MotoUSA er eitt af þeim tímaritum og vefmiðlum sem ekki eingöngu taka "out of the box" hjól frá framleiðanda og prófa við ýmsar aðstæður, heldur taka þeir líka hjól og láta breyta þeim eftir kúnstarinnar reglum eftir því hvað hver framleiðandi gerir best. Í þessu tilviki tóku þeir Yamaha YZ450F árgerð 2010 og létu breyta því hjá Yoshimura sem framleiðir púst eins og Pro Circuit og meira til. Síðan djöflast þeir á hjólinu hingað og þangað við ýmsar aðstæður í prófunum sínum. Í þessu myndbandi eru þeir að fara með hjólið í keppni á Glen Helen brautina og er áhugavert að sjá hvað hann hefur að segja um hjólið eftir breytingar.