Nú eru óðum að hefjast þau mót sem ökumenn í FIM mótaröðinni taka þátt í og eru þau að þessu sinni tvö um þessa helgi. Á Ítalíu fór fram hið hefðbundna Starcross keppnin í Manitova og svo hins vegar í Valence í Frakklandi. Einkennilegt að hafa þetta á sama tíma en svona er þetta bara og ekkert við því að gera héðan af skuðinu. Þessi mótaröð markar eiginlega upphafið af formlegum undirbúningstíma í FIM mótaröðinni og eru margir spenntir að sjá hvar þeir standa í samanburði við aðra og hvað þeir þurfa að bæta fyrir komandi keppni í FIM sem hefst 9 apríl í Valkenswaard í Hollandi. Þar sem MXON fer fram í Lommel í Belgíu þetta árið, að þá dettur sú keppni úr FIM mótaröðinni, því miður fyrir okkur sem elskum sandkeppnir. En víkjum aftur að úrslitum í þessum mótum.
Í Valence var það Clément Desalle á Suzuki sem var sterkastur og vann hann í öllum þremur moto-inum sem fóru fram í dag. Clément Desalle meiddist um mitt síðasta tímabils og er það mín skoðun að þar hafi Antonio Cairoli duttið í lukkupottinn því eins og Clément Desalle keyrði, að þá fannst mér hann líklegri til að verða meistari en Tony Cairoli. Í öðru sæti varð Gautier Paulin sem er nýkomin yfir á Kawasaki og mun færast upp í MX1. Steven Frossard á Yamaha varð þriðji en þetta er fyrsta skiptið sem hann keppir eftir mjög erfið lungnameiðsli sem hann varð fyrir lok síðasta FIM tímabils. Vonandi er hann búinn að ná sér að fullu og verður sterkur á komandi tímabili. Arnaud Tonus sigraði í MX2 á Yamaha, einhver Teillet frá Frakklandi á Kawasaki varð annar og Jack Nicholls varð þriðji á KTM.
Á Ítalíu í Manitova var það Antonio Cairoli sem kláraði dæmið en hann gerði það ekki með fullu húsi stiga. Jeffrey Herlings sigraði hann t.d. í moto-i tvö og Evgeny Bobryshev sigraði í moto-i þrjú, þannig að hann var ekki eins sterkur og Clément Desalle virtist vera á Spáni. En hann gerði það sem þurfti að gera og stóð uppi sem sigurvegari. Jeffrey Herlings varð annar og lítur kappinn vel út fyrir MX2 í sumar og verður að teljast sterkasti kandítatinn fyrir sumarið. Evgeny Bobryshev varð þriðji og gaman er að nefna að David Philippaerts varð fjórði og er allur að koma til en hann meiddist mjög illa í lok síðasta tímabils þegar hann brotnaði mjög illa á báðum úlniðum. Gaman að sjá að hann er aftur komin á ról og vonandi nær hann sér að fullu.