Josh Hill í rusli eftir misheppnaða bakflipps tilraun Prenta Rafpóstur
föstudagur, 23 júlí 2010
josh-hill-yamaha.jpgJosh Hill, liðsfélagi James Stewart, er illa slasaður eftir misheppnað bakflipp nú fyrir örstuttu.  En hann var að æfa sig fyrir X-Games og ætlaði að taka þátt í "speed & style".  Ekki er vitað hvenær hann nær sér aftur og getur þetta sett verulegt strik í reikninginn hjá honum er varðar samning hans hjá liðinu.  Mönnum er minnisstætt að Josh Hill komst mjög óvænt á samning hjá San Manuel Yamaha eftir að hafa átt afar misjöfnu gengi að fagna í AMA Outdoors sumarið 2009 og eftir að hafa lent í slagtogi með J-Law sem greinlega afvegaleiddi þennan pilt.  Missti hann í kjölfarið samning sinn hjá Yamaha sem gerði í raun meira en að segja upp Josh Hill þar sem þeir lögðu niður allt liðið eins og það leggur sig.  Josh Hill stóð sig ágætlega framan af í supercrossinu en missti flugið eftir meiðsli.  Nú er ég ansi hræddur um að Larry Brooks og félagar leiddi sér að öðrum ökumanni og uppræti samning sinn við Josh Hill.  Hægt er að horfa frá æfingu Josh Hill með að smella hér, en þeir sýna ekki sjálft atvikið heldur undanfarann og þegar vinurinn er komin í sjúkraflug eftir slysið.
 
< Fyrri   Næsti >