Já, ég veit. Sleppti að fjalla um Dakar rallýið í gær þar sem ég er latur..:0) Á degi 11 þurtu ökumenn að keyra 622 km sérkafla og er Cyril Despres langt frá því að gefa árar í bát þrátt fyrir að hafa tapað niður forystunni til liðsfélaga síns Marc Coma sem náði 18 mínútna forskoti á næsta mann eftir dag 10 og sigraði Cyril Depres í gær. Nú eru tveir dagar eftir og fræðilega á Cyril Despres möguleika á að vinna upp forskot Marc Coma því allt getur gerst í þessari keppni. Ef ekki verða neinar bilanir hjá báðum ökumönnum að þá þarf Cyril Despres að vinna upp 16 mínútna mun á næstu tveimur dögum. Annars endaði dagur 11 þannig að Cyril Despres sigraði eins og áður hefur komið fram, Marc Coma varð annar og Francisco Lopez Contardo varð þriðji. Þessi menn skipa líka efstu sæti í "overall" fyrir utan að það eru sætaskipti á milli Cyril Despres og Marc Coma þar sem Marc Coma leiðir og Cyril Despres er í öðru. Fyrir neðan má sjá samantekt fyrir dag 10 og 11 og ennþá neðar er svo úrslit topp 10 ökumanna eftir dag 11 og heildarstaða.
2011 Dakar Rally Stage 11 Results:
1. Cyril Despres, FRA (KTM) 04:33:13
2. Marc Coma, ESP (KTM) 04:35:24
3. Francisco Lopez Contardo, CHL (Aprilia) 04:39:32
4. Helder Rodrigues, PRT (Yamaha) 04:40:57
5. Alain Duclos, FRA (Aprilia) 04:43:16
6. Quinn Cody, USA (Honda) 04:43:30
7. Frans Verhoeven, BEL (BMW) 04:47:15
8. Jean de Azevedo, BRA (KTM) 04:48:49
9. Juan Pedrero Garcia, ESP (KTM) 04:48:55
10. Jordi Viladoms, ESP (Yamaha) 04:50:21
2011 Dakar Rally Overall Standings:
1. Marc Coma, ESP (KTM) 19:14:55
2. Cyril Despres, FRA (KTM) 19:30:54
3. Francisco Lopez Contardo, CHL (Aprilia) 20:04:19
4. Helder Rodrigues, PRT (Yamaha) 20:50:05
5. Juan Pedrero Garcia, ESP (KTM) 21:57:50
6. Pal Anders Ullevalseter, NOR (KTM) 22:12:40
7. Jean de Azevedo, BRA (KTM) 22:39:26
8. Ruben Faria, PRT (KTM) 23:04:41
9. Quinn Cody, USA (Honda) 23:33:21
10. Henk Knuiman, NLD (KTM) 23:38:51