Reynsluakstur Honda CRF250 árg.’08 Prenta Rafpóstur
laugardagur, 20 október 2007

Hér kemur lausleg þýðing á áliti Motocross Action Magazine á 2008 Hondu CRF250 hjólinu.  Ég tek það skýrt fram að þetta er ekki mitt mat á hjólinu, heldur er þetta álit reynsluaksturs ökumanna blaðsins og er þetta eingöngu þýðing á því sem stendur í blaðinu. 

Eins og svo oft áður, að þá biðu reynsluökumennirnir spenntir eftir að fá að prófa nýjustu útgáfu af Hondu CRF250 hjólinu.  Honda CRF250 hefur átt gott líf síðan það koma á markað 2004 og er ekki þekkt fyrir að vera með bestu fjöðrunina, ekki heldur hraðasta hjólið, né það hjól sem lætur best að stjórn.  Nei Honda hjólið er einna helst þekkt fyrir að vera eitt mest selda 250cc fjórgengishjól í Bandaríkjunum.  Til marks um markaðshlutdeild hjólsins að þá er söluhlutfallið allt að því 2:1, s.s. af hverjum 3 hjólum sem seljast í Bandaríkjunum af 250cc fjórgengishjólum að þá eru 2 af þeim Honda CRF250.   Ein helsta nýjungin sem Honda kynnir fyrir CRF250 er stýrisdemparinn sem hefur fengið þá virðulegu skammstöfun: HPSD (Honda Progressive Steering Damper).  Honda er einni framleiðandinn sem hefur gert stýrisdempara að staðalbúnaði hjóla en slíkir demparara er alls ekki óþekktir og sá fyrsti koma á markað í kringum 1930 og var framleiddur af Ohlins-built Scotts.  Honda byrjaði að nota Scotts dempara fyrir keppendur eins og Ricky Carmichael á sínum tíma, þegar hann keyrði á Hondu.  Helsti munurinn núna er sá að í þá daga var demparinn falin undir númeraspjaldinu á stýrinu, svo engin sæi hann.  En nú hefur Honda ákveðið að markaðsetja demparann sérstaklega og hafið sína eigin framleiðslu.

Nýji stýrisdemparinn (HPSD)

Stóra spurning reynsluökumanna blaðsins var hvort að þessi nýji dempari hefði áhrif á aksturseiginlega hjólsins til hins betra.  Svarið er “já” og “nei”.  Útkoman með demparann var þannig að allir ökumenn töldu sig hafa bætt sig í brautinni með betri tíma en án hans og þyrftu að hafa mun minna fyrir því að hjóla.  En það er svo sem ekkert nýtt fyrir þessum reynsluökumönnum þar sem þeir höfðu upplifað þetta áður á hjólum sem voru með dempara frá Scotts.  Þannig að þeirra upplifun var “já” og “nei”.

Pústkerfið

Annað sem reynsluökumenn biðu eftir að sjá var hvort að Honda CRF250 væri ennþá með tvöföldu pústkerfi og sú er raunin.  Eitthvað fer þetta pústkerfi hressilega í taugarnar á þeim og telja að þetta tvöfalda kerfi sé ekkert annað en markaðstrikk Hondu og í raun líði hjólið fyrir það.  Þeir hafa gert ýmsar prófanir á hjólinu frá því það koma fyrst á markað og þeirra mat er að hjólið komi best út með einföldu pústkerfi frá þriðija aðila.  Honda heldur því fram að vera með tvöfalt púst gefi hjólinu betra jafnvægi.  Þessu mótmælir blaðið og segir að þetta tvöfalda kerfi sé þyngra en einfalt og jafnvægis ávinningurinn sé því nánast engin, ef einhver.

Hvað gerði svo Honda við vélina fyrir 2008 árgerðina. 

Jú, það sem þeir gerðu einna helst var.

  1. Þjöppunin var aukin úr 12.9:1 í 13.1:1
  2. Stimpilinn var lagaðar til og tímastilling sveifrásarinnar var breytt
  3. Vélar “counterbalance shaft” og gírar eru léttari til að auka svörun bensíngjafarinnar
  4. Nýr svartur kassi og endurhönnun pústs eykur snúningsgetu vélar um 130 rpm (frá 13.370 rpm til 13.500 rpm)
  5. Kúplinginn er með stífari gormum til að auka tilfinningu fyrir henni

Er 2008 árgerðin af CRF250 hraðara í braut en 2007 árgerðin?

