Wednesday, 12 January 2011 16:32

Suzuki RM-Z250 hjól ársins að mati MXA

Written by 

Á hverju ári keppast vefmiðlar og tímarit að taka hjól framleiðanda, etja þeim saman og dæma.  Þetta ár er svo sem engin undantekning en útkoman er oft æði misjöfn og sitt sýnist hverjum.  Þrátt fyrir það, að þá er maður afar forvitinn að vita útkoma slíkra prófana og heyra hvað þessir miklu spekingar hafa að segja um hjólin og því flettir maður alltaf strax upp að þessum prófunum í öllum blöðum sem maður kemst í.  Motocross Action Magazine er tímarit sem ég hef fylgst með í nokkurn tíma og nú fyrir nokkrum tímum kynntu þeir það sem þeir töldu að vera hjól ársins í 250cc flokknum.  Það er skemmst frá því að segja að MXA eins og það er skammstafað varð samhljóma Racer X um að Suzuki RM-Z250 árgerð 2011 væri hjól ársins í þessum flokki.  Í öðru sæti varð Kawasaki KX250F og er þetta í fyrsta sinn í fjögur ár sem Kawasaki þarf að láta í minni pokann hjá MXA í þessum flokki.  Í þriðja sæti varð KTM 250 SX-F.  Í fjórða sæti varð Yamaha YZ250F og á botninum í fimmta sæti sat Honda CRF250.  Tekið skal fram að þarna vantar einhverja framleiðendur eins og TM og Husquarna en það er ekkert nýtt þegar kemur að amerískum miðlum.

Read 672 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 23:49