• Auð jörð og margir orðnir óþreyjufullir - Hvar má hjóla og hvar ekki...
    Auð jörð og margir orðnir óþreyjufullir - Hvar má hjóla og hvar ekki... Eftir töluvert frost síðustu daga og hressilega ofankomu með snjó sem hefur sem betur fer fyrir okkur hjólamenn tekið upp að þá er ekki nema von að við viljum fara út að hjóla.  Við það að snjórinn hefur horfið og allt er orðið autt hér á suðvesturhorninu að þá er…
  • Umhverfissinnar að tröllríða sportinu í Belgíu - hver brautin á fætur annari lokuð
    Umhverfissinnar að tröllríða sportinu í Belgíu - hver brautin á fætur annari lokuð Hver brautin af fætur öðru hefur verið lokuð í Belgíu í kjölfar málsóknar umhverfissinna og er virkilega ástæða til að fylgjast með stöðu mála í Belgíu því töluverðar líkur eru á að þau rök sem umhverfissinnar hafa beitt fyrir sig til að ná í gegn lokun á brautum þar munu að öllum líkindum verða notuð annar staðar í Evrópu.…
  • Brautir og ástand þeirra í dag
    Brautir og ástand þeirra í dag Við hér á suðvesturhorninu höfum ekki farið varhluta af þeim þurrki sem hefur plagað okkur það sem af er sumri og já, ótrúlegt en satt að þá er þetta þriðja árið í röð sem það rignir bara sáralítið í júní og júlí lítur út fyrir að ætla að vera lítið…
  • Loksins, loksins kemst braut AÍH á koppinn í Hafnarfirði
    Loksins, loksins kemst braut AÍH á koppinn í Hafnarfirði Um helgina hófst vinna í Hafnarfirði við uppbyggingu motocrossbrautar klúbbs AÍH.  Þessi braut er búinn að vera á dagskrá hjá félaginu í að verða langan tíma eða í ein tuttugu ár.  Fyrirstaða og dráttur bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gegnum tíðina var meðal annars ein ástæða þess að ég er ekki lengur…
  • Hvaða brautir eru búnar að opna í dag?
    Hvaða brautir eru búnar að opna í dag? Nú er hver brautin á fætur öðru að opna þessa dagana og hér er smá pistill um hvaða brautir eru opnar og í hvaða ástandi þær eru.  Selfoss var alla vega mjög flott í gær, mánudag og einnig voru menn afar ánægðir með MotoMos á sunnudaginn.  En hér er listinn…
  • Brautin í alls herjar yfirhalningu í Bolaöldu - opnar á morgun kl.14
    Brautin í alls herjar yfirhalningu í Bolaöldu - opnar á morgun kl.14 Á leið minni frá Selfoss áðan, að þá renndi ég við í Bolaöldu og er helling um að vera þarna greinilegt að það á að taka brautina vel í gegn áður en hún verður opnuð.  Ég gat ekki betur séð en verið væri að harpa alla brautina og það þýðir…
  • Búið að opna motocrossbrautina á Sauðárkróki
    Búið að opna motocrossbrautina á Sauðárkróki Samkvæmt Herr Binnz Morgan sjálfum og hef ég þetta eftir honum á fésinu, að þá er búið að opna motocrossbrautina á Sauðárkróki.  Búið er að renna yfir hana og ætlar pilturinn að henda inn myndbandi í kvöld eða á morgun á www.morgan.is.  Brautin er nokkuð grýtt og væri það ekki…
  • Búið að slétta brautina í Þorlákshöfn
    Búið að slétta brautina í Þorlákshöfn Búið er að slétta brautina í Þorlákshöfn í dag og er hún tilbúin fyrir átök helgarinnar.  Uppstökk og pallar eru í ásættanlegu standi og ætti engum að leiðast að taka á því í þessari braut.  Endurohringurinn er líka í ágætis standi þó hann sé vel vúppsaður en það er bara…
  • Brautin í Þorlákshöfn opnuð - búið að laga uppstökk og lendingar
    Brautin í Þorlákshöfn opnuð - búið að laga uppstökk og lendingar Siggi "yfirbrautarvörður" í Þorlákshöfn hringdi í mig í dag og tilkynnti mér til mikillar gleði að búið væri að renna yfir brautina í Þorlákshöfn og hann gæti sagt með stolti að hún sé opin eftir að hafa verið full af snjó síðustu vikur.  Búið er að laga palla, bæði uppstökk…
  • Brautir og brautarsmíði
    Brautir og brautarsmíði Síðustu vikur höfum við getað horft á AMA Supercrossið okkur til mikillar gleði og ánægju.  Nú eru búnar þrjár umferðir af sautján og áhorfendir hafa líklegast tekið eftir eins og ég að það hefur verið jafnt á með efstu fimm ökumönnum, þó svo að James Stewart og Ryan Villpoto beri…
  • Mosfellsbær samþykkir motorcrossbraut á Tungumelum
    Mosfellsbær samþykkir motorcrossbraut á Tungumelum Bæjarráð hefur heimilað bæjarstjóra að ganga frá samningi við MotoMos um afnot af landsvæði til akstursíþrótta. Samningurinn er til fimm ára og verður skipulag svæðisins unnið í samstarfi við Mosfellsbæ, sérstaklega útfærsluatriði er varða hljóðvist, útlit, aðkomu o.fl. Í staðinn fyrir afnot landssvæðisins mun MotoMos standa fyrir öflugu fræðslu- og…
