85cc stúlkna:
Í stigakeppni til Íslandsmeistara leiðir Bryndís Einarsdóttir með 200 stig. Bryndís er ekki óvön að leiða stigakeppni, en hún er núverandi Íslandsmeistari í þessum flokki og virðist fátt benda til þess að hún komi ekki til með að landa titlinum aftur í ár. Miðað við núverandi stöðu og að fjöldi keppenda er að öllu jafna sjö talsins, að þá er nóg fyrir Bryndísi einfaldlega að ljúka keppni óháð sæti. Það eitt að ljúka keppni gefur henni nógu mörg stig til að verða Íslandmeistari í þessum flokki. Ef svo óhepplega, og ósennilega, vill til að Bryndís fellur strax í fyrsta moto-i og hættir frekari keppni að þá er allt orðið galopið í þessum flokki og þær sem berjast í næstu sætum allt í einu með ný spil í höndunum í síðasta móti ársins.
Baráttan um annað og þriðja sæti er aftur á móti miklu meira spennandi og er munur á milli annað og þriðja sæti ekki nema 4 stig. Baráttan stendur á milli Ingibjargar T. Leópoldsdóttir og Ásdísar E. Kjartansdóttir. Ingibjörg er með 156 stig en Ásdís er með 152. Ingibjörg verður að vera í minnsta kosti einu sinni fyrir framan Ásdísi yfir endamarkið og má svo við að vera á næst á eftir henni til að ná að landa öðru sætinu. M.ö.o. ef Ásdís verður í öðru sæti í fyrsta moto-i, að þá má Ingibjörg alls ekki vera aftar en í þriðja sæti. Í öðru moto-i verður Ingibjörg að snúa dæminu við og verða sæti á undan Ásdísi til að klára dæmið. Það óvænta í stöðunni gæti verið að baráttan á milli þessara tveggja yrði slík að þær myndu báðar falla og hætta keppni í fyrsta moto-i. Þá er Guðfinna G. Pétursdóttir tilbúin að taka við, en hún sat hjá í þriðju umferð en var fyrir þá umferð í öðru sæti í stigakeppninni.
Það vekur athygli í þessum flokki að fjórgengishjólin frá Hondu, CRF150 hjólin, virðast ekki skapa keppendum í liði Honda eins mikla yfirburði og þau hafa gert í 85cc flokknum. Í raun hefur það aðeins einu sinni gerst í keppni á árinu, að keppandi á þessum hjólum lendir á verðlaunapalli. Er það mikið stílbrot frá 85cc flokknum þar sem þeir sem ekið hafa á þessum hjólum hafa nánast einokað verðlaunapallinn.
Hægt er að skoða stöðuna nánar hjá öllum keppendum í þessum flokki með að smella hér.
85cc:
Hvað getur maður sagt um þennan flokk? Eftir fyrstu tvær umferðirnar sat einn maður á toppnum og hann hét Eyþór Reynisson. Voru yfirburðir hans slíkir að þá menn voru nánast búnir að grafa nafnið hans á bikarinn þetta árið. En Adam var ekki lengi í paradís og í þriðju umferð slasaðist Eyþór sig það illa, að útseð varð um frekari þátttöku af hans hálfu í sumar. Lauk þar með glæsilegri sigurgöngu þessa frábæra ökumanns. Við brotthvarf hans opnaðist þessi flokkur upp á gátt. Bryndís Einarsdóttir nagar sig sjálfsagt í handabökinn núna fyrir að hafa ekki tekið þátt í þessum flokki í mótinu sem fór fram á Akureyri, en þá hefði hún, miðað við gengi í mótum sumarsins, átt möguleika á Íslandsmeistaratitlinum í þessum flokk einnig ásamt 85cc stúlkna. En tekið skal fram fyrir þá sem ekki þekkja að 85cc flokkurinn er bæði fyrir stráka og stelpur.
