Mér finnst rigningin góð... Prenta Rafpóstur
miðvikudagur, 09 júní 2010

peru-bolivia-alex_7.jpgÞað hefur svo sem ekki farið framhjá neinum sem er búsettur á suðvesturhorninu og víðar, að sólin hefur sýnt sig svo um munar síðustu vikur.  Margir hverjir fagna því og finnst loksins vera komið almennilegt sumar á skuðinu, en þetta er þróun sem við höfum verið að upplifa síðustu þrjú sumur.  En það eru ekki allir jafn hamingjusamir með þetta.  Ég, til dæmis, er ekki alveg jafn hrifnn af allri þessari sól þó það sé ansi þægilegt að hér sé ekki rok og rigning.  Hvað veldur?  Jú, allar brautir á suðvesturhorni landsins eru að skrælna og eru afar óspennandi til aksturs.  Það sem verra er, að klúbbar hérna á flatlendinu virðast vera ansi illa í stakk búnir til að takast á við þennan þurrk og vökva brautirnar.  Þannig að þó að sólin og hitinn geti verið þægilegur, að þá er hann ekki besti vinur drullumallarans þó of mikil væta er það svo sannarlega ekki heldur.  Já, þetta er alltaf spurning um þennan gullna meðalveg.  En nú er að verða breyting á.  Ekki nóg með að það er spáð örfáum dropum úr lofti á fimmtudag, heldur hefur t.d. VÍK verið að gera sitt til að koma sér í þá aðstöðu að geta vökvað almennilega.  Úðunarkerfið er komið í gang og haugsuga sett í gang með til að tryggja almennilega vökvun.  Haugsugan er ekki orðin virk ennþá en verður sett í gagnið innan skamms.  En lítum aðeins á ástandið eins og það er í brautum landsins.

Álfsnes:  Brautin er þurr eins og við er að búast miðað við allan þennan þurrk, en væntanleg er á svæðið haugsuga sem sett verður í gagnið von bráðar.  Búið er að koma upp safntanki fyrir vatn og búið er að bora fyrir vatni til að dæla í tankinn.  Það er hægt að keyra brautina, en hún er ekki upp á sitt besta og fólk ætti að huga að loftsíuskiptum eftir daginn.  Það er spáð úrkomu á fimmtudag og ætti það að setja brautina í betra stand fyrir næstu helgi.  Brautin mun fá einhverja yfirhalningu næstu daga þar sem undirbúningur fyrir aðra umferð í Íslandsmeistaramótinu í motocrossi fer senn að hefjast í brautinni.

Akrabraut:  Eftir því sem ég best veit að þá er sama ástand á henni og Álfsnesi, þ.e. hún er þurr og VÍFA er ekki í sérstakri aðstöðu til að vökva hana og stíla því á veðurguðinn til slíkra verka.  Vonandi kemur góð skvetta á miðvikudaginn sem dugar fram yfir helgi í þessari skemmtilegu braut.

Akureyri:  Þessi braut er í frábæru standi og má segja að þetta sé eina brautin á landinu sem er vökvuð grimmt á morgnana þessa dagana og helst svo fín þegar líður á daginn og kvöldið.  Hjólafólk sem farið hefur norður upp á síðkastið segir að brautin sé geðveik.  

Bolaalda:  Verið er að gera lítilsháttar breytingar á brautinni og verður hún lokuð fram til fimmtudags kl.18.  Byrjað er að vökva brautina með núverandi úðunarkerfi en það dugar því miður ekki til.  Verður haugsuga tekin í notkun á næstu dögum til að hjálpa til við að halda rakastiginu í lagi og er það von VÍK að brautin verði komin í eðalstand um helgina.  Verður spennandi að sjá hvernig hún kemur út eftir breytingar.

Sólbrekka:  Brautin fór í miklar endurbætur fyrir stuttu og var henni snúið við.  Því miður fyrir VÍR að þá hefur veðurguðinn ekki verið að hjálpa til við að halda þessum breytingum góðum og sökum þurrks, að þá hefur hluti af þessari skemmtilegu breytingu aflagast.  Mikið ryk er í brautinni og hún er eins og allar brautir í þessu standi, ekki mjög spennandi hvað grip og ryk varðar.  Með tilkomu fyrrgreindri fimmtudags úrkomu er það vona manna að hún fái smá skammt sem hleypir smá lífi í þessa skemmtilegu braut.  Á ennþá eftir að prófa hana eftir að henni var snúið við og get vart beðið eftir því.  VÍR er eins og svo margir aðrir klúbbar háður úrkomu að ofan og ekki er brautin ekki vökvuð reglulega fyrir utan þessa sem fellur af himnum.

MotoMos:  Búið er að setja upp mjög öflugar byssur en satt að segja veit ég ekki hvort þær séru orðnar vikar og verð ég að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um í hvaða ástandi þessi braut er í dag.  En þetta er stórskemmtileg braut og er að mínu mati ein af betri æfingabrautum landsins.  Ef byssurnar eru komnar í gang, að þá er hún sjálfsagt í fínu standi en verð enn og aftur að játa að ég hef hreinlega ekki hugmynd um það.  Renni við þar á morgun og kanna málið.

Sauðárkrókur:  Brautin er víst í ágætis standi en veit ekki hvernig rakastiginu er háttað þar og geri fastlega ráð fyrir að hún sé í þurrari kantinum þó norðurlandið hafi ekki þurft að upplifa eins mikla þurrka og við á flatlendinu.  Mjög skemmtileg braut og þarf maður að fara að renna í hana við tækifæri.

Þorlákshöfn:  Brautin er furðu góð og var frábær um daginn, þ.e. nokkrum dögum fyrir mótið í Ólafsfirði.  Hún er að sjálfsögðu orðin nokkuð þurr eins og aðrar brautir en þar sem þetta er sandbraut að mestum hluta að þá er hún ekki grjóthörð eins og hinar brautinar á suðvesturhorninu og ætti því að vera allt í lagi að keyra í henni.  

Jæja, þá er þessari upptalningu lokið.  Seint hafði maður búist við að maður grenjaði yfir rigningarleysi, en svo er raunin í dag og vildum maður gjarnan fá góða skvettu á næstunni í nokkra daga til að vökva almennilega brautirnar. 

 
< Fyrri   Næsti >