|
Chad Reed međ vírus, hćttur keppni í bili |
|
|
|
laugardagur, 24 júlí 2010 |
Jæja, þá er það komið í ljós hvað er að hrjá vin minn Chad Reed, en karlinn þjáist af vírus sem heitir Epstein Bar. Ekki veit ég hvað hann gerir þessi blessaði vírus en sökum hans hefur Chad Reed í samráði við lækna, fjölskyldu og liðið sitt, Monster Energy Kawasaki, ákveðið að draga sig í hlé tímabundið eða þar til hann hefur náð tökum í baráttu sinni við þennan vírus. Það verður sjónarsviptir af karlinum og vona ég að hann nái sér sem allra fyrst og haldi áfram að keppa, enda flottur hjólamaður á ferð.
|