Eins og staðan er núna að þá stendur Guðmundur Kort bestur að vígi, en hann leiðir stigakeppnina með 164 stig. Næst á eftir honum kemur Friðgeir Ó. Guðnason með 158 stig. Nægir Guðmundi Kort að vera í næsta sæti á eftir Friðgeiri til að ná að landa titlinum þetta árið og þá erum við að tala um að þeir verða að lenda í einum af efstu tíu sætunum. Friðgeir þarf aftur á móti á því að halda að aðrir keppendur komist upp á milli hans og Guðmundar og búi til það bil sem mun gefa honum fleiri stig. Best er fyrir Friðgeir að sigra í báðum moto-inum til að fá hámarksfjölda stiga, en 3 stig munar á efsta sæti og öðru sæti. Ef Friðgeir vinnur bæði moto-in í síðustu keppninni, að þá eru þeir jafnir á stigum. Þá gildir hvaða árangri keppandi í síðari moto-inu hefur náð og sá sem hefur náð oftar betri árangri í síðari moto-inu, verður talin sigurvegari.
Jafn mikil spenna er um þriðja sætið eins og fyrsta sætið í þessum flokki og stendur baráttan á milli Haraldur Ö. Haraldssonar, sem er með 131 stig, og Bryndísar Einarsdóttir sem er með 125 stig. Munurinn einungis 6 stig og þarf Haraldur að spila vel úr sínum spilum fyrir síðasta mótið þar sem Bryndís hefur á þeim mótum sem hún hefur tekið þátt öllu jafna náð fleiri stigum en Haraldur. Þó skal ekki vanmeta Harald og hann hefur sýnt það í sumar að hann er mjög góður ökumaður og hefur hann meðal annars vera að ná hvað bestum ræsingum í síðustu mótum en hefur vantað herslumunin til að komast á verðlaunapall. Ingi B. Birgisson gæti blandað sé verulega í þessa baráttu um þriðja sætið, en hann tók ekki þátt í síðasta móti sem fór fram á Sauðárkróki og setti það verulega strik í reiknininginn hjá honum hvað stigakeppnina varðar. En fyrir það mót var hann búin að lenda í þriðja sæti tvisvar sinnum og er með 112 stig þegar hér er komið við sögu. Einnig gæti hann haft úrslitaáhrif um það hver verði Íslandsmeistari í ár, þar sem hann hefur sýnt að hann hefur greinlega hraðann til að takast á við efstu menn.
Hægt er að skoða stöðuna nánar hjá öllum keppendum í þessum flokki með að smella hér.
Opni kvennaflokkurinn:
Síðustu þrjú ár hefur Karen Arnardóttir náð að landa Íslandsmeistara-titlinum. En þessi flokkur hefur vaxið gífurlega, bæði hvað ökumenn varðar og styrkleika, og allt í einu er þessi flokkur orðin einn af þeim mest spennandi sem maður hefur fylgst með í sumar. Upp komu ökumenn úr 85cc stúlkna flokknum sem hafa sett sinn svip á þennan flokk. Má þar fyrst og fremst nefna Signý Stefánsdóttir og Margréti M. Sverrisdóttir. Einnig hafa aðrir ökumenn bætt sig verulega á þessu ári og má þar nefna Anítu Hauksdóttir og systurnar Margréti E. og Söndu Júlíusdætur. Besti nýliði ársins það sem af er í þessum flokki, er Sigrún Sigmundsdóttir. En síðast en ekki síst má ekki gleyma flottustu ellismellum landsins, nú verður maður drepinn fyrir þetta. En það eru engar aðrar en Theodóra B. Heimisdóttir, betur þekkt sem Tedda í Nitró og svo Björk Erlingsdóttir, best þekkt sem Brjálaða Bína. En þessar tvær eru að keppa þó þær sé komnar vel á fimmtugsaldurinn og hafa verið að stríða yngri keppendum hressilega í ár. Tedda er í níunda sæti í stigakeppninni og fast á hæla henni kemur Björk í tíunda sæti og munar aðeins tveim stigum á þessum síhressu skvísum sem neita að hlýða náttúrulögmálum eins og t.d. það sem kallað er aldur. Hekla I. Daðadóttir hefur líka vaxið míkið í ár á sínu öðru ári í keppni í motocrossi.
