Tuesday, 07 February 2012 10:47

Fyrsta umferðin í íscrossi verður á Akureyri 11 febrúar

Written by 

Tilkynning frá MSÍ

 

Skráning í 1. umferð Íslandsmótsins í Ís-Cross sem fara átti fram í Reykjavík 28. janúar mun gilda fyrir keppnina sem sem fram fer á Akureyri laugardaginn 11. febrúar.  Þeir keppendur sem skráðu sig í 1. umferð athugið að sú skráning mun standa og verður opnað fyrir þá skráningu aftur til miðvikudagsins 8. febrúar til kl: 21:00
 
Þeir keppendur sem þegar hafa skráð sig en geta ekki mætt á Akureyri er bent á að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. áður en skráningarfrestur rennur út og mun þá keppnisgjaldið verða fært á aðra keppni.  Langtímaveðurspáin lítur vel út, eins og sjá má fyrir neðan og allt útlit fyrir góða keppni á Akureyri.  Ekki hefur verið ákveðið með aukakeppni í Ís-Cross en gera má ráð fyrir að hún verði sett á í kringum 25. febrúar ef aðstæður leyfa.
 
Read 167 times Last modified on Tuesday, 07 February 2012 11:19