Reynsluakstur á KTM 450SXF Prenta Rafpóstur
sunnudagur, 02 mars 2008
450sxf.jpgHér lausleg þýðing, ég endurtek, lausleg þýðing á grein í Motocross Action Magazine um reynsluakstur þeirra á KTM 450SXF.  Það sem kemur hér fram eru skoðanir greinarhöfunda og endurspeglar engan vegin mitt eigið viðhorf gagnvart þessum hjólum enda alls ekki dómbær á það þar sem ég hef ekki prófað slíkt hjól.  Þannig að hengið ekki bakara fyrir smið.

KTM er það sem Ameríkanar kalla "Rodney Dangerfield of a Amarican Motocross", hvað sem það nú þýðir.  Þegar kemur að ráslínu í motocrossi að þá eru fæst hjól KTM og markaðurinn hér virðist frekar vilja hjól frá hinum framleiðendunum.  Að mörgu leyti er þetta undarlegt í ljósi stöðu KTM í Evrópu, þar sem þeir eru mjög sterkir, og í "American Off-road" keppnum en þar eru hjólin frá KTM fyrsta val og númer eitt á óskalistanum. 

Er 2008 450SXF hjólið hraðskreiðara en 2007 hjólið?

Já, svo sannarlega er það það.  En það hefur bætt sig um þrjú hestöfl við 9000 rpm.  Þetta er 450cc mótor sem hefur bætt við sig 6 hestöflum á aðeins þremur árum.  Það er bara eitt orð yfir það og það er "Vá".

Hversu sterkur er mótorinn í 2008 KTM 450SXF í dyno prófun?

Í dyno prófun reyndist þetta hjól vera það allra kraftmesta af þeim öllum í 450cc flokknum, eða sem nemur 54,3 hestöfl.  KTM 450SXF mældist tveimur hestöflum öflugra heldur en Honda CRF450, og fjórum hestöflum aflmeira en KX450F og YZ450F.  KTM er eini framleiðandinn, af þeim hjólum sem blaðið hefur prófað, sem hefur farið þá leið að reyna að auka hestöflin þegar aðrir framleiðendur hafa farið þá leið að leita að bestri nýtanlegri orku. 

Er hægt að hafa stjórn á öllum þessum hestum?

Já, í raun er það hægt.  KTM á skilið alla þá virðingu sem hægt er að gefa fyrir "powerbandið" í 2008 árgerðinni af KTM450SXF.  Þrátt fyrir að vera aflmesta hjólið á markaðinum í 450cc flokknum, að þá er mjög auðvelt að hjóla á þessu hjóli.  Reynsluökumenn blaðsins hreinlega elskuðu þennan mótor.  En það er ekki fyrr en þú ert komin með hjólið upp fyrir 6500 snúninga sem þú finnur hvað mest fyrir hvernig KTM mótorinn vinnur, en undir 6500 snúningum að þá er KTM 450SXF þriðja aflmesta hjólið. 

Hversu gott er "powerbandið" í KTM 450SXF?

Í raun er það mjög gott, hámarksvirkni kemur inn eftir 7500 snúninga og það hefur mestan "top-end" kraft og gefur lengsta "pull-ið".  KTM hefur tekist að smíða mjög öflugan 450cc mótor sem hægt er að ráða við og afsanna þar með kenninguna að þú þurfir að fórna hestöflum í því skyni að gera fólki kleift að hjóla á hjólinu.  Í raun er þetta sá mótor sem virkar hvað minnst ógnvekjandi af öllum í 450cc flokknum, eins furðulega og það kann að hjóma.  En öflugusta hjólið er jafnframt það ánægjulegasta að hjóla hvað mótor varðar.  Þetta er eins og risastórt naut sem kann mannasiði.

Er þetta þá allt saman æðislegt?

Nei, í raun ekki.  Gírkassinn og hlutfall hans er hlutur sem reynsluökumenn voru ekki alveg sáttir við.  Það sé svo mikið bil á milli gírana að gírhlutfallið á fyrsta gírnum er það sama og var á öðrum gírnum á 2006 hjólinu.  Í raun er þetta hjól án fyrsta gírs ef hægt er að orða það þannig.  Það reyndist þeim sem voru vanir skiptingunni á japönsku hjólunum erfitt að læra það að þeir þyrftu ekki að gíra eins oft og í raun gíruðu þeir, sem best lærðu inn á kassann, helmingi sjaldnar en á hjólum frá öðrum framleiðendum.  Tim Ferry er mikil talsmaður þess að "minna sé meira" og hlutverk þessara stóru hjóla eigi að vera þannig að þau sé með það öfluga mótora að þú eigir ekki að þurfa að djöflast á skiptingunni allan tíman.  Tim Ferry notaði t.d. þriggja gíra skiptingu þegar hann var að keppa fyrir Yamaha og kann afskaplega vel við sig með fjögurra gíra kassann á Kawasaki hjólinu. 

