|
Álfsnes opnar í dag eftir endurbætur |
|
|
|
miðvikudagur, 16 júní 2010 |
Álfsnesbrautin opnar í dag eftir endurbætur og viðhald. Opnar brautin kl.17:00 og áður en hleypt verður í hana, að þá er nauðsynlegt að allir labbi einn hring og týni steina sem komið hafa upp eftir rótið í brautinni. Mér skildist á Reyni að búið sé að breikka eitthvað af pöllunum og verður gaman að sjá hvernig það kemur út. Nú er um að gera að mæta og æfa sig þar sem næsta mót í Íslandsmeistaramótinu í motocrossi fer fram í þessari braut. VÍK minnir alla á að vera með miða sem seldir eru í N1 í Mosfellsbæ. Miðalaus maður verður umsvifalaust vísað úr braut. Sú hugmynd hefur komið hjá VÍK að taka myndir af þeim sem eru miðalausir og hengja upp í húsi og setja á netið undir sérstökum "tossalista". Þannig að ef þú vilt ekki lenda á þessum "Wall Of Shame" að þá er vissara að vera með sitt á hreinu og svona eins og eitt stykki miða eða árskort.
|