En hvað um það. Framan af Íslandsmeistara-mótinu leiddi Karen Arnadóttir en Signý Stefánsdóttir hefur verið að saxa á forystu hennar jafnt og þétt það sem af er sumri. Fyrir síðasta mót munaði t.d. einungis fimm stigum á þeim. Eftir síðasta mót, að þá leiðir Signý Stefánsdóttir stigakeppnina til Íslandsmeistara með 184 stigum og muna nú allt í einu 12 stigum á henni og Karen. En Karen var óheppin í fyrra moto-inu á Sauðárkrók um síðustu helgi og féll strax á fyrsta hring og var ekki eins og hún er vön sér að vera eftir það. Þannig að ef Karen ætlar sér að landa titlinum í fjórða sinn, að þá þarf hún að sigra og vonast til að Signý fattist flugið hressilega. Best væri fyrir Kareni ef einhver kæmist á milli þeirra, en það er ekki sama hver það er. Aníta Hauksdóttir er ekki nema þremur stigum á eftir Kareni og situr hún í þriðja sæti sem er. En Aníta hefur verið að keyra mjög vel í sumar og hefur vaxið ef eitthvað er frá því í fyrra. En ef Karen sigrar í báðum moto-inum í síðasta mótinu, að þá skiptir engu máli hvort Aníta eða einhver önnur verður á milli hennar og Signýjar og í raun því fleiri, því betra.
Það sem Signý þarf að passa sig á núna er að fara ekki fram úr sjálfri sér og keyra fyrst og fremast af öryggi. Signý er geysilega hröð og hefur í sumar sýnt ótrúlega flottan akstur í braut. Hún er, af öllum öðrum kvennkeppendum ólöstuðum, sú hraðast sem við eigum í dag. Baráttan um þriðja sætið stendur á milli Anítu Hauksdóttir og Margréti E. Júlíusdóttir. Munar 29 stigum á milli þeirra og í ljósi þess hvernig Aníta hefur verið að keyra, að þá þarf ansi mikið til svo Aníta klúðri málunum á þann máta að hún gefi eftir þetta sæti. Í raun er Aníta í bullandi baráttu um annað sætið og jafnvel sjálfan Íslandsmeistaratitilinn, því það þarf ekki nema að þær tvær sem leiða stigakeppnina, Signý og Karen, gleymi sér í hita leiksins og geri mistök sem Aníta gæti virkilega hagnast á og leitt til þess að hún landi hinum langþráða Íslandsmeistaratitli.
Hægt er að skoða stöðuna nánar hjá öllum keppendum í þessum flokki með að smella hér.
MX-B:
Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að fjalla ekki um þennan flokk og stafar ein helsta ástæða af því að ekkert er hægt að finna um þennan flokk á vef MSÍ og því er við litlar upplýsingar að styðjast. Einnig hafa menn eins og Daði Erlingsson, sem sigraði í fyrstu tveimur mótunum í MX-B, verður færður upp í A flokk og er staðan í flokknum mér því hulin ráðgáta.
MX unglingaflokkur:
Einn af mínum uppáhaldsflokkum síðustu tvö ár og alltaf jafn spennandi. Þetta hefur jafnframt verið allra fjölmennasti flokkurinn og hafa verið hátt í fjörtíu keppendur á ráslínu í þessum flokki í einu og sama mótinu. Baráttan í ár hefur verið geyshörð og má segja að tveir menn hafi borið þar af, hvað stöðugleika snertir, og eru þeir að uppskera í samræmi við það. En Bjarki Sigurðsson, sem er geysilega öflugur keppandi, hefur mátt lúta einum og oft í gras í mótum sumarsins eftir hörku ræsingar og hefur það svo sannarlega sett strik í reikninginn hjá þessum unga og efnilega ökumanni. Eins og áður sagði að þá eru tveir aðilar sem hafi ávaxtað ríkulega það sem af er þessu mótum og eru það Sölvi B. Sveinsson og Ásgeir Elíasson. Sölvi leiðir stigakeppnina með 8 stigum á næsta keppinaut sem er Ásgeir og því er ljóst að gífurlega spenna er á milli þessara tveggja drengja um hvor landar titlinum. Ásgeir hjó í forystu Sölva á síðsta móti á Sauðárkróki um ein 6 stig og geta þau stig verið mjög dýrmæt þegar upp verður staðið. Ef Ásgeir sigrar í þeim þremur moto-um sem eftir eru í síðustu umferðinni og Sölvi lendir í öðru sæti, að þá verður Ásgeir Íslandsmeistari með einungis einu stigi á Sölva. Þannig að Sölvi verður að leggja allt í sölurnar til að tryggja það að hann sé að minnsta kosti framar Ásgeir yfir endamarkið í það minnsta eitt skipti af þeim þremur sem eru í boði og alls ekki aftar en í næstur á eftir Ásgeiri yfir ráslínuna til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Þannig að spennan er mjög mikill í þessum flokki. Ásgeir verður hreinlega að vera í það minnsta þremur sætum fyrir framan Sölva í öllum moto-inum sem eftir eru til að ná að sigra Sölva, eða sigra öll moto-in.
