Loksins myndband af nýja Yamaha YZ450F árgerđ 2010
ţriđjudagur, 22 september 2009
Jæja, þá er maður loksins farinn að sjá fyrstu myndböndinn af reynsluakstri af nýja Yamaha YZ450F hjólinu, árgerð 2010. En mikið "hype" er búið að vera í kringum þetta hjól og nú er það spurning hvort það standist væntingar. Miðað við þau svörun sem virðist vera í gangi á netinu að þá virðist hjólið standa undir þeim væntingum sem búið er að leggja grunninn að. Hér má sjá myndband, að vísu opinbert sölumyndband frá Yamaha, en flott myndaband engu að síður með James Stewart sem leiðsögumann. Einnig er hægt að smella hér og sjá myndabandið hjá Transworld Motocross tímaritinu.