Hverjir eru kostirnir og gallarnir við rafmagnsstartið?

Gallinn við rafmagnsstartið er að það gerir KTM 450SXF það þyngsta í sínum flokki, en það er svo sannarlega þess virði.  Að þurfa bara að ýta á takkann og halda af stað er hreint út sagt geðveikt.  Sumir ökumenn eru skíthræddir við að drepa á hjólunum sínum og margir hverjir drepa ekki á þeim á ráslínu vegna þessa ótta, en ekki KTM ökumenn.  Þeir ýta bara á takka and off they go...

Hvernig er fjöðrunin á KTM 450SXF?

Hún er bæði og, eins og þeir segja.  Við erum ekkert sérstaklega hrifnir af WP demparakerfinu en þeir hafa þó haft vit á að auka stífnina í fjöðruninni.  Við erum jafnónægðir með demparana núna eins og við vorum fyrir 2007 árgerðina.  Við teljum að WP hafi misst þarna af gullnu tækifæri til að laga það sem aflaga var í 2007 hjólinu, en í stað þess virðast WP bara hafa farið hálfa leið.  Afturdemparinn er að okkar mati martröð og við skiljum hreinlega ekki hvað þeir voru að gera við hjólið.  Stilling afturdemparans er lykilatriði en þar er stóra vandamálið.  Það er svo erfitt að stilla hann og það má svo litlu muna til að allt fari ekki til helvítis. 

Hvað hötuðum við:

•1.      Svarta litinn á hjólinu.  Alla jafna höfum við verið hrifnir af svarta litnum en það á ekki við hér.  Eftir nokkra mánuði að þá leit svarti liturinn út eins og það hafði verið skotið á hjólið með haglabyssu

•2.      Hliðarplöstin.  Kannski höfum við rangt fyrir okkur með þá hugmynd að það skipti máli að hægt sé að setja stór og góð númer á plöstin, en KTM virðist algjörlega vera á þeirri skoðun að engin þurfi að vera með númer í fullri stærð

•3.      Að lyfta hjólinu er mjög erfit og í raun eru engin grip neins staðar á hjólinu sem auðveldar tilfærslu af nokkru tagi

•4.      Gaflarnir að framan fá falleinkun

•5.      "Hot start level" - plastið virðist vera gert með kjörorðinu að það eigi að skemmast.

•6.      Sætið er afar óþægilegt og mælum við með að þú snúir þér strax til KTM söluaðila og kaupir þér annað sæti

•7.      Dekkin - erum afar óhressir með Bridgestone M59/M70 dekkinn á hjólinu.

•8.      "Gas cap" - Af hverju þarf KTM að setja læsingu á hettuna fyrir gasið?  Algjörlega óskiljanlegt.

Hvað vorum við ánægðir með?

•1.      Frambremsurnar - hreint út sagt frábærar

•2.      Vökvakúplinginn - öll hjól ættu að vera með vökvakúplingu eins og KTM

•3.      Vörnin á framgaflana ber af og reyndust hlífa mest af öllum þeim sem við höfum skoðað

•4.      Rafmangsstartið - allir í R&D ættu að hætta að hugsa um beina innspýtingu og eyða frekar peningum í rafamagnsstartið.  Nútíma hjól keyra ágætlega á Keihins blöndung en þau fare ekki alltaf endilega í gang

Hvað höldum við í raun um KTM 450SXF hjólið?

Það er í tísku í Bandaríkjunum að sparka í KTM framleiðandann og í raun er KTM það sem er kallað "underdog" í samanburði við japanska framleiðendur.  En KTM hefur náð að búa til mótor sem allir í þessum motorcrossiðnaði öfunda þá af.  Við gefum mótornum hæstu mögulega einkunn.  Já, KTM þarf svo sannarlega að taka sig saman í andlitinu þegar kemur að fjöðruninni en gleðin yfir mótornum yfirskeggir ógleðina yfir dempurunum.  Í heild gott hjól og við elskuðum rafstartið.

 
< Fyrri   Nćsti >