Þriðju umferð Íslandsmeistaramótsins í motocrossi lokið Prenta Rafpóstur
mánudagur, 26 júlí 2010
img_6673.jpgÞriðja umferð í motocrossi er afstaðin og fór hún fram í Sólbrekku.  Svæðið er búið að fá mikla andlitslyftingu síðustu vikur og hefur VÍR unnið geysi mikið starf í að bæta aðstöðuna.  Verð að segja að ég var fyrir nokkrum vonbrigðum með skráningu fyrir mótið og þá sérstaklega í MX unglinga sem virðist vera að týna tölunni þó svo sannarlega séu þarna inni flottir keyrarar eins og Kjartan Gunnarsson, Gummi Kort og Björgvin Jónsson svo einhverjir séu nefndir.  Einnig sakna ég Bjarka Sigurðsson hrikalega úr MX2, einn skemmtilegasti keppnismaður sem ég þekki.  Alltaf glaður, alltaf brosandi, alla vega þegar ég hitti hann.  En vikjum þá að sjálfri keppninni og úrslitum dagsins.

img_5887.jpgMX-B:  Þessi flokkur er að verða með fjölmennari flokkum á línu og eru þarna flottir ökumenn eins og t.d. Haukur Þorsteinsson sem gerir sér það að leik að keppa ekki bara í MX-B 40+ flokknum, heldur keppir hann líka í MX2.  Já, hann Haukur tekur endurofílinginn á þetta og setur met í brautarnýtingu þessa dagana, því enginn hjólar jafn mikið í þessum mótum og hann.  En sigurvegari í MX-B varð Steingrímur Ö. Kristjánsson sem aldrei þessu vant keppti ekki í apelsínugula vinnugallanum sínum...:0)  Elís B. Blængsson varð annar og Róbert Jónsson, eða herra Pepsi Max varð þriðji.  Í 40+ flokknum átti Haukur Þorsteinsson skuldlaust og sigraði með glæsibrag.  Hann er eins og kakkalakki, ódrepandi kvikindi.  Sigurður H. Magnússon varð annar, en hann hóf nýlega að aka 250 tvígengishjóli sér til gamans og Guðmundur Guðmundsson varð þriðji.

img_6062.jpgMX kvenna:  Þessi flokkur var fjölmennastur á ráslínu og er virkilega gaman að sjá hvað þær eru orðnar ákveðnar og mikið keppnis.  Þarna vantaði að vísu Karen Arnardóttir og einhverjar fleiri en samt var þessi flokkur stærstur á ráslínu.  Signý Stefánsdóttir var í algjörum sérflokki og hringaði alla keppinauta sína.  Já, spurning hvort að Signý þurfi að fara að reyna að stríða strákunum í MX unglinga til þess að fá þá keppni sem hún þarf.  Alla vega var hún að hjóla sóló við fjarveru Karenar sem hefur verið sú eina sem hefur átt eitthvað í hana í ár.  Einey Ö. Gunnarsdóttir átti sína bestu keppni sem ég hef séð hana taka þátt í og skilaði sér nokkuð örugglega í annað sætið eftir góðar ræsingar.  Er stöðugt að ná betri tökum á Suzuki RM-Z250 tvígengishjólinu og get ég ekki annða en dáðst að þessum stúlkum sem láta sig hafa það að hjóla á þessu.  Yngsta systirnn, Ásdís E. Kjartansdóttir varð svo þriðja og þessi rauðhærða skvetta er stöðugt að bæta sig og hef ég mjög gaman af að fylgjast með henni eða þeim öllum systrum í keppni.

Hvað mitt fólk varðar í þessum flokki, að þá vorum við bara nokkuð ánægð eftir daginn þó að það hafi uppgötvast að Björk keyrði á sprungnu í bæði tímatökunni og fyrra moto-inu.  Já, maður er stundum ekki alveg að fylgjast með sínu fólki.  Margrét er að stíga sinn fyrstu skref aftur á hjóli og varð með bara til að vera með og fá fílinginn. 

img_6294.jpg85cc:  Þessi flokkur er nokkuð tvískiptur, þessir sem eru komnir á síðari hlutann í flokknum og þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref á keppnum.  Því hefur MSÍ verið með hvatningarverðlaun fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref og verðlaunar þá sem yngri eru sérstaklega.  Á aldrinum 12-13 ára sigraði Hlynur Hrafnkelsson og keyrði hann fanta vel í þessu móti.  Óliver Ö. Sverrisson varð annar og Viggó S. Pétursson varð þriðji og er þetta sami hópur og skipaði þennan flokk í síðustu keppni.  Sigurvegari í heildina í 85cc flokknum varð Guðbjartur Magnússon á fullu húsi stiga, en hann keyrði þetta á hörkunni þar sem hann meiddi sig á fæti annað hvort rétt fyrir mótið eða í tímatökunni.  Þorsteinn H. Sigurðsson varð annar og var hann mun nær Guðbjarti núna en í síðasta móti og er þessi piltur stöðugt að taka framförum.  Alexander Ö. Baldursson varð þriðji og hefur þessi piltur bætt sig líka mikið.

