega inniæfing VÍK í reiðhöllinni, fyrir þá sem höfðu rænu á að skrá sig í tíma. En æfinginn verður kl.18 í dag og er því miður takmörkuð við 15 hjól.
|