  • Sólbrekka í dag
    Sólbrekka í dag Loksins, loksins!  Braut á suðvesturhorninu sem hægt er að hjóla í.  En þó nokkrir brugðu undir sig betri fætinum í dag og hjóluðu í Sólbrekku.  Það lék sælubros um mæðgurnar að komast í Sólbrekku í dag og ekki skemmti fyrir að sjá fleiri en okkur í sömu hugleiðingum.  Nú hlýtur…
  • Brautir og ástand þeirra
    Brautir og ástand þeirra Eins og það hefur líklegast ekki farið framhjá neinum að þá eru margir ábúendur í Þykkvabæ orðnir langþreyttir á virðingarleysi hluta hjólamanna gagnvart eignum þeirra og umgengni á svæðinu.  Mæli ég, að ég held, fyrir munn flestra hjólamanna er ég bið menn um að sýna almenna kurteisi á svæðinu og virða…
  • MotoMos komið með vilyrði fyrir braut í Mosfellsbæ
    Þau ánægjulegu tíðindi má lesa á ýmsum síðum bæjarins að MotoMos hafi fengið vilyrði fyrir braut í Mosfellsbæ.  Að sögn Valda Pastrana #270 að þá liggi væntanlegt brautarstæði mjög vel og sé allt að því í klettaborg sem hefur myndast við sprengingar á staðnum við jarðefnatöku.  Valdi tjáði mér að þarna…

Heyrst hefur...

  • ... að undirbúningur fyrir liðs Íslands fyrir ISDE 2012 sé hafin og eiga allir að setja "like" á síðu þeirra á fésinu
  • ... að enn sé ekki búið að moða keppnisdagskrá MSÍ og enn sé óljóst hvort það verði sex MX keppnir eða fimm og stóra spurningin um fjórðu endurokeppnina
  • ... að Sveppagreifinn og Aron #66 horfi vonaraugum til Vestmanneyja þar sem brautin þar er klár í slaginn
  • ... að Jói Kef sé að stefna á að keppa í FIM mótaröðinni og fara í öldungardeildina
  • ... að Binni Morgan sé búinn að kaupa þrjú hjól handa syni sínum og stefni á að taka "taugatrekkta Ítalann" á hliðalínum brauta á næstunni
  • ... að Reynir sé búinn að setja takmarkið að komast á MXON 2012
  • ... að Reynir Jónsson æfi nú eins og vitlleysingur þessa dagana og sést hefur hjá honum í boxsölum borgarinnar þar sem hann lemur púða eins og hann eigi lífið að leysa.  Spurning um að lána honum nokkra stjórnmálamenn og stjórnendur lífeyrissjóða til að æfa sig á
  • ... að Reynir Jónsson ætli sér að vera með stóra "come back-ið" í ár
  • ... að Ryan Sipes sé handleggsbrotinn eftir að hann krassaði í gær og fór úr axlarlið.  Verður hann frá í 6 vikur í það minnsta
  • ... að Eli Tomac muni að öllum líkindum taka stöðu Trey Canard hjá Honda í 450 flokknum og keyra á meðan West Lites flokkurinn er í fríi
  • ... að James Stewart hafi tilkynnt á fésinu í dag að hann væri líklegast búinn að ná störtunum aftur og hann væri tilbúinn fyrir þriðju umferðina um næstu helgi
  • ... að áhugi hafi verið til staðar hjá MSÍ að setja á fjórðu keppnina í enduro í júlí en vandamálið er að finna klúbb til að halda keppnina og ekki beint eins og þeir standi í röðum fyrir utan skrifstofu MSÍ um ósk að fá að halda slíkar keppnir
  • ... að keppnisdagatal MSÍ verði birt formlega á vefsíðu þess næstu daga og þá kemur í ljós hvaða brautir verða fyrir valinu í ár í MX
  • ... að það sé nokkurn vegin frágengið að það verði sex umerðir til Íslandsmeistara í motocrossi í ár
  • ...Að búið sé að leggja Nitró niður og verður hluti af starfseminni sem farið hefur fram í Nitró sett í aðrar deildir N1 á Bíldshöfðanum
  • ... Að Raggi "heimsmeistari" hafi brotið herðablað í bikarmótinu sem haldið var um síðustu helgi í Bolaöldu og þurfi hugsanlega að fara í aðgerð þar sem þetta verður skrúfað saman
  • ...Að KTM sé búð að endurnýja samning sinn við Jeffrey Herlings til enda ársins 2014
  • ...Að þeir feðgar, Tony og Mike Alessi, hefðu meira segja komi því til leiðar að hann muni keppa á Suzuki þrátt fyrir að liðið hafi verið nýbúið að gera bindandi samning við Honda sem nú er í uppnámi
  • ...Að David Vuillemin hafi þótt nóg um þegar þeir feðgar, Mike og Tony Alessi, hefðu viljað stýra öllu eftir þeirra höfði og ekki viljað neina tilsögn eða leiðsögn
  • ...Að ástæða brotthvarfs David Vuillemin hafi verið nýr samingur sem gerður var við nýjan liðsmann Motoconcept en sá aðili var enginn annar en Mike Alessi