JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Liðin fyrir MXoN óðum að líta dagsins ljós Prenta Rafpóstur
sunnudagur, 18 júlí 2010

mx3_mxon_start.jpgÓtrúlegt en satt, að þá er þetta sumar orðið rúmlega háflnað og senn fer haustið að renna í garð með tilheyrandi veðrabrigðum.  Persónlega finnst mér haustið fallegasti tími ársins og það gera litirnir sem myndast í náttúrunni.  Það sem fylgir haustinu er að þá hefst heimsmeistarakeppni okkar hjólamanna sem við höfum gefið skammstöfunina MXoN (MX of Nations).  Nú er hvert landið á fætur öðru að gefa út hverjir munu verða fulltúrar þeirra í þessari margrómuðu keppni en við hér klakanum bíðum með allar yfirlýsingar um slíkt þar til fjórar umferðir af fimm er lokið.  Verð þó að segja að Aron Ómarsson virðist vera öruggur í MX1 og Eyþór Reynisson sem MX2 ökumaður.  Hver skipar þriðja sætið í liðinu er ósvarað og mun sá keppandi væntanlega keyra í MX3. 

James Stewart virðist vera tilbúinn að koma sér aftur að því sem hann gerir best, þ.e. að hjóla, og hætta þessu raunveruleikaþátta bulli sem hefur virkilega sett hann niður að mínu mati.  En hann ætlar að taka þátt í fjórum keppnum að því virðist eingöngu til að eiga möguleika á að keppa fyrir hönd USA á MXoN.  Þó ég efi það ekki að hann sé hraður og eigi mjög góða möguleika að komast í lið Bandaríkjana að þá finnst mér persónulega þetta nokkuð hallærislegt þar sem gengið er, ef af verður, framhjá mönnum sem eru búnir að keppa allt árið á fullu en eru ekki að þessu "only for the show".  Að sumu leyti vill ég að hann verði valinn því mig dauðlangar að sjá hann keppa, þannig að þetta tosast á hjá manni.  Fyrir neðan má sjá listann yfir þá ökumenn sem hafa verið valdir og/eða eru í pípunum skv. vefmiðlum.

Team USA

Ryan Dungey, Trey Canard, Jake Weimer, Andrew Short or James Stewart

Team USA B team

Josh Grant, Justin Barcia, Mike Alessi or Zach Osborne

Team France

Christophe Pourcel, Marvin Musquin, Steven Frossard, Xavia Boog or Gautier Paulin

Team Italy

Antonio Cairoli, David Philippaerts, Alessandro Lupino

Team Australia

Chad Reed, Brett Metcalfe, Jake Moss

Team Belgium

Clement Desalle, Ken De Dycker, Steve Ramon, Jeremy Van Horebeek of Joel Roelants

Team New Zealand

Ben Townley, Josh Coppins and Brad Groombridge

Team South Africa

Tyla Rattray, Grant Langston and Gareth Swanepoel

Team Great Britain

Dean Wilson, Tommy Searle, Shaun Simpson, Brad Anderson or Jake Nicholls

Team Germany

Max Nagl, Ken Roczen and Marcus Schiffer

Team Netherlands

Jeffrey Herlings, Marc De Reuver and another
 
< Fyrri   Næsti >

Heyrst hefur

12 júní 2010

... Að menn eiga eftir að gapa þegar þeir sjá MX unglinga næst á ráslínu

... Að einn af ungu efnilegu ökumönnum þar hafi skipt um lit á hjóli í vikunni eftir margra ára viðurveru á hinum litnum

... Að sá hafi fengið sig fullsaddann af bilunum og hafi því skipt um lið/lit.

... Að það verður forvitnilegt að sjá hvernig hann finnur sig á nýju hjóli, nýrri tegund.

10 júní 2010

... Að margir hafi haft það að orði að uppstilling fyrstu hópa á ráslínu hefði verið afar einkennileg og þá sérstaklega ef tekið er tillit til hvíldar á milli moto-a

... Að þetta stutta hlé á milli fyrstu moto-a hafi heldur betur sett strik í reikninginn fyrir keppendur í MX-B og MX kvenna

... Að sumum hafi verið mjög brátt í brók eftir fyrsta moto en þá hafi hafist leitin af kömrunum sem voru ekki beint í nálægð við pittinn

... Að þegar keppendur loksins fundu kamarinn að þá var það upp á happa og glappa hvort hann var í notkun, enda bara tveir slíkir á svæðinu.

