Við hjónakornin vorum nokkuð dugleg að hjóla þessa helgi á ísnum, að vísu var frúin duglegri en ég þar sem hún hjólaði báða dagana á meðan ég hékk fyrir aftan myndavélina í dag. Byrjuðum gærdaginn á Hafravatni og var færið frábært á hafravatni og synd að sjá ekki fleiri ökumenn nýta sér þessar aðstæður og hjóla á ísnum, en um tíu manns renndu þarna við. Ég tók í hjól dóttur minnar, Yamaha YZ250 tvígengis og þetta er svo allt öðru vísi en fjórgengishjól að þetta er eins og að bera saman epli og appelsínu. Ógeðslega gaman en aumur í botninum eftir atganginn..:0) Í dag brugðum við okkur í fjörðin og voru fleiri á svæðinu heldur en á Hafravatni í gær. Halveyravatn er botnfrosið og ísinn ekkert á leiðinni í burtu á næstunni ef ekki kemur til grenjandi rok og rigning með 10°C hita. Aðstæður voru mjög skemmtilega, gripið gott, en yfir var smá vatn sem gerði þetta að töluverðu sjónarspili. Bryndís Einarsdóttir var mætt á ísinn og loksins voru þarna fleiri konur á ísnum en bara brjálaða Bína og það sem meira var, ég gat ekki betur séð en þarna væri alveg nýtt konuandlit á ísnum sem ég kunni ekki deili á. Smellti hátt í 700 myndum og tók upp myndband en enn sem fyrr að þá mun ég ekki birta þær því þessi útgáfa af síðunni er að syngja sitt síðasta og mun endurbætt síða með öflugra myndakerfi + "commenta-kerfi" líta dagsins ljós á næstunni. Fyrir neðan eru nokkrar myndir.