Það eru þó ekki bara þessir tveir sem geta orðið Íslandsmeistarar, þó það verði að segjast að líkurnar á því að annar hvor þeirra landi titlinum séu afgerandi. En Friðrík F. Friðriksson á fræðilegan möguleika á að verða Íslandsmeistari en til að það geti orðið þarf allt að ganga á afturfótunum hjá þeim tveim fyrrnefndu, Sölva og Ásgeiri. Friðrik er 59 stigum frá Sölva og 51 stigi á eftir Ásgeiri. Miðað við núverandi stöðu og gengi í undanförnum mótum verður að teljast líklegast að Friðrik einbeiti sér að því að halda þriðja sæti í stigakeppninni og verjast ágangi Bjarka Sigurðssonar, sem er í fjórða sæti með 178 stig og er 22 stigum á eftir Friðrik. Bjarki á fræðilegan möguleika á að enda í öðru sæti og þá með sömu formerkjum og hjá Friðrik, þ.e. að allt gangi upp á afturfótunum hjá þeim þremur sem fyrir framan hann eru, en það verður að teljast afar ólíklegt að af því verði. En hver veit?
Hægt er að skoða stöðuna nánar hjá öllum keppendum í þessum flokki með að smella hér.
MX2:
Þessi flokkur hefur vaxið mikið frá árinu á undan og eru margir afbragðsgóðir ökumenn í þessum flokki. Núverandi Íslandsmeistari, Brynjar Þ. Guðmundsson, varð að sætta sig við að horfa af hliðarlínunni í annarri umferð og þar má segja að titilvörn hans hafi fokið út um gluggann. Sá aðili sem leiðir stigakeppnina til Íslandsmeistara og það nokkuð örugglega er Gunnlaugur Karlsson. En samtals er Gulli, eins og hann er betur þekktur, komin með 273 stig og eru 50 stig í næsta keppenda, sem er Hjálmar Jónsson. Gulli þarf að tryggja sér um 26 stig í síðastu umferð til að landa Íslandsmeistaratitlinum og er afar fátt sem bendir til þess að hann muni klúðra því. Enda eru um 75 stig í pottinum og dugar Gulla að vera í kringum tíunda sæti að meðaltali í síðustu þremur moto-inum til að klára dæmið.
Helsti keppinautur hans, þ.e. skv. stigatöflu, er Hjálmar Jónsson. Hjálmar er engin aukvissi í sportinu og verður að stefna á ekkert annað en sigur í öllum þremur moto-inum sem eru í síðustu umferð og vonast til að Gulli fattist flugið svo að hann geti unnið titilinn í ár. Hjálmar er með 223 stig. Sá sem kemur næstur í stigakeppninni er Heiðar Grétarsson, en Heiðar er núverandi Íslandsmeistari í MX unglingaflokki. Heiðar fór upp í MX2 á þessu ári og gekk mjög vel framan af, en það hefur ekki alveg gengið sem skyldi í síðustu tveimur mótum og má því með sanni segja að honum hafi fattast flugið. En engin skyldi vanmeta þennan dreng og þá sérstaklega í Bolöldu, hans heimabraut. Heiðar er að vísu 65 stigum á eftir efsta manni og verður því að teljast mjög ólíklegt að hann komi til með að skáka Gulla um Íslandsmeistaratitilinn, en Heiðar á góða möguleika á að ná öðru sæti og með smá heppni gæti það dæmi gengið upp.
Ekki langt undan þessum þremur sem leiða stigakeppnina er núverandi Íslandsmeistari Brynjar Þ. Gunnarsson, betur þekktur sem Binni Morgan. Binni er aðeins 9 stigum á eftir Heiðari og 24 stigum á eftir Hjálmari, þannig að Binni á fræðilegan möguleika á öðru sætinu í þessum flokki. En líklegast verður að teljast að Binni komi til með að berjast um að klára þriðja sætið í stigakeppninni til Íslandsmeistara og er það því fyrst og fremst um að kenna að hann þurfti að hætta keppni í annarri umferð vegna meiðsla sem hann varð fyrir rétt fyrir það mót. Binni nagar sig sjálfsagt upp í olnboga nú þegar fyrir að hafa þurt að sitja á hliðarlínunni í því móti, en svona er þetta í motocrossi og hefur sjúkralistinn verið óvenju stór á þessu ári hvað keppendur varðar.
