Í dag fór fram stærsta strandakeppni í þolakstri sem fer fram ár hvert á ströndum Frakklands. Til leiks voru skráðir rúmlega ellefuhundruð keppendur (1100) og þar af margir af frægustu enduroköppum Frakklands ásamt nokkrum af frambærilegustu ökumönnum í motocrossi eins og Tanel Leok og Nicolas Aubin. Motocross ökumenn hafa í…
Um næstu helgi fer fram stærsta keppni sinnar tegundar í þolakstri í heiminum þar sem yfir eittþúsund ökumenn munu ræsa á langri strönd sem kallast Pas-de-Calais í Frakkalandi. Þetta er svona Klausturskeppni þeirra fransmanna fyrir utan að hún fer öll fram í sandi sem getur verið mjög lýjandi og tekur…
Þá hefur það verið staðfest að Mika Ahola, einn fremsti endurökumaður heims í dag og fimmfaldur heimsmeistari, hefur lagt skónna á hilluna. Undarlegar fréttir bárust í lok síðsta ár þess efnis að Mika Ahola hefði skrifað undir samning við hjólaframleiðanda sem hreinlega enginn vissi af og heitir JotaGas. Þessi samningur…
Það er greinilegt að menn eru að spýta í lófana hjá Suzuki og nú hefur enn einn meðlimurinn gengið til liðs við Suzuki. Það er enginn annar en Jónas Stefánsson sem hefur verið Mr. Green síðustu ár og keppt á Kawasaki. Jonni, eins og hann er kallaður, er óþreytandi þegar kemur að keppnisstandi og ef það…
Nú er hver framleiðandinn á fætur öðrum að koma með nýjungar í rafmagnshjólum og greinilegt að það hefur orðið veruleg vakning þeirra meðal hvað þennan orkugjafa varðar. Hingað til hafa þetta verið örfáir aðilar og aðilar sem hafa verið í jaðrinum hvað varðar framleiðslu á hjólum en nú eru stóru framleiðendurnir farnir að horfa meira og meira…
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig til leiks í endurocross keppnina sem haldin verður í Sólbrekku þann 5 nóvember, þ.e. næsta laugardag. Þar sem hin margrómaða "kreppukeppni" datt út í Þorlákshöfn, að þa er tilvalið að taka þátt í síðustu keppninni fyrir árshátíð MSÍ og kveðja árið með trukki. Keppnin er…
Tekið af vef motocross.is Bikarkeppni í EnduroCross verður haldin á Sólbrekkusvæðinu 5. nóvember næstkomandi. Byrjað er að leggja brautina sem verður í kringum motocross-brautina en hún verður þó ekkert lík motocrossi. Keyrt verður um þúfur og grjót og smá hringur tekinn inní húsið! Enginn þarf þó að óttast, brautin verður vel…
Já, þessi piltur er hreint út sagt ótrúlegur en um helgina fór fram fjórða umferðinni í Geico AMA Endurocross og fór keppnin fram í Ontario í Kanada. Það er skemmst frá því að segja að Taddy Blazusiak sigraði og hefur hann því sigrað í öllum umferðum það sem af er. Hreint út sagt magnaður þessi piltur. Ég vona að…
Já, hann Daði hefur stofnað nýjan vef sem heitir harðjaxl.is..:0) En það er að verða frægt, alla vega hér á Íslandi, myndbandið af honum sem Morgan gengið náði þegar hann fer hressilega á granirnar í síðustu umferðinni í enduro sem fór fram á Sauðárkrók um helgina. Greinilegt að maðurinn ber nafn með rentu, þ.e. Daði Skaði. Það er…
Kári Jónsson tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í ECC1 þriðja árið í röð og undirstrikar það enn og aftur að hann er einn okkar allra besti ökumaður í enduro. Kári lauk keppni með fullu húsi stiga sem er frábær árangur. En það var ekki bara Kári sem náði sér í titil í gær því Eyþór Reynisson náði…
Um næstu helgi fer fram síðustu umferðirnar í ECC til Íslandsmeistara og verður að segjast að þátttakan er langt undir því sem eðlilegt getur talist. Tæplega sjötíu keppendur hafa skráð sig til leiks í braut sem þátttakendur frá umferðinni sem fór þar fram árið 2008 hafa kallað eina þá allra skemmtilegust sem þeir tóku þátt í það…