Ástand brauta í dag - sunnudag 16 maí Prenta Rafpóstur
sunnudagur, 16 maí 2010

Hér eru smá uppfærslur um ástand brauta eins og ég veit að þær eru.  Þetta eru ekki 100% upplýsingar en tel þær þó það góðar að óhætt sé að setja þær fram á netið.  Tekið skal þó fram að ástand brauta geta breyst mikið á einum degi og það fyrst og fremst vegna notkunar þar sem þær slitna misjafnlega.  Allar brautir eru farnar að þorna og verða menn að hafa það í huga.

Álfsnes:  Í brautinni voru leyfar af smá pollum í byrjun dags í gær en að öðru leyti á brautin að vera þokkaleg.  Hún er orðin nokkuð skorin og vúpsuð á köflum, en það eru aðstæður sem þeir bestu vilja æfa í þar sem það er við svona aðstæður sem þú lærir að velja línur.  Uppstökkinn eru allt í lagi og lendingar líka.  Miðar í brautina fást í N1 í Mosfellsbæ.  Barnabrautin er góð og helst mjög vel.

Akrabraut:  Brautin var öll tekin í gegn á föstudag og á að vera í eðal ástandi.  Mér skilst að búið sé að búa til nýtt step-up í brautinni sem á að vera mjög skemmtilegt, ef marka má Binna Morgan á síðunni hans.  Búið er að opna alla brautina, þ.e. nýjasti hluti brautarinnar hefur verið opnaður en hann var lokaður vegna aurbleytu.  Það er mjög góð barnabraut þarna fyrir minni ökumenn og er um að gera að leyfa þessum ungu ökumönnum að prófa hana.  Miðar í brautina fást í Olís upp á skaga.

Akureyri:  Búið er að opna brautina og er hún í ágætis standi.  Frostið er að fara úr henni og er því rakinn að leita upp þannig að hún er rök.  Smá kafli í brautinni sem er í rakara lagi og er það á sama stað og venjulega, þ.e. eftir ráskaflann og niður að fyrstu beygju.  Miðar í brautinni fást í N1 á Akureyri.

Bolaalda:  Bolaalda er í ágætis standi en er farin að þorna og er vökvunarkerfið ekki komið í gang.  Uppstökk og lendingar eru í lagi en það er smá fínt laust grjót ofan á sums staðar í beygjum.  Að öðru leyti er brautin fín.  Búið er að opna endurslóðana upp í Jósefsdal og eru þeir í mjög fínu standi en hluti af slóðunum eru samt ennþá lokaðir og eiga ökumenn að virða það.  Þessi braut hefur þá sérstöðu að hún býður upp á lang bestu aðstöðu fyrir ökumenn með góðu húsi og bestu þvottaaðstöðu sem er í boði á landinu.  Barnabrautin er í góðu standi og ný búið að laga 85cc brautina.  Miðar í brautina fást í Olís á Norðlingaholti og Litlu kaffistofunni.

Ólafsfjörður:  Þessi braut er víst í mjög góðu standi og eru menn þegar farnir að renna norður til að æfa í henni.  Fyrst motocrossmótið til Íslandsmeistara mun fara fram í þesari braut.  Ég veit ekki hvar miðar eru keyptir í þessa braut en það ætti ekki að vera erfitt að komast að því.

Sólbrekka:  Brautin er í ágætis standi en er farin að vúpsast eins og við er að búast.  Uppstökkinn eru öll í lagi og lendingar fínar.  Smá grjót hér og þar sem er ekki mikið mál að hreinsa með það eitt að labba einn hring áður en hjólað er.  Á staðnum ágætis barnabraut sem hentar vel fyrir byrjendur en hún er stutt.  Miðar í brautina fást í N1 í Hafnarfirði.

Selfsoss:  Brautin er nýbúin að fara í gegnum viðhaldsvinnu og er í fínu standi.  Uppstökk eru fín og lendingar góðar, en fyrir óvana eru aðfallshornið að pöllunum nokkuð bratt.  Ekkert óyfirstíganlegt og þegar ökumenn ná stökk rythmanum þarna, að þá er þetta mjög skemmtileg braut.  Það koma upp grjót í brautinni sem gott getur verið að týna út og þar sem brautin er nokkuð stutt, að þá er ekki mikið mál fyrir ökumenn að labba einn hring og týna upp.  Miðar í brautina fást í Pylsuvagninum við brúnna.

Þorlákshöfn:  Brautin er í flottu standi og ekki langt síðan að hún var öll tekin í gegn og á það líka við uppstökk og lendingar.  Þarna er líka fín endurobraut sem menn hafa notað mikið í vetur.  Hjólamenn á höfuðborgarsvæðinu mega ekki gleyma að fyrsta keppni ársins er í sandi á Ólafsfirði og þurfa menn því að hjóla í sandi.  Ágætis barnabraut er á svæðinu þó hún sé stutt.  Miðar í brautina fást í Olís á Norðlingaholti og í Skeljungi í Þorlákshöfn.

Þá er þessari upptalningu lokið. Aðrar brautir hef ég ekki upplýsingar um og ef menn vilja koma upplýsingum um ástand brauta til mín að þá geta þeir sent póst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það  

 
< Fyrri   Næsti >