Hægt er að skoða stöðuna nánar hjá öllum keppendum í þessum flokki með að smella hér.
MX1:
Það er Englendingur að nafni Ed Bradley sem leiðir stigakeppnina til Íslandsmeistara hér á landi og er hann með ágætis forskot á hina keppinauta sína, eða 33 stig á næsta keppenda. En þar sem Ed Bradley er erlendur ríkisborgari og hefur ekki haft fasta búsetu á Íslandi síðustu þrjú ár, að þá getur hann ekki orðið Íslandsmeistari í einstaklingsíþrótt skv. skilgreiningi ÍSÍ. Þannig að eini titilinn sem hann getur í sjálfu sér landað er liðameistaratitilinn. Sannarlega áhugaverð staða. Þá verðum við að skoða þá sem eftir koma og fyrstur á með jafninga er engin annar en núverandi Íslandsmeistari í motocrossi og enduro Einar S. Sigurðsson. Einar er með 231 stig og með 20 stiga forskot á Valdimar Þórðarsonar sem kemur á eftir Einari með 211 stig. Það eru 75 stig í pottinum, svo Valdimar á svo sannarlega meira en fræðilegan möguleika á að ná Einari að stigum og landa Íslandsmeistaratitlinum. En miðað við árangur á þessu ári og útkomu úr mótunum að þá verður að segjast að það er á brattann að sækja fyrir Valda og þarf allt að ganga upp hjá honum og allt að vera á hallandi fæti fyrir Einar svo dæmið gangi upp. Þannig að eins og staðan er núna, að þá lítur út fyrir að Einar S. Sigurðsson landi Íslandsmeistaratitlinum annað árið í röð. En ekkert er ómögulegt og síst af öllu í motocrossi þar sem allt getur gerst
Næstur á eftir þessum tveim piltum, að Ed Bradley undanskildum sem trónir á toppnum eins og greint hefur verið frá að framan, að þá kemur engin annar en Gunnar Sigurðsson. Gunnar er með 184 stig og á fræðilegan möguleika á að verða Íslandsmeistari, þ.e. ef bæði Einar og Valdi skyldu gjörsamlega missa það og "skíta upp á bak" eins og stundum hefur verið nefnt. Gunnar hefur verið ótrúlega drjúgur í sumar og hefur sýnt það í sumar að engin ætti að vanmeta hann. Hefur hann verið mjög góður í ræsingum og oftar en ekki náð "holeshot-inu". En ætli Gunnar stefni ekki frekar á að berjast um annað sætið við hann Valda og verja stöðu sína gagnvart næstu keppendum en næstur á eftir Gunnari er engin annar en Aron Ómarsson, en Aron er aðeins 4 stigum á eftir Gunnari eða 180 stig. Aron var óheppin í byrjun tímabils þar sem hann meiddist rétt fyrir fyrsta mótið og varð því að sætta sig við að horfa á mótið af hlíðarlínunni. Það hefði verið fróðlegt að sjá stöðuna á toppnum ef Aron hefði verið með allt tímabilið. Rétt á eftir Aroni kemur nífaldur Íslandsmeistari Ragnar I. Stefánsson með 175 stig, 5 stig á eftir Aroni og þar á eftir kemur Gunnlaugur Karlsson með 171 stig.
Þannig að miðað við þessa upptalningu að þá getur allt gerst og staöan síður en svo örugg fyrir efstu menn um að halda núverandi stöðu í stigakeppninni. Þannig að mikil spenna er líka í þessum flokki fyrir lokamótið sem verður í Bolöldu 30 ágúst. Annað sem gæti sett verulegt strik í reikninginn fyrir þá sem keppa um titilinn í MX1, er að MX2 keppir með MX1 og geta þeir keppendur haft veruleg áhrif á útkomuna í mótinu.
Hægt er að skoða stöðuna nánar hjá öllum keppendum í þessum flokki með að smella hér.
Þá er þessum pælingum lokið og ég er komin með ritstíflu. Vona að menn hafi ekki þurft meira en tvo kaffibolla, eða einn bjór, til að komast fram úr þessari lesningu. Nú er bara að sjá hvað úr verður 30 ágúst og hver það verður sem komur til með að reka upp sannkallað Tarzan öskur, þegar langþráum áfanga er náð og Íslandsmeistaratiltillin í höfn.