Já!  Það er samdóma álit reynsluökumanna blaðsins að hjólið er hraðara en 2007 árgerðin og sú hraða aukning kemur einna helst fram á milli snúningsins 8.500 til 13.500.  Sem þýðir að Honda hefur bætt kraftin frá “mid-to-top”  Þeir sem verða hvað einna mest varir við þennan aukna kraft eru eldri eigendur Honda.  Aftur á móti kvörtuðu stærri reynsluökumennirnir yfir því hversu langan tíma það tæki hjólið að fara í gegnum allt “powerbandið”, en það er þeirra mat að vélin sé óþarflega lengi að fara í gegnum allt bandið.  En afleiðingin er sú að það er mjög gott að hjóla hjólinu, þó það sé ekki hraðast á milli gíra eða “corner to corner”.  Allir reynsluökumennirnir vildu fá meiri kraft út úr vélinni

Hvað með gírana á hjólinu?

Í ljósi þess að Honda hefur lagað “mid-to-top” kraftin að þá gátu reynsluökumenn blaðsins í fyrsta sinn notast við óbreytt gírhlutfall (13/51).  En öllu jafna hafa þeir í gegnum tíðina skipt um tannhjól að aftan og bætt við einni tönn.

Átti Honda eitthvað demparana fyrir 2008 hjólið?

Já, loksins gerði Honda eitthvað við demparana í hjólinu en það hefur verið einna stærsti “akkilesarhæll” hjólsins frá því að það koma að markað að mati blaðsins.  Breytinginn fólst fyrst og fremst í því að þeir stífðu fjöðrunina.

Hversu góð er þá fjöðrunin í ljósi sögunnar?

Svarið var mjög skýrt frá reynsluökumönnum blaðsins.  Þeim líkaði alls ekki við framgaflana á hjólinu og vildu gjarnan sjá mun stífari fram fjöðrun.  Þeir upplifði sig eins og þeir væru að prófa hjól með dempara frá áttunda áratugnum, svo afdráttarlausir eru þeir í greininni.   Hvað afturfjöðrunina varðar að þá var hún skárri heldur en hún hefur verið en samt ekki ásættanleg að þeirra mati.

Hvað fór svo í taugarnar hjá reynsluökumönnunum?

  1. Framgaflarnir eru slys að þeirra mati
  2. Dunlop D742FA framdekkið er alls ekki gott að þeirra mati og mæla þeir endregið með því að eigendur skipti um dekk að framan
  3. Tvöfalda pústkerfið fór afskaplega í taugarnar á þeim og þeir hreinlega sjá ekki ávinninginn sem Honda talar um og spyrja, “ef það er svona gott, af hverju er það þá ekki á CRF450 hjólinu”?
  4. Griphandföngin eru einhver þau hörðustu sem þeir hafa prófað og líktu þeim við Arnold nokkurn Schwarzenegger.

Hvað fíluðu svo reynsluökumennirnir við hjólið?

  1. “Triple clamp”.  Þeir voru sérlega ánægðir með þennan hluta frá Honda
  2. HPSD stýrsidemparinn er góð viðbót og aldrei þessu vant að þá er þetta ekki markaðstrikk frá Honda.  Þetta í raun virkar eins og sambærileg Scotts lausn gerir, sem hefur verið notuð óspart af Ricky C. og Kevin W. í gegnum tíðina.
  3. Bremsurnar eru mjög nákvæmar á hjólinu, þó þær séu ekki þær öflugustu í þessari deild hjóla en þær eru mjög notendavænar að þeirra mati
  4. Þetta auka sem hægt er að kaupa.  En þeir eru mjög skotnir í svarta CRF250 hjólinu og finnst það “lúkka” geðveikislega flott
  5. Stýrið er mjög gott að þeirra mati og eru þeir allir hrifnir af 7/8 tommu Renthal 971 stýrinu.

 Hver er svo loka niðurstaða reynsluakstursins?Þeir er nokkuð sáttir við tilraun Honda til að laga það sem þeir sögðust ætla að laga og markmiðið var sett að laga stýriseiginleika hjólsins, koma með nýja og breytta tækni, stífa fjöðrunina og bæta “powerbandið”.  Allt eru þetta gjöfug markmið, en Honda hefur ekki tekist svo vel til á öllum sviðum.  Fjöðrunin er enn sama vandamálið í þessu hjóli sem áður og skýrir kannski af hverju Honda er ekki með enn stærri markashlutdeild í Bandaríkjunum.  Skilaboðin til Honda eru skýr.  Lagið fjöðrunina í þessu hjóli og það sem fyrst. 

Ég tek það fram að þetta eru ekki persónulegar skoðanir mínar á þessu hjóli, heldur er þetta eingöngu lausleg þýðing frá Motocross Action Magazine.  En hægt er að nálgast efni frá þeim á www.motocrossactionmag.com.  Ég hef ekki prófað þetta hjól en mér finnst það flott og þá sérstaklega svarta úgáfa þess.

 
< Fyrri   Nćsti >