Nú er frost á frónni frýs í æðum blóð også videre. Já, það er svo sannarlega kalt þessa dagana og því eru öll vötn ísilögð hér í nágrenni Reykjavíkur og sjálfsagt víðar. Við erum búin að bregða okkur á Hafravatn síðustu tvo daga og er ísinn alveg glerharður þar. Ágætt veður þarna í gær en skítkalt í dag sökum sterkar norðangolu sem tók af og til hressilega í ökumenn. Engu að síður ekki hægt að kvarta yfir ísnum. Miðað við veðurspá, að þá er útlit fyrir áframhaldandi ís næstu daga og ekki úr vegi að menn fari nú að skella undir hjólin trellana. Heyrst hefur að ótrúlegustu menn hafa hug á að æfa sig fyrir komandi Íslandsmeistaramót í motocrossi með þátttöku í íscrossinu í vetur, svo nú þýðir ekki að bíða eftir neinu. Myndaalbúmið enn í rugli og því set ég engar myndir en fyrir neðan má sjá eina eða tvær. Ótrúlegt hvað Biggi málari gat lagt hjólið á tréskrúfunum á ísnum. Þetta var bara ekki sanngjarnt þarna í dag..:0)



