Eftir töluvert frost síðustu daga og hressilega ofankomu með snjó sem hefur sem betur fer fyrir okkur hjólamenn tekið upp að þá er ekki nema von að við viljum fara út að hjóla. Við það að snjórinn hefur horfið og allt er orðið autt hér á suðvesturhorninu að þá er ekki skrýtið að margur hjólamaðurinn kitli í puttana og telur það líklegast að brautir á suðvesturhorninu sé tilbúnar að einhverju leyti, en það er fjarri góðu lagi. Þó það sé orðið autt að þá er frost ennþá í jörðu þó svo að það sé rétt farið að þiðna á yfirborðinu. Allur jarðvegur er gífurlega viðkvæmur þessa dagana og þurfa ökumenn að taka tillit til þess. Allir stígar eða vegir í nágrenni Reykjavíkur er þess eðlis að ökumaður sekkur í það minnsta 7-10 cm niður í svörðin og eina gagnið sem ökumaður myndi hafa af því að hjóla núna væri djúp sár í alla slóða sem síðan myndi frostna aftur og mynda miklar skemmdir í næstu leysingum þegar vatnið hefur leikið um þá. Í alvöru, að þá er þetta ekkert grín og ummerki eftir alla umferð hjólamann í dag myndi sjást árum saman. Því bið ég ökumenn að gefa náttúrunni sinn tíma til að jafna sig því þá verður þetta auðveldara fyrir alla, bæði þá sem eru að vinna í því að halda úti svæði fyrir ökumenn sem innifelur oft stirð samskipti við sveitarfélög, og einnig fyrir ykkur sem viljið njóta þess að geta hjólað. Ef þetta heldur áfram á þessari braut hvað veður snertir að á líður kannski ekki nema vika til tíu daga þar til hægt verður að opna fyrstu brautina á láglendinu, svo framarlega sem ekki verður næturfrost. Á meðan skulum við bíða. Ég fór upp í MotoMos í dag og nýlega hafði einhver gáfumaðurinn hjólað í brautinni sér sjálfsagt til mikillar gleði og okkur sem þurfum að halda henni við til mikillar gremju og ama. Djúp för eftir viðkomandi eru ekkert grín og eiga eftir að fyllast af vatni, frostna væntanlega og springa og gera ennþá ljótari sár. Sem betur fer er þetta braut sem er löguð reglulega en þetta mun kalla á meiri vinnu við að laga svo hægt verði að opna en ella.
Svona til þess að upplýsa hvaða brautir eru opnar og hverjar ekki á suðvesturhorninu að þá er hér listinn. ALLAR brautir á suðvesturhorninu FYRIR UTAN ÞORLÁKSHÖFN eru LOKAÐAR! Þorlákshöfn er í góðu standi og að sögn Hauks sem hjólaði þar í dag og var einn pollur eftir í motocrossbrautinni og einn smá snjóskafl. Endurobrautin er í fínu standi og smá snjór hér og þar en ekkert frost og fínt hjólafæri. Þannig að ég bið menn að nýta sér þá frábæru aðstöðu sem er í 25 mínútna fjarlægð frá okkur hér í Reykjavík og fara til Þorlákshafnar til að hjóla. Enda fáar brautir sem byggja upp eins mikið þol fyrir ökumann sem hugsanlega ætlar sér að taka þátt í Klausturskeppninni eins og að hjóla í sandi. Þannig að á meðan að aðstæður eru eins og þær eru, að þá er Þorlákshöfn málið. Enda eitt af fáum leyfilegum svæðum sem við megum vera og eigum við að styðja við það svæði með að nýta okkur þá aðstöðu.