img_6363.jpgMX unglinga:  Það varð nokkuð hörð keppni í þessum flokki og þá sérstaklega á milli Kjartan Gunnarssonar og Gumma Kort.  En öllu jafna finnst mér alltaf gaman að fylgjast með þessum flokki.  Björgvin Jónsson sem hefur verið að keppa grimmt við Kjartan og Gumma virtist ekki finna sig eins vel í þessari keppni og þeim tveim sem afstaðnar eru.  Friðgeir Guðnason leit bara nokkuð vel út strákurinn á Husquarna hjólinu sem hann er nýkomin á, eftir að hafa verið á Hondu alla sína tíð.  Sigurvegari dagsins á jafn mörgum stigum og sá sem varð í öðru sæti varð Kjartan Gunnarsson.  Gummi Kort varð annar og er óðum að sína sitt rétta andlit eftir hálf misheppnað fysta mót í Ólafsfirði vegna bilana.  Björgvin Jónsson varð þriðji eftir daginn.

img_6636.jpgMX2:  Þessi flokkur ætti að vera sé mest spennandi að mínu mati þar sem þarna eiga að vera komnir upp afar hungraðir einstaklingar upp úr MX unglinga.  En í dag vantar nokkra flotta hjólara í þennan flokk.  Ef maður miðar við FIM eða AMA, að þá er þetta sá flokkur þar sem hlutirnir eru að gerast en í dag snýst þetta meira orðið um hvaða úrslitum þeir ná gagnvart keppendum í MX Open.  Sorrý guys, en þetta er mín skoðun.  Eyþór Reynisson var í sérflokki í dag og sigraði eftir fanta akstur.  Viktor Guðbergsson varð annar og var að keyra jafnt og þétt en týndíst pínu sökum þess að þetta blandast í MX Open.  Ég tel að þetta verði síðasta árið hans Viktors á 250cc hjóli þar sem nú þegar hefur hann verið að sýna flotta takta á 450cc hjóli.  Sá keppandi sem ég tel að hafi bætt sig hvað mest á árinu í þessum flokki það sem af er, var Jónas nokkur Stefánsson sem endaði í þriðja sæti.  Drengurinn hefur bætt sig mikið frá því í fyrra og mikill munur að horfa á piltinn.

img_6708.jpgMX Open:  Fyrir mótið bjuggust allir við að Aron yrði sterkur á sínum heimavelli, en spurningin var hvort að einhver myndi ná að halda í piltinn og hvort hann myndi halda sigurgöngu sinni áfram því allt getur gerst í þessu sporti.  Ræsinginn byrjaði með lætum og James Robinson var með holuskotið en það leið ekki á löngu þar til Aron tók forystuna og hélt henni til enda.  Í síðari moto-inu að þá var þetta endurtekið efni fyrir utan að hjólið hans James hreinlega brotnaði í orðsins fyllstu merkingu sem gerði það að verkum að hann DNF.  Aron Ómarsson sigraði því á fullu húsi stiga og ef svo heldur áfram sem horfir að þá þarf drengurinn að fara að leita sér að styrktaraðilum til að komast út á MXoN í USA í haust.  Hjálmar Jónsson keyrði jafnt og þétt, en náði ekki að ógna Aroni að neinu marki.  Hjálmar endaði samt annar eftir daginn.  Eyþór Reynisson varð svo þriðji í MX Open eftir daginn og stefnir óðum í það sama og Aron að mínu mati, þ.e. á MXoN í USA. 

Jæja, þá er þessari upptalningu lokið.  Ég byrjaði að taka myndir en gafst svo upp þar sem rykið varð svo yfirþyrmandi að ég hreinlega fann þegar vélin og linsan öskruðu á mig og báðu mig um að hætta.  Þegar maður er að borga brúsann sjálfur í þessu dóti, að þá er maður farin að hugsa sig tvisvar um hvað búnaðinn snertir.  Þannig að ég tók eingöngu myndir úr fyrra moto-inu og varð í fyrsta sinn síðan 2006 að hætta frekari myndatökum.  Hægt er að skoða myndirnar með að smella hér

Vill að lokum þakka VÍR, keppendum sem og öllum öðrum sem komu nálægt þessu að einhverju leyti fyrir vel undirbúna keppni í alla staði, nema blessaða rykið...:0)  Fannst verðlaunagripirnir flottir og mjög sérstakir. 

 
< Fyrri   Næsti >