Já, maður hefur heyrt því fleygt fram að það geti verið kalt á toppnum og oft þegar viðkomandi er búinn að ná framúrskarandi árangir, að þá einangrist viðkomandi frá fjöldanum. Það virðist vera orðið tilfellið með James Stewart og allir þeir sem efast um að hann sé ekki að leggja á sig til að ná árangri ættu kannski að horfa á þetta myndband þar sem hann er að æfa einn að næturlagi nú fyrir stuttu. Við skulum ekki gleyma því á meðan við horfum á þetta myndband og gagnrýnum hann fyrir lélegan árangur í ár að þá skulum við ekki gleyma því að James Stewart var að keppa um síðustu helgi rifbeinsbrotinn á tveimur og það eitt og sér er mjög sársaukafullt. Brautin sem er heima hjá James Stewart virkar nánast "perfect" og þegar ég sá myndbandið að þá fór ég að velta því fyrir mér að þarna liggi kannski hluti af vandamáli James Stewart þar sem hann er orðin of góðu vanur og er ekki að hjóla nógu mikið í gatslitnum brautum eins og hugsanlega aðrir.