Ég var og er mikill aðdáandi Ricky Charmichael. Dirt Shark fékk að vera viðstaddur þegar Suzuki liðið vildi ná meira út úr Brett Metcalfe sem hefur ekki náð að sýna sínar bestu hliðar það sem af er í supercrossinu í ár og til verksins var enginn annar en "The Greatest Of All Time" Ricky Charmichael. Verður að segjast að karlinn hefur ennþá lygilegan hraða, næstum því jafn hraður og ég, og átti Brett Metcalfe í mesta basli með að halda aftur að Ricky Charmichael. Hann er og verður alltaf flottur en hér er myndabandið með tappanum.