|
Bolaalda leit hrikalega flott út í kvöld |
|
|
|
ţriđjudagur, 22 september 2009 |
|
Fór með litla skoffínið, "mini me", upp í Bolaöldu að hjóla og mikið ofboðslega leit brautin vel út. Rakastigið var "perfect" ef svo má að orði komast. Já, að mínu mati eru brautirnar bestar á vorin þegar þær eru að detta í notkun eftir frostið sem verið hefur í jörðu, eða á haustin. Ekki margir á svæðinu, en þó samt eitthvað að liði. Spurning hvort að fólk sé að gera sér grein fyrir að sá tími er að líða ansi hratt sem hægt verður að hjóla strax eftir vinnu? Síðan verður það bara hægt um helgar og þegar snjórinn og frostið kemur, að þá er það bara fjörudæmið eða hin stórskemmtilega braut í Þorlákshöfn. Hlakka samt pínu til að komast á ís.
Það er búið að breyta 85cc brautinni og er búið að setja ansi myndarlegan pall í brautinni með langri lendingu, þannig að engin(n) ætti að lenda í vandræðum þar. Óliver var alla vega mjög hrifinn af breytingu í 85cc bautinni.
|