... Að einn keppandinn hafi hreinlega ekki haft tíma til að skeina sér á milli moto-a og hafi hlaupið nánast með buxurnar á hælunum til að komast aftur út í tíma.

... Að viðkomandi ökumaður hafi reynt að standa eins mikið og hann gat í síðara moto-inu, "I wonder why"?

... Að þessum ökumanni fannst skítalykt af dagskrá MSÍ þennan daginn og að sumir töldu að hann hefði drullað upp á bak...:0)

31 maí 2010

... Að það sé hugur í mönnum fyrir fyrsta MX mótið í Ólafsfirði um helgina

... Að sumir ætli sér stóra hluti og fyrir sumar er ekkert annað en sigur sem kemur til greina

... Að nýja Yamaha YZ450F árgerð 2010 sé komið til landsins

... Að dýrðina má líta á hjá Artic Trucks, en þar standa tvö hjól til sýnis

... Að margir hafi komið og slefað yfir þessum glæsilegu hjólum 

28 apríl 2010

... Að Sveppagreifinn hafi kynnst móðir jörð of náið í gær

... Að Sveppagreifinn þakkar fyrir að hafa verið með Asteriks spelkur í gær og í góðri brynju

... Að morfín virkar!

... Að Sveppagreifinn missir líklegast af Klausturskeppninni...:0(

... Að Sveppagreifiinn muni hér eftir nota staðbundið deyfilyf sem heitir Thule að hætti Katoom...

11 mars 2010

... Að nú styttist óðum í að flaggskip Yamaha, YZ450F árg.'10, komi til landsins í allri sinni dýrð

... Að margir hverjir geta ekki beðið eftir að berja þennan grip augum

... Að líklegast muni verða keppt á slíku hjóli á Klaustri 2010

... Að allt ætlaði um koll að keyra þegar opnað var fyrir skráningu á Klausturskeppnina í gær

... Að Hákon vefstjóri motocross.is hafi staðið með ísfötu á kantinum til að kæla netþjóninn niður sökum álags

... Að hamagangurinn hafi verið svo mikill að fartölvur sumra keppenda hafi verið í hættu og einhverjar af þeim hafi endað í gólfinu af æsingi

... Að Davíð Knútsson er skráður til leiks

... Að maður getur vart beðið eftir þessari keppni og nú má bara sumarið koma..:0)

16 janúar 2010

... Að Aron og Signý séu farin til Belgíu þar sem þau munu koma til með að æfa saman

... Að bæði ætli sér að taka þátt í mótum sem haldin verða í Belgíu á þessu ári

... Að Aron muni að öllum líkindum taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hér á heima þrátt fyrir að vera farin til Belgíu

... Að nú sé orðið útséð með að VÍK geti útvegað sér aðstöðu innanhús til æfinga fyrir unga sem aldna

... Að allir tímar í reiðhöllum landsins séu fullnýttir og ekkert laust fyrir hjólafólk þrátt fyrir að umleitanir hafi byrjað í nóvember

... Að VÍK sé þó búið að tryggja það að hægt verði að halda í það minnsta eina endurocrosskeppni í viðbót

... Að innanhúsæfingarnar hafa sýnt að hjólafólk sárvantar innanhús aðstöðu fyrir sitt sport

27 nóvember 2009

... Að allir þeir bestu í enduro standi í röðum af æsingu yfir að fá að taka þátt í nýju endurocrossmótaröðinni

... Að hver sem einn hafi boðið fram krafta sína til að koma þessari keppni á laggirnar

... Að búið sé að helling af afar skemmtilegum efnum til að gera hinar ýmsu þrautir og verður þarna hlutir sem aldrei hafa sést áður í svona keppni

... Að Sölvi #123 sé "without a ride" fyrir tímabilið 2010 og stundi nú enduroakstur af miklum móð á pabbahjóli

... Að Aron #66 hafi vakið mestu athygli á uppskeruhátíð MSÍ fyrir smekklegan klæðaburð við verðluanaafhendinguna.  Flottar geirvörtur Aron..:0)

... Að Aron hafi tekið allan pakkann og farið í kampavínsbað upp á sviði hljómsveitarmeðlimum til mikillar gleði eða þannig

... Að um 800 manns hafi komið á Yamahasýningu Artic Trucks um síðustu helgi til að skoða herlegheitinn og mikill áhugi hafi verið hjá gestum

 

Skoðanakönnun

Hvernig fannst þér Klausturskeppnin 2010?
 

Teljari

Gestir: 2308243
JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com

mohawks---banner-150x250.gif


 

Markaðstorg